Mánudagur, 15. október 2012
Ekkert að marka þessa könnun.
Þessi könnun var gerð fyrir Heimssýn... sem eru NEI samtök.
Það er ekkert að marka þessa könnun.
Ég veit það bara sjálfur þegar ég tala við fólk þá er vaxandi fylgni við ESB aðild.
hvells
![]() |
Mikill meirihluti andvígur aðild að ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Er eitthvað frekar að marka JÁ samtök?????
Marteinn Unnar Heiðarsson, 15.10.2012 kl. 09:34
Já misjafnt er þetta en ég verð ekki vör við aukningu á fylgji í ESB heldur harðari andstöðu ef eitthvað er...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 15.10.2012 kl. 09:41
Já auðvitað ekki S&H, hún samræmist ekki þinni skoðun, þínum vilja!!!
Tómas Ibsen Halldórsson, 15.10.2012 kl. 09:56
Ég er sammála því að lítið sé að marka þessa útkomu.
það væri furðlegt ef 27% væru þess fýsandi að ganga þarna inn.
17% er nær lagi.
Árni Gunnarsson, 15.10.2012 kl. 09:58
Seinast sem ég vissi er að Heims(k)sýn er ekki hlutlaus samtök
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 15.10.2012 kl. 11:55
Fyrirsögn fréttarinnar er ekki beinlínis nákvæm. Andvígir voru 57,6% af þeim 58,5% sem svöruðu. Það gerir 33,7% þýðisins.
Nonni (IP-tala skráð) 15.10.2012 kl. 12:08
Hvells. Við þurfum ekki áróður til að þroskast. Við þurfum sannleikann í rökræðuformi, ásamt sönnum jafn-réttlátum heimildaupplýsingum.
Því miður hafa síðustu útspil hjá þvingunar-RÚV "allra" landsmanna staðið sig verst af öllum í því mikilvæga og lögboðna hlutverki síðustu daga að flytja óháða fræðslu. Það hefur ekki verið farið eftir lögum hjá þeirri stofnun, sem þvingar landsmenn til að borga fyrir einokunina, hálfsannleikann og blekkingarnar.
Ef við erum sanngjörn, þá gagnrýnum við alla jafnt, og sleppum ekki ríkiselítunni á skattpeninga-jötunni við nauðsynlegt aðhald!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.10.2012 kl. 12:33
Það hefði átt að spurja um leið hvort fólk vill klára viðræðurnar eða ekki.
kv
sleggjan (IP-tala skráð) 15.10.2012 kl. 13:19
Hmm um 41% svarar ekki - það er áhugavert.
Kveðja að norðan.
Arinbjörn Kúld, 15.10.2012 kl. 13:55
Það er heldur ekki sama hvernig spurningar eru orðaðar, í könnun Mbl var spurt hvort fólk vildi ganga inn í ESB og 70% sögðu nei, en þá var spurt: en ef samningurinn er góður fyrir Ísland, þá sögðu 70% JÁ, þannig að ekki er sama hvernig er spurt.
Þorsteinn V Sigurðsson, 15.10.2012 kl. 17:59
Hvað segirðu er vaxandi fylgi við aðild hjá þeim sem þú talar við?
En er það ekki allt saman fólk sem hefur lengi verið fylgjandi aðild?
Ég finn svo sem að sama skapi fyrir auknum þunga í andstöðu við aðild, ekki síst meðal þeirra sem eru henni andvígir!
Just sayin'... ;)
Guðmundur Ásgeirsson, 15.10.2012 kl. 19:52
Rétt hjá guðmundi, engin vísindaleg nálgun það sem maður sjálfur umgengst dags daglega.
kv
sll
Sleggjan og Hvellurinn, 16.10.2012 kl. 13:57
Sleggjan. Já, það hefði átt að spyrja þjóðina, sem er EES-bankarænd, hvort hún vilji ganga í heilagt og órjúfanlegt EES-ESB-hafta-band!
Evrópski seðlabankinn kann ekkert annað en að svindla og ræna! Ég finn mikið til með heiðarlegum almenningi sem er í EES/ESB-þvingunar-bandalaginu "friðsamlega".
Mín samúð með bankarændum Evrópubúum/heimsbúum er landamæralaus.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.10.2012 kl. 15:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.