Þriðjudagur, 13. desember 2011
Lönd innan ESB geta gert milliríkjaviðskipti við Kína.
http://m5.is/?gluggi=frett&id=158741
Þessi frétt sannar það að NEI-sinnar eru duglegir að blekkja.
Þeir halda því fram að með því að ganga í ESB þá erum við að afsala einhverskonar samningsfrelsi við aðrar þjóðir. Einangra okkur í ESB.
Það er alls ekki rétt einsog þessi frétt sannar. Skotar eru í ESB og eru að gera góða viðskiptasamninga við Kína. Flytja út lax og wiskí til Kína.
hvells
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það sem um er að ræða er að Kínverjar drógu sig út úr milliríkjasamningi um viðskipti sem var í burðarliðnum. Ástæðan var umsókn okkar í ESB. Opinbera samninga um viðkipti og tolla má ekki gera í ESB. Það er þó ekkert sem bannar fyrirtækjum að flytja inn frá Kína né til Kína og hefur aldrei verið vandamál.
Jón Steinar Ragnarsson, 13.12.2011 kl. 14:47
Milliríkjasamningar og milliríkjaviðskipti eru ekki sami hluturinn. Milliríkjaviðskipti eiga sér stað á hverjum degi án þess að stjórnvöld í viðkomandi löndum komi þar nálægt. Flestir (en ekki allir) myndu segja sem betur fer.
Milliríkjaviðskipti per se þurfa ekki að lúta vilja ESB, nema að ESB myndi setja viðskiptabann á eitthvert ríki. En milliríkjasamningar eru annar handleggur.
G. Tómas Gunnarsson, 13.12.2011 kl. 15:10
Þannig að þið kappar eru sammála um að blekkingar NEI sinna eiga ekki lengur við.
Lönd eru ekki að múra sig inní ESB einsog NE sinnar halda fram.
Lönd innan ESB eru frjáls að gera samninga við önnur lönd útum allan heim. Sem er mjög jákvætt.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 13.12.2011 kl. 15:44
Löndum innan ESB er ekki frjálst að gera hvaða milliríkjasamninga sem er við lönd utan "Sambandsins". Það er ósköp eðlilegt. En hvort að það sé öllum hagstætt er annað mál.
Skotland (eða hvaða land sem er innan "Sambandsins" getur ennþá selt vörur, enda þarf að öllu jöfnu enga milliríkjasamninga til þess. Nóg er að tvö fyrirtæki komi sér saman um kaup.
Ég hef engan heyrt tala um að Ísland gæti ekki átt viðskipti við lönd utan "Sambandsins" ef svo illa færi að Ísland gengi þar inn. En milliríkjasamningar yrðu afar takmarkaðir, sem getur svo aftur leitt til minni viðkipta o.s.frv.
Næst síðasta setningin er því röng hjá ykkur, en ef þið breytið henni í : Fyrirtæki innan ESB eru frjáls að því að gera samning við önnur fyrirtæki í löndum út um allan heim.
G. Tómas Gunnarsson, 13.12.2011 kl. 16:48
Já. Það er gaman að heyra þett frá hörðum NEI sinnum að Ísland mun geta átt viðskipti við hvaða land sem er þrátt fyrir ESB inngöngu.
Ég hef verið kallaður einangrunarsinni bara vegna þess að ég vill skoða kosti ESB.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 13.12.2011 kl. 17:20
Það er ánægjulegt að NEI sinnar eru loksins byrjaðir að líta á staðreyndir.
Ég vona að þetta er bara byrjunin.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 13.12.2011 kl. 17:21
Milliríkjasamningar innan ESB: Vesen
Milliríkjaviðskipti innan ESB: Ekkert mál
Var þetta einhverntímann ekki ljóst?
sleggjan (IP-tala skráð) 13.12.2011 kl. 18:08
Ég held að þið hljótið að hafa misskilið þetta eitthvað. Auðvitað eiga fyrirtæki innan "Sambandsins" viðamikil viðskipti við fyirtæki utan "Sambandsins". Mercedes selur um allan heim, Þýsk vopn eru flutt til æ fleiri landa, hér í Kanada ét ég grískar olívur, drekk Ítölsk og Frönsk vín, kaupi stundum Breskan Stilton, kaupi Þýskmalað kaffi og stundum Daim í IKEA.
Ég þekki ekki hvernig tollamálum með þessar vörur er háttað, hef hreinlega ekki nægan tíma eða áhuga til að setja mig inn í það. En auðvitað eru "Sambandslöndin" ánægð með að vörur séu fluttar út. Á móti fara svo einhverjar Kanadískar vörur til Evrópulanda og eru tollaðar þar eins og gengur.
En Kanada getur ekki gert fríverslunarsamning við Bretland eða Grikkland. Það yrði aðeins gert við "Sambandið" sem heild. Það er auðvitað allt annað og þyngra dæmi. Það er líka ólíklegt og í raun óeðlilegt að hagsmunir Íslendinga yrðu settir framarlega við slíka samningagerð.
Það er fyrst og fremst slík "innmúrun" sem þið hafið heyrt talað um, og eitthvað misskilið, því engan hef ég heyrt tala um að Ísland gæti ekki átt viðskipti við lönd utan sambandins. Getið þið bent á greinar eða blog þess efnis?
Þess má geta að Ísland hefur fríverslunarsamning við Kanada í gegnum EFTA. Sé hugsað til lengri tíma má hugsa sér að fríverslunarsamningar við lönd s.s. Kanada, Kína, Brasilíu, Rússland, Suður-Afríku, og fleiri gætu orðið miklu mikilvægari en er í dag og mun mikilvægari en samsvarandi fríverslun við "Sambandið". Best af öllu væri þó að geta haft slíka samninga við bæði "Sambandið" og önnur ríki s.s. þau sem ég nefni hér að framan. Þess vegna vara margir við því að "múra" sig inni í "Sambandinu".
G. Tómas Gunnarsson, 13.12.2011 kl. 18:09
Mér sýnist misskilningurinn vera farinn úr sögunni.
sleggjan (IP-tala skráð) 13.12.2011 kl. 19:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.