Fimmtudagur, 12. apríl 2012
Þeir sömu og sögðu....
Advice, Indifence, kjosum.is og fleiri NEI sinnar vildu ekki samþykkja Icesave samninginn og töldu best að leysa málið fyrir dómstóla.
Það eru sömu aðilarnir og eru núna skíthræddir við dómstólana sem þeir mældu með fyrir stuttu.
Þetta er alveg ótrúlegt.
hvellurinn
![]() |
Styðja eindregið sjónarmið ESA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Mikið eigiði nú bágt kratarnir, vera svona miklir aumingar
Örn Ægir (IP-tala skráð) 12.4.2012 kl. 21:19
Þú ert nú ekki mjög eftirtektarsamur Örn
"Sleggjan og Hvellurinn
Tveir efasemndamenn með skoðanir. Annar er í Sjálfstæðisflokknum og hinn er óflokksbundinn."
Páll (IP-tala skráð) 12.4.2012 kl. 21:27
Sleggjan og Hvellurinn,virðast vera orðnir lafhræddir við ægivald ESB-klíkuveldisins.
Númi (IP-tala skráð) 12.4.2012 kl. 21:49
Sleggjan hefur ekki gert upp ESB hug sinn.
Hvellurinn styður ESB aðild.
Það ætti kannski að koma fram í blogglýsingunni. Við ræðum málið yfir sleggjuhvellarkaffi.
kv
sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 13.4.2012 kl. 00:02
Það komu einnig margir lögfræðingar fram og sögðu að best væri að leysa ágreining í dómssal. Einsog siðaðir menn.
En eru núna lafhræddir.
hvellurinn
Sleggjan og Hvellurinn, 13.4.2012 kl. 09:25
Fyrir réttu ári sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, að Holland og Bretland hefðu ekki nokkurn áhuga á að fara með IceSave fyrir dómstóla. Þjóðin trúði plötuslagaranum og kollega hans, Ólafi Ragnari Grímssyni. Felldi samninginn í þjóðaratkvæði. Nú er málið komið fyrir EFTA-dómstólinn, þrátt fyrir hina þjóðrembdu spá. Samt fara menn upp á háa sé út af aðild Evrópusambandsins að málaferlunum. Telja alla anga málsins vera óréttmæta. Allir eru vondir við litlu, sætu Íslendingana. Er ekki kominn tími til, að fólk dragi ofurlítið niður í þjóðrembunni og taki sönsum? Þjóðin valdi sjálf að fara þessa leið.
sll
Sleggjan og Hvellurinn, 13.4.2012 kl. 10:18
Það er framkvæmdastjórn ESB sem ætti að vera skíthrædd.
Ákvörðun hennar um að fleygja sér á sjálfseyðingarhnappinn er með öllu algjörlega óskiljanleg.
Guðmundur Ásgeirsson, 13.4.2012 kl. 16:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.