Miðvikudagur, 19. september 2012
Engin óvissa
Það er engin óvissa með flugvöllin. Hann er á förum.
Það var farið fram íbúðarkosning í Reykjavík og meirihlutinn vildi flugvöllinn burt.
Það hefur verið teiknað skipulag og staðfest íbúðarbygging í Vatnsmýrinni.
Til staðfestingar komu Gísli Marteinn og Hjálmar í Kastljós í gær til þess að draga úr öllum vafa
http://www.ruv.is/sarpurinn/kastljos/18092012/nytt-skipulag-fyrir-hafnarsvaedid
Hvet fólk til þess að skoða þetta myndband.
Þetta er fólk i stjórn OG stjórnarandstöðu... sammála. Sem gerist ekki oft.
hvells
![]() |
Vilja eyða óvissu um flugvöllinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ef Reykvíkingar telja að flugvöllurinn fari eitthvað annað er það eðlileg krafa landbyggðarinnar að nýr landsspítali verði byggður á þeim stað sem nýr flugvöllur mun verða. Þetta er jú LANDSSPÍTALI.
Ráðsi, 19.9.2012 kl. 09:13
Nei það væri ekki eðlileg krafa.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 19.9.2012 kl. 09:58
Ef þú ert að tala um sjúkraflug þá verður þyrlupallur á nýja landsspítalanum.
málið dautt
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 19.9.2012 kl. 10:00
Þyrlur eru ekki notaðar við sjúkraflug úti á landi nema þegar lenda þarf utan flugvalla. Sjálfur hef ég reynslu af því að þurfa að fara með mína nánustu í sjúkraflugi til Rvk. og skipti sköpum vegalengdin frá flugvelli að sjúkrahúsi. Þannig að málefni flugvallarins er ekki einkamál þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu.
Ráðsi, 19.9.2012 kl. 11:05
Það verður fundið góð lausn á sjúkrafluginu þannig að almenningur þarf ekki að hafa áhyggjur af því.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 19.9.2012 kl. 11:13
Jú ætli það ekki
Ráðsi, 19.9.2012 kl. 11:21
Bara ef allar netumræður enduðu svona haha.
kv
sleggjan (IP-tala skráð) 19.9.2012 kl. 18:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.