NEI!

http://eyjan.pressan.is/frettir/2012/11/02/kynjafraedi-verdi-kennd-i-ollum-grunn-og-framhaldsskolum/

Ungliðahreyfing Vinstri grænna vill að kynjafræði verði gerð að skyldugrein í öllum grunn- og framhaldsskólum landsins, en hreyfingin telur að hnignun hafi orðið í jafnréttisviðhorfum ungs fólks á Íslandi.

 

Þetta er ekki fræðigrein, staðreyndir sem langflestir fræðingarnir standast ekki nánari skoðun!

 

plús að þetta er pólítísk skoðun sem á ekki heima í grunnskólum.

 

Kannski er kominn tími á að skipta um ríkisstjórn.

 

kv

sleggjan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Mér finnst allt í lagi að hægt sé að læra kynjafræði sem aðalgrein til BA prófs með því skilyrði að þeir nemar borgi að öllu leyti fyrir sitt nám. Þetta er grein sem á ekki heima í grunnskóla og jafnvel ekki í framhaldsskóla þar sem hún gengur að verulegu leyti út að kenna körlum um allt sem aflaga fer í samfélaginu. Menn þurfa að hafa góðan skammt af gagnrýninni hugsun til að sleppa óskemmdir í gegnum svona fag.

Ríkið á að hætta að moka peningum í háskólanám. Hvað með þá sem kjósa að læra erlendis? Ekki njóta þeir góðs af greiðslum ríkisins til íslensku háskólanna (sem ég veit raunar af eigin reynslu að eru lélegir).

Hvað græði ég á því að borga fyrir menntun lækna t.d? Margir þeirra eru snöggir að láta sig hverfa af landinu eftir útskrift (ekki nema von). Þeir sem fara í háskóla eiga að greiða að öllu leyti fyrir sitt nám. Þá myndu sennilega greinar eins og kynjafræði fljótlega deyja drottni sínum.

Helgi (IP-tala skráð) 4.11.2012 kl. 16:33

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Rétt, þeir sem vilja læra kynjafræði geri það úr sínum eigin vasa án aðstoð frá hinu opinbera.

sll

Sleggjan og Hvellurinn, 4.11.2012 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband