Föstudagur, 11. janúar 2013
Skömm Jón Bjarnasonar
http://kristinn.is/frettirpage.asp?ID=1486
Metafkoma varð í sjávarútvegi á árinu 2011. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnskostnað varð 80 milljarðar króna eða 30% af öllum tekjum greinarinnar. Þetta er árið sem skilaði 25 30 milljarða króna tekjum af makrílveiðum án fjárfestingar í skipum né í búnaði að nokkru ráði. Þetta er árið sem veiðirétturinn á makríl kostaði aðeins 140 milljóna króna. Þetta er árið sem landsmenn öxluðu skattahækkanir og niðurskurð í heilbrigðiskerfinu en útvegsmenn öxluðu gróðann.
Jón gaf nánast fiskinn okkar. Það voru engir kvótahafar á þessum fiski. Þetta var hrein viðbót. Ný tegund, nýtt magn. Jón ákvað samt að gefa hann nánast til útvegsmanna.
Þó að Jón var með allt klúðrið í kringum ESB umsóknartafirnar, þá verður þetta sem fólkið mun minnast hans. Að hafa kostað þjóðfélaginu milljarða. Heilt hátæknisjúkrahús.
kv
Sleggjan
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
hann gerði einfaldlega ekki sína vinnu þegar kom að því að efna stjórnarsáttmálann vegna aðildarviðræðna íslands við esb - svo einfalt er það - sorglegt að það þurfti að henda ÁPÁ út í leiðinni.
Óðinn Þórisson, 11.1.2013 kl. 09:48
jón lét útvegsmenn fá skotleyfi á markrílinn til þess að djöflast í ESB
það er alveg augljóst
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 11.1.2013 kl. 11:30
Aðeins útgerðin greiðir veiðileyfagjaldið og skv. tölum hagstofunnar fyrir árið 2011 var framlegð fiskveiða 42 milljarðar og hreinn hagnaður fyrir skatta 27 milljarðar.
Fiskveiðar og vinnsla skiluðu árið 2011 saman framlegð upp á 80 milljarða og hagnaði upp á 60 milljarða.
Þessar tölur sem Kristinn notar eru því rangar.
Lúðvík Júlíusson, 11.1.2013 kl. 12:06
Þarf að leiðrétta smá misskilning hjá Lúðvík.
Hann Kristinn er með réttar tölur.
Lúðvík er með rangar tölur.
kv
Sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 11.1.2013 kl. 15:09
Sleggjan og Hvellurinn, þannig að fiskvinnsla borgar veiðileyfagjaldið, jafnvel þó hún eigi enga útgerð og kaupi hráefnið á markaði?
Lúðvík Júlíusson, 11.1.2013 kl. 21:32
Í lögunum(http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=140&mnr=658) segir:
Hér er því aðeins talað um veiðar en ekki vinnslu. Því er það blekkjandi og rangt í umræðunni að nota tölur sem ná yfir bæði veiðar og vinnslu.
Lúðvík Júlíusson, 11.1.2013 kl. 21:42
Jón Bjarnason er hetja.
Loksins að hann sá að einkaframtkið er betra þegar það er ekki yfirskattað. Battnandi mönnum er bezt að lifa.
Þessi kommúnistahugsun að ekkert fyrirtæki meigi sýna hagnað í enda bókhaldsárs fyrirtækis er orðin gömul og dragúldin.
Öfund hefur aldrei gefið góðri lukku að stýra.
Kveðja frá Saudi Arabíu.
Jóhann Kristinsson, 12.1.2013 kl. 03:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.