Fimmtudagur, 6. september 2012
Árás á fjármálafyrirtæki, eignarétt, réttarríki og almenna skynsemi.
Stefna Dögun er eftirfarandi:
Dögun – samtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði sem bjóða munu fram í næstu alþingiskosningum og leggja áherslu á brýna hagsmuni almennings, hafa sammælst um neðangreindan stefnuramma. Öllum sem fallast á forgang þessara mála er boðið til þátttöku.
Við leggjum áherslu á að hrinda í framkvæmd mikilvægum hagsmunamálum þjóðarinnar og að verða það breytingaafl sem íslensk stjórnmál skortir svo mjög.
Öflugar aðgerðir í þágu heimila
Leysa verður skuldavanda heimilanna með róttækum hætti og bæta aðstöðumun almennings gagnvart fjármálavaldinu. Leita skal lausna á forsendum lántakandans frekar en lánveitandans. Við viljum tafarlaust afnám verðtryggingar á neytendalánum og almenna leiðréttingu húsnæðislána. Þá viljum við að lágmarks framfærsluviðmið verði lögfest og að vextir í landinu verði hóflegir.
Lýðræðisumbætur – Ný stjórnarskrá
Ný stjórnarskrá fólksins komi sem allra fyrst til þjóðaratkvæðis. Við teljum frumvarp Stjórnlagaráðs mikilvægt skref í átt til virkara lýðræðis og að þjóðin eigi að fá að kjósa um það. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja tafarlaust með lögum eftirfarandi rétt almennings: Persónukjör samhliða flokkakjöri. Kjósendur hafi rétt til að kjósa á milli einstaklinga og framboðslista. Þjóðaratkvæðagreiðslur óski 10% kjósenda þess. Íbúar kjördæma eða sveitarfélaga geti átt frumkvæði að atkvæðagreiðslu um sameiginleg hagsmunamál svæðisins óski 10% kjósenda þess. Sjálfstæði sveitarfélaga verði aukið og nálægðarreglan í heiðri höfð. Ákvarðanir verði teknar á því stjórnsýslustigi sem næst er málinu sjálfu.
Skipan auðlindamála og uppstokkun á stjórn fiskveiða
Orkufyrirtæki verði í eigu ríkis og / eða sveitarfélaga og nýting allra náttúruauðlinda til sjávar og sveita skal vera sjálfbær. Auk þeirra breytinga sem ný stjórnarskrá að forskrift Stjórnlagaráðs hefur í för með sér fyrir skipan auðlindamála er nauðsynlegt að stokka upp stjórn fiskveiða frá grunni. Tryggja þarf aðskilnað veiða og fiskvinnslu og að jafnræði ríki meðal landsmanna við nýtingu á sameiginlegum fiskveiðiauðlindum. Hámarka skal arð þjóðarinnar af auðlindum hennar. Virða skal álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Allur ferskur fiskur skal seldur á fiskmörkuðum.
Siðvæðing stjórnsýslu og fjármálakerfis
Bæta ber siðferði og auka gegnsæi í stjórnmálum, stjórnsýslu og fjármálakerfinu. Nauðsynlegt er að þessir aðilar vinni eftir skýrum siðareglum. Lög verði yfirfarin með því markmiði að fyrirbyggja spillingu og herða viðurlög við henni. Tryggður verði aðgangur almennings að öllum gögnum sem opinberir aðilar safna eða standa straum af. Þann aðgang má aðeins takmarka með lögum í lýðræðislegum tilgangi, svo sem til að tryggja persónuvernd. Komið verði í veg fyrir óeðlileg völd sérhagsmunaaðila og skilið á milli stjórnmála og viðskiptalífs. Bankaleynd skal afnumin að undanskildu því sem lög um persónuvernd kveða á um. Tryggt verði að eftirlitsstofnanir ásamt efnahags og viðskiptanefnd Alþingis hafi ávalt fullar rannsóknarheimildir gagnvart fjármálafyrirtækjum.
Lagalegt réttlæti og afdráttarlaust uppgjör við hrunið
Gera þarf ráðstafanir til að endurheimta illa fengið fé aðalgerenda í svonefndri útrás og höfða skaðabótamál á hendur þeim. Samfélag þar sem glæpir borga sig er ekki hægt að sætta sig við. Ganga þarf sérstaklega eftir því að sinnt verði brýnum rannsóknarefnum sem ætla má að hinir gamalgrónu stjórnmálaflokkar séu tregir til að láta rannsaka. Tryggja þarf góð starfsskilyrði sérstaks saksóknara og annarra sem koma að rannsókn efnahagsbrota í tengslum við Hrunið. Almenningur hafi aðgang að öllum upplýsingum sem rannsakendur Hrunsins afla, enda séu ekki sérstök rök fyrir því að halda þeim leyndum. Öllum skal gert kleift að leita réttar sins og verjast fyrir dómstólum, óháð efnahag.
Evrópusambandið
Við leggjum áherslu á opið og lýðræðislegt ferli, óháða upplýsingagjöf og fræðslu og treystum þjóðinni til að ráða niðurstöðunni. Ef aðildarviðræðum verður ekki lokið fyrir samþykkt nýrrar stjórnarskrár og þjóðin ákveður að hætta aðildarviðræðum í samræmi við 66. grein frumvarps Stjórnlagaráðs, munum við styðja þá niðurstöðu. Að öðrum kosti verði aðildarviðræður við Evrópusambandið kláraðar og niðurstaðan borin undir þjóðaratkvæði.
hvells
![]() |
Fara í kjördæmaferðir í ríkisstjórnarrútu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Í stuttu máli popúlismi.
Svo ef í stjórn er komið þá kemur væntanlega realismi og allt svikið.
sleggjan (IP-tala skráð) 6.9.2012 kl. 20:54
Allt það góða sem fólk vill gera er kallað populismi. Það er eitt ofnotaðasta orð sem til er í íslenskri tungu. Það er von að ný framboð eigi erfitt uppdráttar með svona sleða með svona áherslur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.9.2012 kl. 13:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.