Grunsamlegt

Annaðhvort er Árni eða Mogginn að þiggja laun frá Epli.is

"Apple kynnti á föstudag nýja gerð af iPad, öllu minni en þann sem allir þekkja en ekki síðri. Nýja græjan, iPad Mini, er frábær sem lestölva og ekki síðri til að horfa á vídeó eða vafra um vefinn, skrifar Árni Matthíasson í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Eins og nafnið ber með sér er iPad Mini minni gerð af iPad spjaldtölvunni og skjárinn er 7,9" en á upprunalega iPadinum er hann 9,7". Hann fer líka miklu betur í hendi, það er til að mynda hægt að halda á honum í einni hendi, sem er ekki hægt með hina græjuna, og fyrir vikið er hún frábær kostur sem lestölva, ekki síður ef mann langar að horfa á vídeó. "

"frábær"
"miklu betur"
"frábær kostur"

þetta er bara auglýsing

en það rétta er að Apple er í gríðarlegu áfalli vegna lítils eftirspurnar. Það voru þúsundir manna að bíða í röðum eftir iPhone fimm fyrir mánuði síðan.. um daginnn na´ði það nokkrum tugum í biðröð í Ástralíu. Og þar var heimsfrumsýningin

hvells


mbl.is Loksins kom litla systir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég les alltaf Sunnudagsmoggann. Til varnar mbl þá er "græjuhorn Árna" alltaf í þessum dúr. Hann tekur allskonar græjur og fjallar um það. Hann er eiginlega aldrei með neikvæða umræðu. Fjallar bara um kostina.

Apple vörur sem og aðrar vörur.

kv

sleggjan (IP-tala skráð) 4.11.2012 kl. 18:18

2 identicon

"en það rétta er að Apple er í gríðarlegu áfalli vegna lítils eftirspurnar. Það voru þúsundir manna að bíða í röðum eftir iPhone fimm fyrir mánuði síðan.. um daginnn na´ði það nokkrum tugum í biðröð í Ástralíu. Og þar var heimsfrumsýningin"

Þetta er ekki rétt hjá þér, þar sem hann lenti í 3 sæti yfir fjölda í biðröð fyrir utan búð, þeir sem voru fyrir ofan var 1 iPhone 4 og 2 iPhone 3GS

Jóhann Helgi Ólafsson (IP-tala skráð) 4.11.2012 kl. 18:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband