Mánudagur, 13. febrúar 2012
Evrópustofan mun gæta hlutleysis.
Það er enginn áróður á Evrópustofu.
" tilgangurinn sé að aðstoða Evrópusambandið við að auka þekkingu og skilning á Evrópusambandinu á Íslandi og til að varpa ljósi á tengsl Íslands og ESB, samningaferlið sjálft og mögulegar afleiðingar aðildar fyrir Íslendinga."
Það er veriða að upplýsa þjóðina um mögulegar afleiðangar aðildar.
Það er ekki verið að "afla aðild fylgis" einsog margir halda
hvells
![]() |
Rangur hattur á ráðuneyti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hvernig er það annars... hefur einhverjum tekist að finna eitthvað á vef stofnunarinnar um peningamál eða fjármálakerfið? Ég benti nefninlega á að þetta vantaði strax við opnun vefsins, svo starfsmenn þar tóku sannanlega eftir, en ekki er að sjá að þeir hafi gert neinar úrbætur á hinni meintu upplýsingagjöf eða skorti þar á. Leit á vef stofnunarinnar að orðinu "evra" gefur eina niðurstöðu, sem segir okkur það sama og við vissum, að evran er sameiginlegur gjaldmiðill evruríkjanna. Leit að orðinu "peningamál"gefur líka eina niðurstöðu, þar sem kemur fram eins og við vissum, að evrópski seðlabankinn sjái um framkvæmd peningastefnu á evrusvæðinu. Leit að orðinu "gjaldmiðill" gefur enga niðurstöðu, ekki heldur orð eins og "vextir", "verðtrygging", "neytendalán" og ekki einu sinni "húsnæðislán". Á vef Evrópustofu er þannig EKKERT að finna sem gæti varpað ljósi á þá falskenningu að innganga í ESB og upptaka Evru muni einhvernveginn leiðrétta þá kerfisvillu sem stafar af verðtryggingu neytendalána.
Evrópustofa á reyndar nokkuð lof skilið fyrir að gera ekki tilraun til ósanninda. En talsvert vantar upp á að á vefsíðunni sé að finna einhverjar upplýsingar sem raunverulegu máli skipta. Útlits- og ímyndarhönnun er þó með ágætum.
Guðmundur Ásgeirsson, 13.2.2012 kl. 20:42
Evrópustofan er nýbyrjuð á á eflaust eftir að tækla þetta mál.
Svo er gott ráð að kíkja í kaffi til þeirra og spjalla því þetta er ekki bara netsíða og líklegt að það sé hægt að nálgast betri upplýsingar með því að mæta á staðinn.
hvellsSleggjan og Hvellurinn, 13.2.2012 kl. 22:44
mín reynsla af svona síðum er að leitarvelin er mjög léleg og ekki tæmandi þegar skrifað er "evra".
Google þarf að segja þessum síðum hvernig á að gera þetta.
sleggjan (IP-tala skráð) 14.2.2012 kl. 12:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.