Mánudagur, 7. janúar 2013
10 ástæður fyrir ESB aðild
1. Lægra matvælaverð á Íslandi
2. Ísland öðlast raunverulegt fullveldi
3. Lægri vextir
4. Evra vs. króna
5. Lægri skólagjöld í breskum háskólum
6. Niðurfelling tolla
7. Erlendar fjárfestingar - aukin atvinnutækifæri
8. Landsbyggðin
9. Stærsta viðskiptablokk í heimi
10. Hugmyndin er góð
Smellið á greinina til að lesa nánar
kv
sleggjan
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll.
1) Nei, við erum nú þegar aðilar að EES og njótum þeirrar aðildar
2) Nei, fullveldi er að ráða sínum málum sjálfur - ekki að leyfa ókjörnum aðilum langt í burtu að véla með okkar mál
3) Lægri vextir eru í besta falli tvíeggjað sverð, af hverju heldur þú að allir hafi hlaðið á sig skuldum um heim allan áður en allt hrundi?
4) Krónan er mun betri fyrir okkur en evran því krónan tekur mið af afstæðum hér, það gerir evran ekki.
5) Finnst þér þetta virkilega næg ástæða til að ganga í ESB?
6) Erum aðilar að EES
7) Sú erlenda fjárfesting sem við höfum fengið hingað hefur nær eingöngu verið frá N- Ameríku, það eru meira eða minna allir á hausnum í Evrópu.
8) Landsbyggðin vill ekki ESB aðild
9) Já, kannski stór viðskiptablokk á pappírunum en viðskipti milli þessara landa eru ekki eins mikil og ætla skyldi.
10) Góð hugmynd að búa til miðstýrt batterí sem er með allt á hælunum fjárhagslega? Framkvæmdastjórnin gerir ráð fyrir 0,1% hagvexti á næsta ári innan ESB sem þýðir raunaukning á atvinnuleysi en það er núna um 11,6%, hefur hækkað um 1,6% stig á einu og hálfu ári - og atvinnuleysið mun aukast enn frekar. Við þurfum að borga með okkur inn í þetta bandalag, hvaða peninga eigum við að nota í það? Við skuldum hrikalega!!
Helgi (IP-tala skráð) 7.1.2013 kl. 21:04
Helgi þú opinberar efnahagslega fávisku þína. Svo betur fer hef ég lært hagfræði í skóla og einni alþjóðaviðskipti þar sem var farið vel í viðskipti innann ESB.
Ég hef oft sagt að 99% Íslendinga skilja ekkert í hagfræði. Og þá tengi ég þetta við þessa occupy hreifinguna.
1. EES nær ekki til landbúnaðarvara. Enda stendur þarna lægra MATVÆLAVERÐ.
2. Með EES samningnum erum við að leiða í lög frá ESB á hverjum degi án þess að eiga fulltrúa.
3. Þú vilt semsagt borga meiri pening til fjármálastofnana útaf góðmennsku? Þú ert einstakur maður. Þér finnst fjármálakerfið Íslenska ekki hafa sogið nógu mikla peninga til sín í hruninu :)
4. Krónan er í höftum og er því ekki að taka mið af aðstæðum hér. Ef það væri rétt þá væri ekkert mál að afnema höftin á morgun og krónan mundi leita jafnvægisgengis miðað við gengisvísitöluna í dag. En það vita allir (vonandi) að svo er ekki.
5. Bretland eru með bestu skóla í evrópu. Top fimm háskólar í evrópu : http://www.forbes.com/pictures/mkl45hlfe/1-university-of-oxford-2/ fjórir af þeim eru í Bretlandi. Þetta er ekki næg ástæða til að ganga í ESB.... en samt fokking góður kostur.
6. Bæti við að EES samningurinn nær ekki til allra vara.
7. Erlendar fjárfestingar frá ESB, USA og annarstaðar mun aukast vegna þess að hér verður öruggt viðskiptaumhverfi með alþjóðlega mynt. Top ástæðan fyrir því að erlend fjárfesting er hér hikandi er vegna gjaldeyrishaftanna.
8. Landsbyggðin hefur ekki kannað kosti byggðarstefnu ESB. Ísland er ekki einusinni með byggðarstefnu og landsbyggðarfólk hafa fækkað gríðarlega seinustu ár sem er mikið áhyggjuefni.
9. Viðskipti innan ESB er gríðarlega mikil.
10. ESB er ekki með allt á hælunum fjárhagslega. En mörg lönd þar inni hafa hagað sínum málum þannig að þau hafa lifað um efni fram. ... ekki ESB að kenna.
Vel flest ESB lönd eru í þokkalegu ástandi. Ísland er í tólfta sæti yfir skuldugustu lönd miðað við hlutafall á landsframleiðslu. Aðeins 4 ESB lönd eru fyrir ofan okkur.
Bandaríkin eru með skuldir sem nema 100% af landsframleiðslu. ESB er með skuldir sem nema 82% af landsframleiðslu meðlimaríkja.
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_future_gross_government_debt
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 8.1.2013 kl. 12:21
Sæll.
Það er aldeilis að þú ferð í fýlu ef einhver er ósammála þér, hnútuköst eru alveg óþörf.
Ég hef enga trú á að þú hafir lært hagfræði eða alþjóðaviðskipti, nema kannski hjá Össuri Skarphéðins. Það breytir engu um það að þú ert án efa hinn ágætasti maður: Orður og titlar úrelt þing - eins og dæmin sanna- notast oft sem uppfylling- í eyður verðleikanna.
Fjölmörgum af þeim atriðum sem ég nefni svarar þú ekki, snýrð út úr eða þú ferð einfaldlega rangt með staðreyndir. Hvers vegna?
99,8% af öllum fyrirtækjum innan ESB er lítil, minni og millistór og veita þau 81,6% vinnandi manna þar vinnu. Bara 8% af þessum fyrirtækjum eiga viðskipti milli innri landamæra ESB.
Eru fjárfestingar innan ESB miklar? ESB segir sjálft að sífellt erfiðara verði að fá fjárfestingar frá löndum utan Evrópu.
Það sem þú segir í nr. 8 er auðvitað alveg með ólíkindum, þú segir stóran hluta þjóðarinnar ekki hafa kynnt sér málin. Þú hefur engin rök fyrir svona málflutningi og hann dæmir sig auðvitað sjálfur. Hefur sjávarútvegurinn t.d. eins og hann leggur sig ekki kynnt sér kosti og galla aðildar? Veit landbúnaðurinn ekkert í sinn haus varðandi ESB?
Er ESB ekki með allt á hælunum fjárhagslega? Endurskoðendur fást ekki til að árita reikninga framkvæmdastjórnarinnar og hafa ekki fengist til þess árum saman. Hvað viltu kalla það? Framkvæmdastjórnin gerir ráð fyrir 0,4% samdrætti í framleiðslu á svæðinu fyrir árið 2012. Hvað viltu kalla það? Atvinnuleysi er 11,6% og hefur aukist eins og ég nefni að ofan. Framkvæmdastjórnin gerir ráð fyrir 0,1% framleiðsluaukningu árið 2013. Hvað er svona frábært við það (ég held að það sé bjartsýni, geri sjálfur ráð fyrir áframhaldandi samdrætti)? Framkvæmdastjórnin hvetur aðildarríki til niðurskurðar en vill svo aukin fjárframlög sér til handa? Hvað viltu kalla það?
Fækkun á landsbyggðinni er ekki áhyggjuefni heldur þróun sem á sér stað. Teldur þú að fækkun söðlasmiða þegar bílar voru að ryðja sér til rúms hafi verið slæm?
Við þurfum að borga með okkur ef við gerumst aðilar, eigum við ekki nóg með okkar eigin reikninga þó ekki sé bætt við útlenskum reikningum að borga líka?
Já, USA eru í vondum málum efnahagslega og þau mál voru nýlega að versna.
Helgi (IP-tala skráð) 11.1.2013 kl. 18:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.