Sunnudagur, 11. desember 2011
Guðmundur er með stefnu.
Það er dálítið skondið að heyra fólk í hinum og þessum flokkum að ásaka Guðmund og hans flokk að vera stefnulaus.
Það er enginn nema Samfylkingin með skýra stefnu varðandi ESB og peningamál.
Enginn flokkur á Alþingi í dag eru sammála um hvernig og hvar skal virkja.
Það er ENGINN flokkur með skýra stefnu varðandi stjórnlagaráðið.
Guðmundur og hans flokkur
hvells
![]() |
Nýtt fólk meldar sig daglega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Samfylkingin með skýra stefnu í peningamálum?
Ég á ennþá eftir að hitta krata sem veit hvað hugtakið þýðir!
Að vilja taka upp innflutta peningastefnu frá Frankfürt er merki um skort á sjálfstæðri afstöðu. Það hefur ekkert með skýrleika að gera, þvert á móti.
Evrópuflokkur Gumma Best & co. virðist sama marki brenndur.
Guðmundur Ásgeirsson, 11.12.2011 kl. 12:57
Vinstri grænir voru líka með klára stefnu fyrir síðustu kosningar. Svo gerðu þau gott mót í kosningum og inn á þing sópaðist alls konar samtíningur fólks, ósamstæður hópur sem hefur ítrekað virt stefnu flokksins að vettugi og hver hlaupið í sína áttina. Ekki held ég að hentistefnuframboð Guðmundar verði öðruvísi!
Ófeigur (IP-tala skráð) 11.12.2011 kl. 13:10
Ég auglýsi eftir "skýrri stefnu" Samfylkingarinnar í peningamálum.
Ég auglýsi jafnframt eftir flokksmanni sem veit hver hún er.
Guðmundur Ásgeirsson, 11.12.2011 kl. 13:40
Stefna Samfylkingarinnar í peningamálum er mjög skýr. Að uppfylla Maastrich skilirðin og taka upp evru eftir inngöngu í Evrópusambandið.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 11.12.2011 kl. 14:16
Það er ekki hægt að vera með stefnu varðandi Stjórnlagafárið.
Guðmundur St Ragnarsson, 11.12.2011 kl. 14:29
Það er hægt. Flokkur Guðmundar er með skýra stefnu. Og þetta er ekki fór heldur niðurstaða stjórnlagaráð og tveim þjóðfundum þar sem slembúrtak allra Íslendinga komu saman í Laugardalshöll til að ráða ráðum sínum. Það er einsdæmi í mannskynssögunni og við eigum að vera stolt af því.
Þó að nokkrir treggáfaðir einstaklingar einsog Guðmundarnir tveir skilja þetta ekki.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 11.12.2011 kl. 14:41
Stefna Samfylkingarinnar í peningamálum er mjög skýr. Að uppfylla Maastrich skilirðin og taka upp evru eftir inngöngu í Evrópusambandið.
Maastricht skilyrðin fjalla ekki um peningamál heldur ríkisfjármál. Að taka upp evru er ekki peningastefna, heldur einfaldlega ákvörðun um að leggja niður eigin peningastefnu og fylgja þeirri sem er ákveðin í Frankfürt. Þú hefur því svarað spurningu um peningastefnu, án þess að nefna neina peningastefnu.
Fyrir utan það að daginn sem við uppfylltum Maastricht skilyrðin værum við með traustasta ríkisbúskapinn í Evrópu, kannski að Þýskalandi undanskildu. Rökrétt ákvörðun við slíkar kringumstæður væri að standa utan myntbandalags, og umrædd stefna Samfylkingarinnar í gjaldmiðilsmálum er því ein stór þversögn.
treggáfaðir einstaklingar einsog Guðmundarnir
Hver er tregur? Ég auglýsi enn eftir peningastefnu Samfylkingarinnar, hvort sem hún er skýr eða ekki, bara einhverri peningastefnu yfir höfuð. Og ef eina mögulega svarið er að fylgja peningastefnunni sem er ákvörðuð í Frankfürt, þá auglýsi ég jafnframt eftir flokksmanni sem getur útskýrt hver sú stefna er og þar með hvaða þýðingu hún myndi hafa fyrir Ísland.
Guðmundur Ásgeirsson, 12.12.2011 kl. 01:57
Við munum ganga í myntbandalag Evrópu. Það er skýr peningastefna.
Hún mun hafa þá þýðingu að vextir hér munu lækka, verðtryggingin leggst af og það verður stöðugt gengi hérna á Íslandi.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 12.12.2011 kl. 08:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.