Mánudagur, 22. október 2012
Sigur fyrir neytendur á Íslandi
Komið var í veg fyrir að sterkur þrýstihópur (ASÍ) setti fram vafasama tillögu.
Afnám verðtryggingar þýðir einfaldlega að valkostir lántakanda fara þverrandi.
Eins og staðan er í dag er um tvennt að velja:
- Verðtryggt lán: Hækkar í samræmi við vísitölu. Á móti kemur að afborganir á mánuði eru lægri en óverðtryggt og vextir lægri. Hentar mjög vel þeim sem hafa litla greiðslubyrði á mánuði.
-Óverðtryggt lán: Breytilegir vextir. Höfuðstóll hækkar aldrei. Greiðslubyrði á mánuði er aftur á móti há. Henntar vel þeim sem hafa meiri fé milli handanna hver mánaðarmót að greiða af lánunum. Lánið greiðist hraðar niður miðað við verðtryggt lán.
Ef fyrsti kosturinn er tekinn í burtu, hafa neytendur eitt val ekki satt?
Höfum val fyrir neytendur. Höfum verðtryggingu sem val. Þeir sem eru á móti henni geta tekið óverðtryggt.
kv
Sleggjan
![]() |
Tillaga um afnám verðtryggingar felld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sleggjan og Hvellurinn. Verðtrygging á neytendalán er ólögleg á Íslandi. Okurvextir ofan á ólögleg neytendalán eru margfaldlega ólögleg á Íslandi.
Læt þetta duga í bili.
Sameinuð og upplýst stöndum við, og sundruð/blekkt föllum við öll, óháð flokkaklíkum.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 22.10.2012 kl. 16:07
Anna, það er einmitt dómsmál um lögmæti verðtryggingar í gangi. Sjáum hvort að lánið verði dæmt ólöglegt eða ekki.
Tek heilshugar með þér sambandi með ólögmæti ef hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu, við búum í réttarríki.
kv
sleggjan
sleggjan (IP-tala skráð) 22.10.2012 kl. 22:33
Sleggjan. Ef hæstiréttur dæmir ólögleg lán réttmæt, þá er eins gott að hlusta enn betur á það sem Jón Steinar Gunnlaugsson hefur að segja um hæstarétt.
Ég hef meiri trú á Jóni Steinari heldur en hæstarétti.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.10.2012 kl. 11:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.