Miðvikudagur, 18. janúar 2012
Ótrúleg frétt.
http://www.ruv.is/frett/erlent/sannleikanum-verdur-hver-sarreidastur
Þetta minnir mig á Vígdísi Hauksdóttir og hennar komment um að "það má ekki tala niður landbúnaðinn"
Þarna er hagstofustjóri í Grikklandi kærður fyrir landráð fyrir "að tala niður Gríska hagkerfið"... þó að hann var bara samviskusamlega að birta réttar hagtölur.
hvells
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ekki um þessa frétt.
Bara fá að spyrja afhverju eyðiði út bloggum?
Hilmar Örn, 18.1.2012 kl. 13:11
Við höfum ekki gert það.
Ertu með eitthvað dæmi?
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 18.1.2012 kl. 13:19
http://mbl.is/frettir/erlent/2012/01/17/slamistar_mesta_ognin_vid_noreg/
Nú bloggið um þetta er horfið?
Hilmar Örn, 18.1.2012 kl. 13:27
Já.. ég hvellurinn kannast ekki við að blogga um þetta.
Sleggjan Hvað segir þú um þetta?
Gæti kannski verið að Hilimar Örn er að fara "bloggavilt" að einhver annar en við vorum að blogga um þetta.
hvellurinn.
Sleggjan og Hvellurinn, 18.1.2012 kl. 13:54
Nei nei alls ekki, ég er á réttum stað, en já það var sleggjan sem var með þetta blogg.
Hilmar Örn, 18.1.2012 kl. 14:04
Við áskilum okkur rétt til þess að eyða bloggum. En svona almennt séð þá eyðum við hvorki bloggum né kommentum hérna á síðunni. Það telst til undartekningar.
hvellurinn
Sleggjan og Hvellurinn, 18.1.2012 kl. 14:11
Einhver sérstök ástæða fyrir að þessu var eytt ef ég má spyrja, spyr eg nú sleggjuna.
Hilmar Örn, 18.1.2012 kl. 14:46
Sleggjan hér.
Já, ég eyddi út blogginu vegna þess að það er ekki hægt að ræða þetta nema þetta fari út í skítkast. Það að vera kallaður rasisiti, sakaður um að vera heimskur er ekki alveg að gera sig.
Ef færslan var lesin (þú last hana) þá var ég að varpa fram þeirri spurningu hvort öfgafullir íslamistar geta verið hættulegir. Ef að leyniþjónusta Noregs segir svo vera þá er gott að hafa augun opin ekki satt? Leyniþjónustan býr eflaust yfir meiri upplýsingum en ég og þú Hilmar?
Það er ekki hægt að standa í umræðum um svona mál. Þó að ESB umræðan getur verið hatursfull á köflum. Þá er umræðan um fjölmenningarsamfélag alveg baneitrað.
Færslan var laus við öfgar, en kommentin ekki (þú misstir eflaust af því versta).
Þessi færsla sem eyddist mun vera fyrsta færslan sem hefur verið fleygt hér út. Og þá má spurja sig af hverju er ekki hægt að ræða þetta mál án svívirðinga.
kveðja
Sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 18.1.2012 kl. 21:00
Svo um þessa bloggfærslu
Mér stökk bros þegar ég heyrði þetta í Speglinum.
Þetta minnir mjög á þjóðernisöfgasinnana hér á Íslandi hehe
sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 18.1.2012 kl. 21:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.