Þriðjudagur, 13. desember 2011
Illugi Gunnarsson búinn að skipta um skoðun
Í viðskiptablaðinu í dag segir Illugi Gunnarsson "Réttast er að stjórnvöld stöðvi aðildarumsóknarferlið við Evrópusambandið".
Árið 2008 segir Illugi Gunnarsson í grein:
" Ísland ætti að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið og endanlega ákvörðun um inngöngu ætti að leggja fyrir dóm þjóðarinnar í atkvæðagreiðslu".
Hann telur ESB hafi breyst of mikið á þessum 3 árum. Og þá sérstaklega nýjasta samkomulagið.
Hann telur að takmörkun á ríkishalla vera fullveldisafsal.
Ég tel takmörkun á ríkishalla vera blessun fyrir íslenska stjórnmálamenn sem hafa aldrei kunnað að fara með fjárhag þjóðarinnar. Heimild: Saga Íslands
kv
sleggjan
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
þetta svokallað fullveldis afsal er engöngu reglur um að lönd mega ekki sukka með skattpeninga að vild.
Þetta eru nákvæmlega eins reglur og Sjálfstæðisflokkurinn vill innleiða sbr bæklingin sem var dreift í hvert hús.
Þeir vilja setja lög um t.d ríkishalla. En það er alveg ómögulegt að þurfa að lúta þeim reglum þegar kemur að ESB.
sorglegt
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 13.12.2011 kl. 16:03
Er ekki Egill Helgason að halda því fram að það sé tilgangslaust að halda þessum viðræðum þar sem samningur verður nær örugglega felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu ?
Var ekki Eiríkur Bergmann að velta því fyrir sér hvort esb væri að skiptast í þrennt ? OG þá að hvaða esb erum við sækja um aðild að ?
Óðinn Þórisson, 13.12.2011 kl. 17:30
Jú Óðinn það er hárrétt.
Það er mikill órói í ESB, því verður ekki neitað
sleggjan (IP-tala skráð) 13.12.2011 kl. 18:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.