Hagsmunarsamtök heimilana eiga að berjast fyrir ESB inngöngu.

HH vilja enga verðtryggingu, lægri vexti og ekkert gengisfall sem stökkbreytir skuldir.

Það er til leið við þessu öllu.  Heitir ESB.

Ég veit að til framtíðar mun hagsmunarsamtök heimilana og almenningur í landinu sjá hvað er fyrir bestu fyrir þjóðina.

 

hvells


mbl.is Þörf á heildarendurskoðun á lífeyrissjóðskerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Að halda því fram að HH vilji ekki gengisfall er eins og að halda því fram að ASÍ vilji ekki haglél á sunnudögum. Fáránlegt að halda slíku fram.

Og hitt sem hér er haldið fram er jafn fáránlegt, að ESB sé einhver "leið" í þessum málaflokkum. Varðandi eðlilegar og sanngjarnar aðgerðir við skuldavanda heimilanna hefur ein helsta fyrirstaðan reynst vera ríkisstjórn sem leggur mikla áherslu á aðild að ESB.

Annað ljón í vegi heimilanna hefur reynst vera ESB sjálft, sem ætlaðist til að við samþykktum ríkisábyrgð á IceSave sem uppreiknuð væri nú þegar búin að kosta hvert íslenskt heimili rúma milljón. Miðað við öll þau heimili sem ég þekki og eiga ekki einu sinni fimmþúsundkall á lausu, þá er slík "leið" gjörsamlega ófær.

Löngun Samfylkingarinnar til að fara í ESB hefur ekkert með hagsmuni íslenskra heimila að gera, það er í besta falli lygasaga sem er notuð til að selja hugmyndina. Ef það væri eitthvað að marka þessa kenningu þá væri Samfylkingin núna að vinna að því hörðum höndum að afnema verðtrygginguna lækka vexti og hætta opinberri skuldsetningu til að undirbúa inngönguna í ESB. Í raunveruleikanum hefur hinsvegar enginn séð votta fyrir slíkum vilja.

P.S. hvells: hvaða ESB er það sem þú telur vera þá "leið" sem þú ert að meina? Evrópusambandið sem Bretar eru í eða Evrópusambandið sem Þýskaland er í?

Guðmundur Ásgeirsson, 11.12.2011 kl. 13:32

2 Smámynd: Dexter Morgan

In your dream ! Það mun aldrei verða. Þjóðin mun gefa Samfylkingunni löngutöng og kolfella samninginn þegar hún fær að kjósa um hann.

Eina von Samfylkingarinnar er einmitt að fara að ráðleggingum HH og annara sem vilja leiðrétta hag almennings í landinu (en það eru stjórnarflokkarnir EKKI að gera) og þá fyrst á hún möguleika, aðeins veikan möguleika á því að komast á blað um næstu kosningar.

Dexter Morgan, 11.12.2011 kl. 14:08

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Að afskirfa skuldir heimilana fylgir gríðarlegur kostnaður fyrir okkur skattborgara. Steingrímur þarf að henda mörghundruð milljörðum í Íbúðarlánasjóð.

En ESB leiðin er mun hagstæðari. 

Þar eru lægri vextir, engin verðtrygging og ekkert gengisfall. Þar kemst almenningur í skjól.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 11.12.2011 kl. 14:32

4 identicon

Ha HA HA baugssleggjan klikkar ekki á ruglinu!

Örn Ægir (IP-tala skráð) 11.12.2011 kl. 14:42

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Sleggjan kom ekki nálægt þessari færslu.

hvells (hvellurinn)

Sleggjan og Hvellurinn, 11.12.2011 kl. 14:55

6 identicon

Varðhundar Nei-Sinna eru alltaf on point þegar það kemur pro-ESB færsla.

Og alltaf er blandað Samfylkingunni í þann debat. Jú, eini flokkurinn sem er með ESB. En hversu margir óflokksbundnir vilja ganga í ESB? Hversu margir Sjáfstæðismenn (hann er klofinn í ESB), Framsokn? OSFRV.

Í könnunum er um helmingur landsmanna sem er fylgjandi ESB, er þá um leið Samfylkingin með helmingsfylgi?

hætti þessari vitleysu!

sleggjan (IP-tala skráð) 11.12.2011 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband