Samfylkingin á að........

Samfylkingin á að slíta samstarfi við VG strax. Bjóða Sjálfstæðisflokknum með sér í ríkisstjórn. Þetta væri 36 þingmanna meirihluti sem er fínt í þessu árferði.

Það sem XS mundi þurfa gefa eftir er tvennt.

1. Fara eftir svokallaðari sáttarleið í kvótamálinu. Þar náðist ákveðin niðurstaða sem er skömminni skárri en ruglið sem kemur frá Jón Bjarna.

2. Fara strax í þjóðaratkvæðisgreiðlsu um hvort við viljuim vera í þessu ESB ferli skv samþykktum Sjálfstæðisflokksins.

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn getur þá eflt hér hagvöxt án þess að VG sé að þvælast fyrri öllu. Koma atvinnulífinu af stað og bæta lífskjör á Íslandi.

hvells


mbl.is Ræða málefni Jóns og Huangs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

Þetta gengur því miður ekki upp.  Sjálfstæðisflokkurinn ver þetta óréttláta kvótakerfi fram í rauðan dauðann og mun aldrei ganga í ríkisstjórn sem vill breyta því.  Falli þessi stjórn þýðir það kosningar og gömlu spillingarflokkarnir taka völdin.  Ábyrgð VG er því mikil en því miður er líklegasta niðurstaðan að stjórnin falli og kosið verði fljótlega.

Óskar, 28.11.2011 kl. 13:04

2 identicon

Þetta er náttúrulega svo hlægileg tillaga hjá þér, að það nær ekki nokkru taki. Á Samfylkingin bara að lúffa í öllum sínum málum fyrir það eitt að hlaupa í fangið á Sjálfshælisflokknum..???, nei held ekki, ekki fyrir mig takk.

Helgi Rúnar Jónsson (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 13:19

3 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Er ekki hreinlega meiri samhljómur milli VG (eða stórs hluta VG) og Sjálfstæðisflokksinns? Og þeir fái þá Framsókn með sér í partíið.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 28.11.2011 kl. 13:31

4 identicon

Jú Ómar, rétt athugað hjá þér...látum afturhalds og íhaldsöflin vera undir sömu sæng. þá farnast okkur íslendingum betur...eða hitt þá heldur.

Helgi Rúnar Jónsson (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 14:35

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Óskar

Sjálfstæðisflokkurinn hefur gefið það út að þeir vilja fara þessa sáttarleið.

Helgi. Hún er ekki algjörlega lúffa í tveim málum. Sáttarnefndin komst að niðurstöðu og það eru breytingar m.a að almnenningur mun eiga fiskiauðlindina. Svo það að setja ESB í þjóðaratkvæði er ekki algjör lúff!! Þjóðin verður bara spurð um framhaldið. Við erum ekki að tala um að draga ESB umsoknina til baka og henda henni.

En það er rétt Óskar. Það gæti verið stryttra á milli VG og XS. Þú getur ímyndað þér afturhaldið í þeirri stjórn.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 28.11.2011 kl. 14:37

6 identicon

Frekar nýjar kosningar en að beygjast í duftið

sleggjan (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 17:07

7 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ríkisstjórn VG og x-d kemur ekki til greyna og yrið eflaust verri en núverandi ríkissjtórn sem yrði verulega erftit.
Ástæðan fyrir að þessi möguleiki x-d og x-s verður ekki að veruleika er Johanna.

Óðinn Þórisson, 28.11.2011 kl. 17:20

8 Smámynd: Dexter Morgan

Síðuhöfundur byrjar: "Samfylkingin á að..." Og leggur svo til einhverja þá vitlausustu hugmynd sem ég hef heyrt lengi. Að láta sér detta það í hug að Sjálfstæðisflokkurinn myndi fallast á málamiðlun í fiskveiðimálum er í besta falli barnalegt, jafnvel þó þeir myndu lofa einhveru um það og skrifa undir stjórnarsáttmála þar um. Þeim er enganveginn treystandi. Og afhverju "Á samfylkinginn,,,,", hitt eða þetta. Væri ekki nær að kanna hug kjósenda fyrst, hvað vilja þeir. Eða snýst þetta bara um að halda völdum. Ég vil Samfylkinguna BURT, ásamt öllum hinum 4Flokkunum, BURT - BURT - BURT.

Bíðum eftir einhverju öðru framboði. Helst einhverju framboði sem myndi sjá um útför 4Flokkanna og kjósendur gætu síðan dansað stríðsdansa á gröf þeirra, daginn eftir kosningar. Það er okkar eina von.

Dexter Morgan, 28.11.2011 kl. 21:03

9 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Heyrðu Dex boy.

Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að gefa það út að þeir vilja fara þessa sáttarleið í kvótamálunum. Einar K Guðfinnsson fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins samþykkti þessa leið. Og sá drengur er seint talinn maður sem vill breyta kvótakerfinu að fyrra bragði.

Kosningar væri best. En við vitum að það er ekki að fara að gerast. Allavega ólíklegt.

En þú talar um að kanna hug kjósenda. Samfylkingin er stærsti flokkur á Alþingi hann fékk tæplega 30% atkvæða í kosningum árið 2009. Þetta gefur henni skýrt umboð. Það er allavega ekki hugur kjósenda að láta VG ráða öllu.

Samfylkingin og Sjálfstæðislfokkurinn væri með sterkara umboð frá kjósendum. Enda þeir tveir sama fengu fleiri þingmenn heldur en XS og VG.

Þannig að það er alveg ljóst að þú ert að vaða í reyk Dexmaster.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 28.11.2011 kl. 21:20

10 identicon

Ég tel að samstarf xD við samfylkinguna hafi verið fullreynt er samfylkingin reyndi (með furðulega góðum árangri þó) að þvo af sér xD samfaralyktina í árslok 2008.

Félagshyggjuflokkurinn spilaði sig saklausan af öllu illu, komst upp með það og að lokum kom flokkurinn Geir í snöruna.

Samfylkingin þvær ekki oftar af sér spillingarfnykinn.

Flestir eru byrjaðir að sjá í gegnum flokkinn og það sem við flestum blasir er ógeðfellt hentistefnuframboð sem ekkert er heilagt.

Samfylkingin hefur svipaðan pólitiskan samningsgrundvöll í dag og gaddafi hafði fyrir mánuði síðan.

Tími samfylkingarinnar er kominn og farinn..sem betur fer fyrir land og þjóð !

runar (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 00:01

11 identicon

Dex vill fjórflokkinn burt, ég líka.

Einnig er ég tortrygginn á það sem XD segir um kvótabreytingar. Ég trúi því þegar ég sé þá kjósa með breytingum á hinu háa alþingi, ekki fyrr. Það sem Einar K segir er bara eitthvað rugl til að klekkja á andstæðingnum. 

Svo ef XD nálgast atkvæðagreiðsluna um sáttaleiðina, þá kemur "óvænt" skýrsla um að allt fer á hausinn ef hún er farin og XD hættir við. Þetta kallast spuni.

sleggjan (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 00:01

12 identicon

Menn ekki að skilja samfylkingarplottið; Samfylkingin vill vera með VG því þau vita að VG eru iðnir við að rústa mannlífi, skattleggja allt upp í topp... fólk verður svo þreytt að það kallar á eftir því að fara í ESB.

Já Steingrímur J og Vinstri Geggjunarflokkurinn er bara tól í smiðju samfylkingar til að koma íslandi inn í ESB, frá VG.

Simple

DoctorE (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 10:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband