Fimmtudagur, 24. maí 2012
ESB er með lausnina fyrir Ísland.
Eina trúverðuga leið okkar Íslendinga útur höftunum er í gegnum ESB aðild. Flestir Íslendingar eru farnir að átta sig á því.... þá sérstakelga NEI sinnar því þeir eru orðni hræddir. Eina sem þeir geta sagt er "áróður" eða "lygar".. sorglegt. Engin efnisleg rök.
En við Íslendingar fögnum þessu og hlökkum til að losna við gjaldeyrishöftin og þann skaða sem þau valda á hverjum degi.
hvellurinn
![]() |
ESB vill skoða gjaldeyrishöftin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Enga trú á þessu. Ekkert fjárans esb hér.
GB (IP-tala skráð) 24.5.2012 kl. 09:02
NEI sinnar eru greinilega orðin nokkuð hrædd við góðan samning.
hvellurinn
Sleggjan og Hvellurinn, 24.5.2012 kl. 09:03
Samningur kemur þessu ekkert við.. En hver er lausnin á gjaldeyrishöftunum, sem þú nefndir í fyrirsögninni??????????????? Þú segir ekki frá neinni lausn.................
Jóhann Elíasson, 24.5.2012 kl. 09:40
Sleggjan og Hvellurinn, það er eitt sem mig langar að segja við ykkur og það er að það skýn hræðslan út úr ykkur ESB sinnum vegna þess að þið þorið ekki einu sinni að horfast í augu við að meirihluti Þjóðarinnar vill ekki í ESB...
Hræðsla segi ég vegna þess að ef það væri einhver skynsemi í hugsun og aðgerðum hjá þessari Ríkisstjórn þá hefði hún farið eftir því sem meirihluti Þjóðarinnar vill í þessu...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 24.5.2012 kl. 10:02
ingibjorg
ég er hlutlaus í esb málum. Leiðinleg umræða hér á landi, algjör ofsafarsi út í loftið.
kv
sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 24.5.2012 kl. 10:05
Nú þykist ,,Sleggjan og Hvellurinn,, vera tvær manneskjur,þvílíkur bullukollur sem þessir/þessi síðuskrifari er,en hann er stundum fyndinn greiið.
ESB er lausnin fyrir Ísland ritar hann hér ofar,sko einsog ég sagði hann getur verið fyndinn þessi síðuskrifari,,,Sleggjan/Hvellurinn.
Númi (IP-tala skráð) 24.5.2012 kl. 10:31
Hvellurinn er hlynntur aðild að ESB (ef við gefum okkur að við fáum hagstæðan samning)
Sleggjan er meira skeptískur þegar kemur að ESB.
hvellurinn
Sleggjan og Hvellurinn, 24.5.2012 kl. 10:39
ÉG hef verið hlyntur aðildarumsókn, en það er flestum orðið ljóst að ríkisstjórnin er búin að klúðra þessu eins og öllu öðru.
Við erum ekkert á leið þarna inn.
Ég er ekki á því t.d. að við förum að taka þúsund miljarða króna lán til að losa um þessa svokölluðu jöklabréfasnjóhengju.
Það hljóta allir að sjá að þessi áætlun ríkisstjórnarinnar er algerlega galin.
Sigurður #1 (IP-tala skráð) 24.5.2012 kl. 12:00
Sammála Sigurði með jöklabréfin.
Eigendur þurfa að taka áhættuna. Þau ákváðu að fjárfesta í krónum (minnsti gjaldmiðill heims).
kv
sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 24.5.2012 kl. 18:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.