Mánudagur, 6. febrúar 2012
Lífeyrissjóðirnir Dafuq?!?
Hlustaði á föstudagsspegilinn þegar rætt var um lífeyrissjóðina. Nokkrar óskiljanlegar ákvarðanir voru teknar:
- Lífeyrissjóðirnir gerðu gjaldmiðlisskiptasamninga við bankana árið 2008. Lífeyrissjóðirnir veðjuðu á það að krónan mundi HÆKKA. Þessir samningar voru gerðir við bankana sem ráðlögðu þeim það sjálfir.
Ef krónan mundi hækka mundu bankarnir tapa. Eru einhverjar líkur á því að bankarnir færu að veðja með hagsmuni lífeyrissjóðanna í huga og tapa sjálfir?
Til viðbótar allar blikur voru á lofti að krónan var alltof há, hvað voru lífeyrissjóðirnir að hugsa. Er ekki einn hagfræðingur í stjórn hjá þeim eða var hann í laxveiðiferð? Dafuq?
- Þegar lífeyrissjóðirnir voru spurðir á hvaða grundvelli sumar ákvarðanir voru teknar, þá sendu þeir kynningarefni frá bönkunum! Dafuq?
- Lífeyrissjóðirnir keyptu VÍKJANDI skuldabréf í Glitni árið 2008 fyrir milljarða króna. Af hverju í að kaupa víkjandi skuldabréf með peninga landsmanna? Sama hvaða fyrirtæki það er og á hvaða tíma! Dafuq?
kv
Sleggjan
![]() |
Tap lífeyrissjóðanna svipað og hjá þeim evrópsku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:00 | Facebook
Athugasemdir
Það er magnað hvað margir kaupa gjaldmiðlaskiptasamninga til að tryggja langtíma eigur eða skuldir. Gjaldmiðlaskiptasamningar eru bestir til að tryggja ákveðið gengi til skamms tíma en eru beinlínis skaðlegir þegar þeir eru gerðir til að tryggja eigur sem ekki á að selja þegar gjaldmiðlaskiptasamningurinn rennur út.
Lúðvík Júlíusson, 6.2.2012 kl. 09:33
Þetta er ótrúlegt. Einsog sleggjan orðað það.
Dafuq!!
http://www.youtube.com/watch?v=-d6b1yn-YhQ&ob=av2e
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 6.2.2012 kl. 09:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.