Sæll. Ekkert að marka þessa ályktun.

Það er ekkert að marka þessu litlu samtök.
Og þessi áliktun kemur mér ekkert á óvart miðað við að Guðni sem sér kölska í evrópu sé þar formaður.

Þetta er fyrst og fremst hlægilegt hehe :)

hvells


mbl.is Leggi niður viðræður við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Umrenningur

Það kæmi mér ekki á óvart að á bak við þessi "litlu" samtök sé annar mesti starfsmannafjöldi í Íslenskum iðnaði þ.e á eftir fiskiðnaði. Ég tel stóriðjuna ekki með enda að stærstum hluta erlend fyrirtæki.

Umrenningur, 28.11.2011 kl. 13:53

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það finnst ekki öllum sannleikurinn hlægilegur.

Þeir sem vilja ganga lengra í að undirbúa ESB-jarðveginn á Íslandi eru meðvitað eða ómeðvitað, erindrekar glæpaklíku-stýrðrar elítu í Brussel, sem er ekki að velta fyrir sér lífsafkomu almennings á Íslandi, né annarstaðar. Ekkert frekar en AGS. Það fer lítið fyrir samviskusamlegum og heiðarlegum viðskiptum í þessum höfuðstöðvum.

Þessi glæpamanna-stýrða og meðvitundarlausa Brussel-elíta á ekkert skylt við almenning í Evrópu eða ESB-ríkjunum, síður en svo. Ég er meiri Evrópu-alþýðusinni en svo að ég vilji skrifa undir fordæmisgefandi þrælasamning glæpamannastýrðu yfirbankastjóranna í Brussel. Íslendingar eru í sérstöðu til að setja þessum glæpamanna-stýrðu Evrópubönkum stólinn fyrir dyrnar, vegna smæðar þjóðarinnar og ríkulegra auðlinda landsins.

Þannig getum við gefið gott fordæmi, og jafnframt staðið með fátækum þjóðum og almenningi í Evrópu og víðar, til að undirstrika að ekki er hægt að þvinga fólk til að gangast undir bankaráns-þrælastjórn elítunnar í Brussel, né annarsstaðar, sem stýrt er af mafíu. Þessi mafía bjó til skuldir á almenning með innistæðulausum skuldafölsunum. Það er ekki hægt að innheimta pening upp í skuldir sem efnt hefur verið til á þennan hátt, með blekkingar-hjálp matsfyrirtækja heimsins. Síðan ræna bankarnir fasteignum blekkts almúgans og selja þær aftur á fullu verði. 

Ég bið alla góða vætti að hjálpa þeim, sem trúa því raunverulega, að peningar og skuldir verði til úr engu, og að það sé leyfilegt og eðlilegt. Það er bara hreint og beint nútíma-bankarán, sem verður að taka á af alvöru. Það verður að afskrifa blekkingarskuldir bankanna bæði hér á landi og annarstaðar. Það er engin önnur leið möguleg.

Ef það er siðmenntaðra manna viðurkenndu vinnubrögð og lög, að ræna bönkum aftur og aftur, með blekkingum matsfyrirtæka, þá er jörðin ekki ákjósanlegur staður til að búa né lifa á. Margir hafa nú þegar áttað sig á því, með hörmulegum afleiðingum. En fjölmiðlum er almennt ekki leyft að fjalla um sjálfsmorðin sem af þessum bankaráns-hamförum hljótast. Hvers vegna ekki? 

Þöggun um sannleikann er ekki neitt nýtt hjá ríkisfjölmiðlum hér á landi og víðar í heiminum.

Það hljóta flestir að vera sammála um að það er ekki mögulegt að réttlæta þessar bankaráns-hamfarir, sem eru að leggja Evrópu í rúst, og eyðileggja lífsafkomu alþýðunnar þar og víðar, fyrir örfáa siðblinda og geðveika menn, og þeirra helsjúku vinnubrögð og verk.

Þetta er mín skoðun, svo hafa aðrir sínar yfirveguðu, sannreyndu og rökstuddu staðreyndar-skoðanir á þessum stjórnlausu bankaráns-kreppum heimsins.

Við þurfum hvorki SA né nokkurn annan uppdubbaðan talgervil glæpaelítu-bankanna/lífeyrissjóðanna, til að segja okkur staðreyndir mála, því þær má nálgast eftir öðrum leiðum og ábyggilegri, sem er að finna á netinu.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.11.2011 kl. 15:23

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

umrenningur.

það kæmi mér ekki á óvart að það sé ekki rétt.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 28.11.2011 kl. 15:42

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Anna

Ég veit ekki betur en að allir útrásarvíkingar og bankaræningarnir sem rændu Ísland fyrir hrun séu íslenskir ríkisborgarar... ekki frá ESB.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 28.11.2011 kl. 15:45

5 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Það er bara ein mjólkurafurðarstöð á Íslandi. Hún er í eigu MS, sem aftur á móti er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga. Síðan er mjólkurmarkaðurinn einokunarmarkaður á Íslandi og engin samkeppni.

Síðan þykjst þessi menn vera samtök aðila. Þetta er bara rugl.

Hvað kjötafurðarstöðvar varðar. Þá er bara gervisamkeppni þar og ekkert annað.

Jón Frímann Jónsson, 28.11.2011 kl. 15:47

6 identicon

Veit ekki hvort þessi lobbýistasamtök séu áhrifamikil bakvið tjöldin eða ekki.

Guðni hefur góð tengsl allavega

kv

sleggjan (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 17:04

7 Smámynd: Óðinn Þórisson

En ef við gögnum í esb getum við ekki gert fríverslunarsamninga við önnur lönd - er það jákvætt eða neitkvæt ?
Það er ekki rétt hjá þér að segja að það sé ekkert að marka þessa ályktun - en hún kemur vissulega frá hagsmunaðalinum og er að sjálfstögðu litiuð.

Óðinn Þórisson, 28.11.2011 kl. 17:24

8 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Óðinn, Í dag gera íslendingar langflesta fríverslunarsamninga sína í gegnum EFTA. Það yrði engin breyting þar á við að ganga í ESB. Einnig sem að samningar ESB eru betri en samningar Íslands eitt og sér.

Jón Frímann Jónsson, 28.11.2011 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband