Smá viðbót við annars fína grein hjá Ágústu

Fjögur ljón á veginum:

Feitletrun eru mín orð. Annað er afritað úr fréttinni.

 

1. "Síðasta kvöldmáltíðin"
Þeir sem hafa tekið ákvörðun um að minnka mittismálið byrja oft ekki fyrr en þeir hafa tekið eitt rækilegt loka „sukk“ áður en átakið hefst.
Sem er bara mjög fínt. Missa sig aðeins áður en maður fer í gott átak.  Dæmigert er að nýi lífsstíllinn skuli hefjast á mánudegi eftir heljarinnar átveislu helgarinnar.  Það vill svo oft því miður verða þannig að sama munstrið heldur áfram.  Aðhaldið varir frá mánudegi til fimmtudags og þegar föstudagurinn rennur upp þá halda engin bönd og „nammidagurinn“ dreifist yfir alla helgina. Ekki ef maður setur sér reglur um að gera það ekki. Þetta er ekki eitthvað óstjórnarlegt ferli. Það er ansi hætt við því að vigtin verði í sama rússíbana taktinum ef slakað er á aðhaldinu við hvert tækifæri s.s. jól, páska, afmæli allra í stórfjölskyldunni, saumaklúbbnum og við öll hin hátíðlegu tækifærin sem upp koma.  Það er mun vænlegra til árangurs að njóta þess að borða reglulega fáa og smáa bita af uppáhalds gúmmelaðinu þínu í stað þess að reyna að taka nýja lífsstílinn með trukki og dýfu og springa fljótt á limminu og „detta illilega í það“.

2. Að sleppa morgunmat

Önnur gildra sem margir falla í er að sleppa morgunverði til að fækka hitaeiningum dagsins.  Ótal rannsóknir hafa þó sýnt fram á að fólk sem sleppir morgunverði borðar meira yfir daginn þegar upp er staðið. Það er algjört lykilatriði að borða morgunverð ef þú vilt ná tökum á líkamsþyngdinni.

Ósammála. Aftur, ekkert óstjórnarlegt ferli sem fer í gang þegar þú sleppir morgunmatnum. Þú ræður hvað þú borðar mikið punktur. Ég mæli með að fresta morgunverðinum til kl 11 (fyrir þá sem vakna kl 8).

Mæli með að fara eftir TS Method hjá honum Mark sem er ólympískur þjálfari hér á Íslandi (http://www.tsmethod.com). 4/3 Method kallast þessi aðferð. Ekki borða 4 tíma fyrir svefn. Sofðu í 8 tíma, og ekki borða fyrr en eftir 3 klst eftir að þú vaknar. Það gera 15 klst fasta (4+8+3) sem þú tekur varla eftir. Ekki amarlegt það ef þú vilt létta þig.

Bæti við að það er rugl að það se nauðsynlegt að borða 5-6 sinnum á dag! 3 sinnum er fínt. Snýst um kaloríur inn og ekki borða fyrir svefn. Hef líka heyrt alveg furðulegar staðhæfingar eins og "þú verður að borða til þess að brenna fitu". ?? Hvað segiru við offitusjúkling? Heyrðu vinur, þú þarft að borða aftur til þess að viðhalda brennslunni karlinn.

3. Ofmat á hitaeiningabrennslu

Þú byrjar af krafti í ræktinni og tekur hrikalega vel á því, svitinn lekur af þér og þú ert afskaplega ánægð/ur með þig. Eftir æfinguna finnst þér þú heldur betur hafa unnið fyrir því að fá þér væna próteinstöng eða álíka hressingu.  En ef slík „verðlaun“ koma sem viðbót við aðra fæðu sem þú neytir að jafnaði, eru litlar líkur á minnkandi ummáli.   Árangursríkasta leiðin til að leggja af  er að að auka hreyfinguna jafnhliða því að fækka hitaeiningum að einhverju leyti. 

Algjörlega sammála þessu. 80% af árangri í að minnka fituprósentu er í matarræðinu. Þú tekur hrikalega á því í ræktinni, nærð samt ekki að brenna nema eina pizzusneið í hamaganginum.

4. Að treysta á aðra

Til að ná varanlegum árangri í fitutapi þarf að taka ábyrgð á sjálfum sér.  Ef þú hyggst treysta á vin eða vinkonu til að draga þig alltaf með sér á æfingu og þú situr heima ef hann/hún mætir ekki til að sækja þig, þá er hætt við því að málið falli fljótt um sjálft sig.  Það er vissulega besta mál að hafa æfingafélaga.  En ekki treysta á að hann í blindni, og ekki ætlast til að maki þinn eða aðrir í kringum þig  stoppi þig af ef þú ert að „svindla“ í lífsstílsbreytingunni þinni.  Þú ert þinn eigin gæfu smiður.  Treystu á sjálfa/n þig.

Algjörlega sammála. Allt of mikið er um það að fólk  hættir við að mæta í ræktina út af vinurinn kemst eða nennir ekki. Það er óskiljanlegt.

Best er að fara bara einn ef vinurinn beilar, draga vininn með næsta dag. Setja sér markmið að mæta 3-5 sinnum í ræktina í viku. Ófrávikjanlegt. Engar afsakanir (nema veikindi og slíkt). Tímaleysi er lélegasta afsökunin. Hvað hafðiru mikinn tíma fyrir Facebook daginn sem þú varst tímalaus fyrir ræktina?

 

kv

Sleggjan

 


mbl.is Fjögur ljón á veginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

áhugavert

það er hádegismatur í vinnunni kl 11:30.... ég ætti þá bara að sleppa morgunmatnum og fara beint í hádegismat.

annars fæ ég mer banana og protein shake á morgnanna.  sem er seint talið eitthvað svaklaega slæmt.  250cal sirka

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 7.1.2013 kl. 10:50

2 identicon

Þetta er það sem Mark hjá TS-Method mælir með allavega. Lengja föstuna báðum meginn við svefninn.

Getur prufað einn dag, vera bara í vatninu og grænu te (eða kaffi svart) þangað til hádegið byrjar og sjá hvernig þér fannst þetta.

sleggjan (IP-tala skráð) 7.1.2013 kl. 17:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband