Sunnudagur, 1. júlí 2012
Áfall fyrir Ólaf.
Niðurstaða kosningana hlítur að vera gríðarlegt áfall fyrir ólaf. Þegar við tökum kosningaþáttökuna inn í tölurnar þá eru ekki nema þriðjungur þjóðarinnar á bakvið þennan dreng.
Ólafur hlítur í ljósi þess að íhuga stöðu sína mjög alvarlega og segja af sér í kjölfarið. Það er greinilegt að þjóðin er ósátt við framgöngu hans í útræðisgeðveikina og allar fálkaorðunrar sem hann veitti mönnunum sem settu þjóð okkar á hausinn.
Ólafur verður helst minns fyrir það glapræði sem almenningur er að borga fyrir á hverjum degi. t.d þarf fólk að bíða í biðröðum fyrir utan fjölskilduhjálp Íslands til þess að betla um mat.
Þetta er sorglegt ástand í dag og Ólafur hlítur að íhuga stöðu sína mjög alvarlega.
hvells
![]() |
Vantraust á stjórnmálaforystuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
heyrðu sleggjupungur, ef að fólk er svona ósátt við Ólaf, afhverju kaus það þá ekki bara t.d. Þóru til að baula honum í burtu. Það voru upphaflega 7 og síðar 6 frambjóðendur til boða og hann fékk fleiri atkvæði en þau öll hin til samans.
valli (IP-tala skráð) 1.7.2012 kl. 14:06
Æi bregður fyrir tárum á hvarmi pistlaskriafara. Lýðræðið sigraði.
Númi (IP-tala skráð) 1.7.2012 kl. 14:12
Það er ákveðinn hópur stuðningsfólks stjórnvalda sem heldur að með því að tyggja sömu vitleysuna aftur og aftur að þá breytist vitleysan í sannleika. Núna er búið að gera út hóp af fólki eins og Sleggjuna/Hvell sem á að reyna að tyggja vitleysuna ofan í okkur. Líklega er um einskonar heilaþvott að ræða, það eru tveir hundar látnir gelta (Ólína Þorvarðar og Björn Valur) og svo apa þeir heilaþvegnu / dáleiddu vitleysuna upp eftir þeim.
Það sem þetta fólk virðisti ekki átta sig á að það er til fullt af góðu vinstra fólki sem er búið að snúa algjörlega baki við stjórnvöldum því það tekur lýðræði og skynsemi framyfir þessa vitleysu.
Björn (IP-tala skráð) 1.7.2012 kl. 14:33
Þeir sem kusu Ólaf til að vera á móti ríkisstjórninni stigu feilspor.
Ekki nema 10 manuðir eftir af kjörtímabilinu, svo verður skipt um ríkisstjórn.
Þá er Ólafur 4 ár sem forseti og næsta ríkisstjórn þarf að díla við það.
kv
Sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 1.7.2012 kl. 14:45
Sælir; Sleggju / Hvellir, og aðrir ágætir gestir, ykkar !
Hvellur og Sleggja !
Bið ykkur eins; auðmjúklegast.
Í Guðanna bænum. Farið ekki í kerfi; þó Helvítis krata hjörðin, hafi farið út af sporinu, hvað Bessastaða setur, frænda míns Gríms heitins Thomsen snertir, ágætu drengir.
Annarrs; þakka ég enn, fyrir þá ákvörðun mína, frá árinu 1977 (fékk kosningaréttinn, árið 1980), að hafa aldrei tekið þátt, í nokkrum Forseta kosningum - og mun aldrei gera.
Embættið; er 75 prósentum dýrara, en hæfir mannfjölda, í landinu, piltar.
Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.7.2012 kl. 15:08
@óskar
óánægjan þín kemst betur til skila ef þú hefðir skilað auðu í öll þessi ár frekar en að sitja heima
kv
sll
Sleggjan og Hvellurinn, 1.7.2012 kl. 15:14
Sælir; á ný !
Sleggja !
Gildir einu; gildir einu, ágæti drengur.
Mé þykir engin minnkun að, að vera már sjálfum samkvæmur, í þessum efnum - sem öllum öðrum, svo sem.
Ekki síðri kveðjur - hinum fyrri, vitaskuld /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.7.2012 kl. 15:55
Mér; átti að standa þar, að sjálfsögðu. Afsakið; flótfærni, nokkra.
ÓHH
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.7.2012 kl. 15:56
Ég er svoleiðis handviss um að Ólafur er ákaflega miður sín og mun án efa segja af sér í fyrramálið. Þetta nær ekki nokkurri átt.
H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 1.7.2012 kl. 16:41
Samkvæmt þinni aðferðafræði, ætti hlítur núverandi ríkistjórn
að hafa þurft fyrir margt löngu íhuga stöðu sína mjög alvarlega,
þar sem hún hefur aðeins 42,3% atkvæðabærra manna
Andrés Ingi (IP-tala skráð) 1.7.2012 kl. 17:03
stór munur á að skila auðu og sleppa að mæta á kjörstað.
Sleggjan og Hvellurinn, 1.7.2012 kl. 20:35
Ólafur fékk 53% eða meirihluta greiddra atkvæða. Þeir sem kusu ekki gerðu atkvæði okkar hinna sem kusum verðmeiri. Að reikna þá með í einhverri talnaleikfimi er í besta falli plástur fyrir tapsára.
Steinarr Kr. , 2.7.2012 kl. 21:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.