Hlutdrægni evrópskra fjölmiðla um USA

Norski blaðamaðurinn Jan Arild Snoen hélt fyrirlestur um efnið.

 

Smáfuglarnir sögðu:

"Það er oftar en ekki með ólíkindum að fylgjast með fréttaflutningi hérlendis af málefnum Bandaríkjanna. Ótrúlegust er venjulega umfjöllun ríkisins, RÚV, um málefni Bandaríkjanna þar sem ást starfsmanna á landinu leynir sér ekki. Heilu pistlarnir eru fluttir í Speglinum og „fréttir“ sagðar af öllu því neikvæða sem finna má á hverjum tíma. Lítið ef nokkuð fer fyrir jákvæðum fréttum.

Nær flestir miðlar hafa undanfarið flutt neikvæðar fréttir af Mitt Romney forsetaframbjóðanda og láta sem þar fari furðufugl sem enginn styðji á meðan staðreyndin er sú að meirihluti Bandaríkjamanna styðja hann til embættis (naumlega, samkvæmt nýjustu könnun).

Svona mætti áfram telja og efast smáfuglarnir ekki um að Snoen hafi fleiri dæmi á reiðum höndum."

Nokkuð til í þessu. RUV sýndi á dögunum vafasama heimildamynd um Teboðshreyfinguna. Þeim er mjög illa við Repúblikaflokkinn og Romney. Ekki skrýtið að 98% Íslendinga myndu kjósa Obama. Við erum mötuð af einlhiða upplýsingum.

kv

Sleggjan

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er nema von að fólk hati þessa hryðjuverkamenn. USA her eru stærstu hryðjuverkasamtök heims, þau einu sem hafa notað kjarnorkuvopn til illverka og það tvisvar. Enda er mér nokk sama hvor verður kosinn foringi þessa glæpasamfélags.

Trausti (IP-tala skráð) 2.11.2012 kl. 12:41

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Tek ekki undir það sem þú segir Trausti.

En get þót tekið undir að USA eru meiri aggressive en hin meðalþjóð í heiminum í dag.

kv

sleggjan

Sleggjan og Hvellurinn, 2.11.2012 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband