KPMG segir að ferðamönnum muni fækka

KPMG gerðu skýrslu sambandi við skattahækkanir á gistinóttum. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að ferðamönnum muni fækka.

Sleggjan hefur ávallt verið á móti þeirri skoðun.

Velti fyrir mér hvaða forsendur KPMG gáfu sér. Lögmálið um verð og eftirspurn? Verð hækkar: Eftirspurn minnkar. Það er nú bara þannig að stundum á þetta lögmál ekki við. 

 

Stend ennþá við  það að skatturinn skal standa og ferðamönnum mun fjölga samt sem áður. Tíminn mun segja til hvort Sleggjan er að rugla eða ekki.

kv

Sleggjan


mbl.is Ráðlagt að bíða ekki með ferð til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Þessi spá þín er svolítið sérstök. Hvenær eiga þessi lögmál ekki við? Þegar menn geta ekki annað en keypt viðkomandi vöru/þjónustu? Þegar verð hækkar munu aðrir bjóða á betra verði.

Vandinn við þessa spá þína er að hún er næstum því nú þegar röng. Bara þetta tal um hækkun vsk hefur valdið skaða.

Hvernig er annars hægt að styðja það að opinberir aðilar taki enn meira af fé af fólki/fyrirtækjum sem hafa haft mikið fyrir því að vinna sér það inn? Einhvers staðar sá ég að annar hvor ykkar talaði um að vera viðskipta- eða hagfræðimenntaður. Hvernig væri að þið kíktuð á skattframtalið ykkar og athuguð hve mikið af ykkar tekjum fara beint í opinber gjöld. Þá er eftir að telja með skatt á vöru og þjónustu sem þið kaupið. Hið opinbera tekur alltof mikið af verðmætum samfélagsins til sín. Þetta hlutfall er svo hátt að í reynd er fólk hér þrælar hins opinbera!

Ef fólk vill fleiri atvinnutækifæri og hærri laun á það að krefjast þess að opinberum starfsmönnum verið fækkað mikið og opinberar álögur lækkaðar verulega. Fyrr fjölgar störfum ekkert að gagni.

Helgi (IP-tala skráð) 23.10.2012 kl. 19:20

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ég tel einfaldlega að Ísland sé á það mikilli uppleið og er að vekja það mikla athygli þessi misseri að þessi skattur segir ekki neitt.

Ísland er orðinn heitasti ferðamannastaðurinn. "cool".

Lögmálið um verð og eftirspurn er ekki heldur eftir iphone (þannig séð), það er verið að kaupa gæði, og einnig einhverja hugmynd um "cool" og vera maður með mönnum. 

Ísland og Iphone eru svipað "Cool".

Eina sem ég get gert er að endurbirta þessa færslu eftir hálft ár. Og við munum sjá. 

Stay tuned Helgi.

kv

Sleggjan

Sleggjan og Hvellurinn, 23.10.2012 kl. 20:01

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Helgi það er fínt að hafa staðreyndir á hreinu

Fjölgun ferðamanna jókst gríðarleg eftir hrun þegar krónana lækkaði.... ferðamenn eyddu minni pening í evrum talið en það er annað mál.

En ferðamönnum fjölgaði enn meira á árunum 2002-2007 þegar krónan var í hæstu hæðum og allt var dýrt á Íslandi. Þá sérstaklega gistingarnar.

Þannig að fólk fer ekki til íslands vegna verðsins.... við munum aldrei keyppa við lönd vegna verðs... það er bara þannig. Honduras er ódýrasta land í heimi. Þú vilt kannski keppa við það land :)

Fyrsta skef er þá að lækka öll laun á íslandi um 99%

er það draumasýnin?

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 23.10.2012 kl. 21:20

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Þessi skattur bitnar á þeim sem ekki hafa greiðan aðgang að banka-glæpakerfinu. Þar er skekkjan í þessum skatti, að mínu mati.

Þeir sem hafa stritað hörðum höndum fyrir hverri krónu í nýstofnaðri ferðaþjónustu, án þess að bankarnir standi sig í að greiða götu þeirra, munu fara verst út úr þessari skattlagningu. Hákarlar bankanna og lífeyrissjóðanna standa þetta af sér, vegna klíku-aðgangs að fjármagni banka/lífeyrissjóða almennings.

Þetta er óréttlátt kerfi, svo vægt sé til orða tekið.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.10.2012 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband