Sammála leiðarahöfundi Moggans, aldrei þessu vant

Þeir sem hafa ekki ráð að lesa leiðarann birtist hann hér:

Dýrkeyptur Rétttrúnaður

 Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur farið fyrir sáttaumleitunum fylkinga, sem tortryggja og hata hverjar aðrar, í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs, frá því hann hvarf úr innanlandsstjórnmálum. Hann sagði nýlega að „Vesturlönd væru sem svefngenglar í afstöðu sinni til íslamskra öfgamanna“. Margt bendir til að þessi orð Blairs séu engar ýkjur.

Í augnablikinu hefur hinn stjórnmálalegi rétttrúnaður snúist þannig í heiminum að rétt sé og skylt að sýna pólitískum tilvísunum öfgasinnaðra íslamista í trúarrit sín ekki aðeins eðlilega virðingu heldur ríkt tillit sem gengur miklu lengra. Slík tilvísun er talin boðleg skýring og jafnvel afsökun fyrir athöfnum, áreitni og jafnvel beinum árásum. Á sama tíma er vaxandi krafa um umburðarlyndi gagnvart þeim sem gera hríð að kristinni trú og þeim sem hana aðhyllast, og þrengt er svigrúm kristinna til að halda sínum sjónarmiðum á lofti opinberlega.

Þessari þróun til afsökunar er því gjarnan haldið á lofti að áður hafi hallinn verið allur á hina hliðina, og „leiðréttingin“ lúti lögmálum pendúlsins sem sveiflist nú rækilega yfir miðjuna. En smám saman muni draga úr kasti hans. Ekki er víst að sú líking eigi endilega við um þessa þróun. Þá er lítill efi á að andstaða í garð Ísraelsríkis fer vaxandi á Vesturlöndum og er að nálgast að fá stöðu stjórnmálalegs rétttrúnaðar. Réttur gyðinga til tilveru þar, svo ekki sé minnst á til ríkis, er dreginn í efa af meiri ákafa en fyrr, ár frá ári og margvíslegum bábiljum er haldið á lofti eins og um óyggjandi staðreyndir væri að ræða.

Ekkert er gert með ábendingar um að Ísrael hafi haldið fast við lögmál lýðræðisins þrátt fyrir að landið búi nánast við eilíft stríðsástand þar sem nágrannaþjóðir neiti að viðurkenna tilveru þess eða hafi uppi heitingar um að ýta gyðingaþjóðinni á haf út. Afstaða Íslands til stöðunnar í þessum eldfima heimshluta hefur umturnast án þess að nokkur raunveruleg umræða, hvað þá djúp, hafi farið fram um þá stefnubreytingu. Ísland skipar nú stöðu við hlið Hamas-hreyfingarinnar, rétt eins og lögmæti hennar sé annað og betra en Ísraels.

Íslenska utanríkisráðuneytið er á miklu niðurlægingarskeiði um þessar mundir. Faglegri forystu þess í utanríkismálum er fjarri því að vera treystandi eins og iðulega er undirstrikað með ótrúlega einfeldningslegum skýringum á sjónarmiðum Íslands og afstöðu til einstakra þátta utanríkismála. Auðvitað hlýtur stór þáttur þess hve illa er komið að færast á óburðuga og lélega leiðsögn. En stundum er eins og sakleysisleg einfeldni fremur en alþjóðlegt reynsluleysi ráði för í þessu mikilvæga ráðuneyti.

En einfeldni í bland við stjórnmálalegan rétttrúnað er einkennandi víðar í stjórnkerfinu um þessar mundir. Afstaðan til „flóttamanna“, sem virðist vera eitt af þessum „inn“-málum, er dæmi um þetta. Hingað koma „flóttamenn“ sem lýsa því yfir í sjónvarpi, eins og einn þeirra gerði að hann hafi upphaflega flúið „drykkfelldan föður“ í Alsír og hafi haldið til í fjölmörgum löndum Evrópu áður en hann „flúði“ til Íslands.

Samningar sem Ísland er aðili að eru skýrir. Þeir segja að senda eigi slíka „flóttamenn“ án ástæðulausrar tafar til þess staðar sem þeir komu síðast frá. En það gengur gegn tískunni og pólitíska rétttrúnaðinum að fylgja umsömdum reglum.

Flóttamennirnir koma sumir á fölskum skírteinum og það þykir siðferðislegur glæpur að mati háttsettra embættismanna að neita að trúa því að þeir séu börn! Öll þessi mál eru komin í miklar ógöngur og Útlendingastofnun er að bresta undan þeim.

Nýlega brutu tveir „flóttamenn“ sér leið inn í íslenska þotu í Keflavík með miklum kostnaði og álitshnekki fyrir alla sem urðu fyrir því. Svo sagði í fréttum: „Þeir komu báðir til landsins í apríl, annar með Norrænu til Seyðisfjarðar en hinn með flugi í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Frá þeim tíma hafa þeir verið nokkuð til umfjöllunar í fjölmiðlum, en við komuna til landsins þóttust þeir vera börn að aldri en aldursgreining hjá lækni bendir til annars. Þeir voru síðan handteknir tvisvar í júní við tilraunir til að komast um borð í millilandaskip í Reykjavíkurhöfn, þá voru þeir teknir um borð í flugvélinni á Keflavíkurflugvelli og einu sinni eftir það við að reyna að komast um borð í skip í Reykjavík. Þá er annar mannanna grunaður um aðild að tveimur þjófnuðum frá því hann kom til landsins.“

Íslensk flugfélög og flugyfirvöld gæta sín afar vel á því að fljúga ekki með óvelkomna til Bandaríkjanna vegna hárra sekta og óþæginda sem þau verða fyrir ef slíkt gerist. Hver eru viðbrögðin hér ef ferðaaðilar eru ekki gætnari en þeir eru gagnvart óvelkomnu fólki hingað sem kostar almenning offjár?

 

Tek algjörlega undir þetta.

Svo gerir DV mál úr þessu:

http://www.dv.is/frettir/2012/7/25/morgunbladid-hjolar-i-flottamenn/

Skoðið sérstaklega athugasemndirnar sem fylgja fréttinni. 

Algjörlega samkvæmt fyrirsögninni á leiðaranum "rétttrúnaður". 

 Fólkið lýsir svo mikilli vanþekkingu á Ísrael. Vanþekkingu á Palestínudeilunni. En almennt færir það engin rök fyrir máli sínu.

kv

sleggjan

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

sammála þessu einnig.

sleggjan er að gera vel að halda þessum málstað uppi með röksemi og visku.

mikilvægt innlegg í umræðuna.

ekki síst í bloggheimum þar sem réttrúnaðurinn og líðsrumið ræður ríkjum

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 26.7.2012 kl. 00:11

2 identicon

Sælir félagar.

Gott hjá ykkur að vekja athygli á þessu.

Mér finnst merkilegast að einn stóru fjölmiðlanna skuli taka þetta mál upp og einhver þar sem virðist hafa snefil af þekkingu á málinu. Það verður að segja það sem segja þarf um Íslam og villimennskuna sem þar tíðkast. Heldur einhver að staðan í íslömskum ríkjum sé tilviljun ein? Þeir eru mjög aftarlega á merinni í fræðastörfum og lífsgæðum og lunginn af íslömskum ríkjum fer afar illa með stóran hluta íbúa sinna.

Afstaða okkar í Mavi Marmara málinu var okkur til ævarandis skammar og þeim þingmönnum sem opnuðu munninn í því máli - sérstaklega þar sem þeir tjáðu sig án þess að þekkja málsatvik. Það hefði kannski tekið þessa aðila 10 mínútur að kynna sér málin! Ég varð fyrir sérstökum vonbrigðum með Sjallana í því máli - þingmaður eftir þingmann blaðraði bara út í loftið. Er nema von að hér sé kreppa? Þekking þeirra á efnahagsmálum er greinilega álíka lítil.

Össur sýnir trekk í trekk að hann er einstaklega illa að sér í flestum mikilvægum málum og/eða ófær um að draga af þeim skynsamlegar ályktanir.

Helgi (IP-tala skráð) 26.7.2012 kl. 08:06

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það verður varla sagt að "umræðan" við þessa frétt á dv.is sé vitsmunaleg. Þar virðist helsta sökin vera að hægt er að tengja leiðarann við Davíð Oddson.

Enginn, ekki einn einasti þeirra sem þar gerir athugasemd, tekur sjálft málið fyrir. Einungis er ráðist á boðberann.

Gunnar Heiðarsson, 26.7.2012 kl. 08:54

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Fólk getur vissulega haft mismunandi skoðanir á þeim málum sem fram koma í leiðaranum, en það hlýtur að mega ræða þau!

Er það sökum þess að fólk er eitthvað viðkvæmt fyrir þessum málum sem það vill hafa þau tabú, eða er það af einskæru hatri á DO sem veldur því að fólk ritar svona óhróður sem birtist í athugasemdum við fréttina á dv.is.

Gunnar Heiðarsson, 26.7.2012 kl. 08:58

5 identicon

Þarna hittir leiðarahöfundur marga nagla á höfuðið.  Viðbrögðin við leiðaranum varpa skýru ljósi á fasíska skoðanakúgun sem viðgengst hjá handhöfum "réttlætisins og sannleikans".  Fjöldamorðinginn Breivik er dreginn inn og jafnvel Hitler kallaður til úr helvíti.

Einhver vesalingur lýsir þar vonum sínum til þess að Íranir hendi nokkrum bombum á Ísrael og útrými þessu helvítis ríki.  Þetta hefur engin áhrif á gaggandi PC hýenurnar sem halda fram engum rökum frekar en fyrri daginn heldur háværu heimskuhjali um innræti og geðheilsu þess sem þorir að anda á íslam og undanlátssemina gagnvart því.

imbrim (IP-tala skráð) 26.7.2012 kl. 11:16

6 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ísrael er mesta mannréttindarýki, lýðræðisríki á þessu svæði.

Þar lifa múslimar við bestu lífsgæði (miðað við nágrannaríkin Jordan, Sýrland, Egyptaland, Líbanon).

Kristnir og Gyðingar eiga ekki erindi í múslimalönd, verða í lífshættu.

Í nýstofnuðu Palestínuríki (sem hefur ekki orðið, en Össur vill það). Heldur einhver að það muni ríkja lýðræði? Munu Kristnir Palestínumenn eiga goðar stundir? Munu "settlers" gyðingar þurfa að flýja eða meiga þeir lifa goðu lífi? efast um það!

kv

sleggjan

Sleggjan og Hvellurinn, 26.7.2012 kl. 22:49

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Aðeins einn dauðadómur hefur verið framfylgdur í Ísrael. Það var alræmdur SS Nasisti.

En í múslimalöndum er dauðasök að skipta um trú

Er það ekki solid Össur?

Sleggjan og Hvellurinn, 27.7.2012 kl. 05:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband