Farið illa með trúaða

Persónulega er mér alveg sama hvort þetta frumvarp verður samþykkt eða ekki.

 

En það er kannski verið að fara illa með þá sem eru mjög trúaðir. Að "færa helgidaga til" er ekki beint hægt í augum trúaðra. Sumir dagar helgidagar eru hvídardagar, sumir krefjast bæna, messu eða annara gjörða og ekki hægt að vera í vinnu á þeim tíma.

 

Ætli Róbert viti að það er ríkistrú hér á klakanum? Við erumí hópi Arabalanda sjá mynd:

Gult þýðir að ríkistrú er í landinu.

Rautt þýðir engin ríkistrú

 Heimild: wikipedia

kv Sleggjan

deetrttt

 

 


mbl.is Hátíðisdagar færðir að helgum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað þýðir grátt?

Einar (IP-tala skráð) 6.11.2012 kl. 03:28

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

óljóst eða engin gögn til

kv

Sleggjan og Hvellurinn, 6.11.2012 kl. 06:26

3 identicon

Í fyrsta lagi er myndin röng, Norðurlönd, Þýskaland, Bretland og meira að segja Elsasshérað í Frakklandi hefur þjóðkirkju (sem sumir kalla ríkistrú).

Hinsvegar geta kristnir vel haldið sínar hátíðir hvort sem almennt frí er eða ekki. Spurning bara um að finna messutíma sem hentar öllum ... og fara svo í vinnuna (eða heim).

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 6.11.2012 kl. 13:22

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

@Carlos

Ég fæ mínar heimildar frá Wikipedia sem er almennt talið góðar heimildir. Þú hinsvegar bendir ekki á neinar heimildir til að styðja mál þitt. Ég verð því miður að hunsa það sem þú segir þar sem það er ekkert á bakvið þetta sem þú ert að segja.

kv

sleggjan

Sleggjan og Hvellurinn, 6.11.2012 kl. 13:32

5 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Að fara illa með trúaða? Ojæja. Skelfing hlýtur hinum ofsatrúuðu þá að líða illa á jólum. Því að nánast það eina sem vitað er með vissu um fæðingu Jesú er það að hana bar alls ekki upp á 25. desember.

Magnús Óskar Ingvarsson, 6.11.2012 kl. 13:48

6 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Einu dagarnir sem þetta á við eru sumardagurinn fyrsti, fyrsti maí, uppstigningardagur, og sautjándi júní.

Þar af er bara uppstigningardagur tengdur kristninni. Hinir eru verkalýðstengdir (sumardagurinn fyrsti og fyrsti maí) og svo þjóðhátíðardagurinn, sautjándi júní.

Sigríður Jósefsdóttir, 6.11.2012 kl. 15:17

7 identicon

Það er ríkiskirkja/ríkistrú í Danmörku, Folkekirken. Stjórnarskrárvarin evangelísk kirkja eins og á Íslandi. Jafnvel þótt lítill minnihluti Dana sé trúaður í raun.

Pési (IP-tala skráð) 6.11.2012 kl. 17:18

8 identicon

Fyrsti maí er mikilsverður dagur fyrir öllum sönnum jafnaðarmönnum. Sá sem ræðst að honum hefur þar með komið út úr skápnum sem authoritarian og fasisti. Þetta eru ekki jafnaðarmenn, heldur ofstækismenn.  

Karl (IP-tala skráð) 7.11.2012 kl. 02:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband