Laugardagur, 26. nóvember 2011
Framsókn mun enda sem örflokkur.
Það er greinilegt að Framsóknarflokkurinn hefur ekkert lært af hruninu. Þeir viðhalda sömu vinnubrögð og hafa alltaf gert. Það var smá von á sínum tíma. Þeir sýndu vilja í að bæta sig. Komu með tillögu um stórnlagaþing og fleira.
Ekki má heyra minnst á það mál núna. Nú er áherslan á þjóðrembu og afturhald. Framsókn hefur tekið algjöra stefnubreytingu um að siðvæðast og bæta sig heldur vill hann vera þjóðrembu örflokkur eftir næstu kosningar. Þeir um það.
hvells
![]() |
Á ekki lengur samleið með Framsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hví ætti það að koma á óvart að hækjan í dag sé sama hækjan og fyrir hrun? Hver leiðir flokkinn? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, silfurskeiðar-drengurinn. Skilgetið afkvæmi einhverra verstu innherjaviðskipta, sem framin hafa verið hér á landi. Og margt ljótt hefur samt gerst á þeim vettvangi hér á skerinu. Það er langt síðan að Framsókn hætti að vera stjórnmálaflokkur, fremur hækja Sjallanna og vinnumiðlun fyrir sína kjósendur. Hækjan fær í mesta lagi 10% í næstu kosningum. Þeir megi líklega verið ánægðir með það.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 26.11.2011 kl. 22:27
VG 6% Samfó 9% Lilja Mós 20% Framsókn 17% Sjálfstæðisfl 42%. Og örflokkarnir eru?
Jón Steinar Ragnarsson, 26.11.2011 kl. 22:52
Helga Sigrún sagði sig líka úr Framsóknarfokknum vegna þess að hann lærði EKKERT af hruninu
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 26.11.2011 kl. 23:17
fékkstu þessa könnun frá útvarp sögu eða?
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 26.11.2011 kl. 23:22
Sniðugt hjá stelpunum að hreinsa svona til í Framsóknarflokknum.
Það á ekki við að hafa Evrópusambands-áhangendur í flokki sem vill virða þjóðfrelsið, sjálfstæði okkar og fullveldi.
Og Sleggjan og Hvellurinn lýsa áliti sínu sem er einfaldlega í takt við Esb-hollustu þeirra gegnum þykkt og þunnt og þvert og hvað sem á dynur í þessu stórundarlega "stöðuga" fyrirmyndar-sæluríki þeirra.
Jón Valur Jensson, 26.11.2011 kl. 23:25
Orðunum "og þvert" er þarna ofaukið.
Jón Valur Jensson, 26.11.2011 kl. 23:27
það er fint fyrir alla flokka að losan við fólk sem ekki er heilt i starfi !! En framsókn hefur bætt við sig ansi mörgum fleirum nyjum en út hafa farið .svo eg held að það se of snemmt að gleðjast , þó það se skammdegi úti og inni hja einhverjum þá er bara hvila sig núna á aðventunni !!!!
Ransý (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 00:47
Sæll.
Það verður að vera skýrt fyrir hvað flokkar standa. Ég treysti mér t.d. ekki til að kjósa flokk þar sem ESB sinnar hafa veruleg áhrif. Hver kýs flokk þar sem formaðurinn vill hækka skatta en varaformaðurinn lækka þá? Hvað er maður að kjósa ef maður kýs þann flokk?
Svo annað: Hvað eiga flokkarnir að læra af hruninu?
Vilja sumir bara fá nýja flokka sem aðhyllast svo til sömu hugmyndafræði? Hverju reddar það? Dettur einhverjum í hug að mikill munur verði á samfylkingunni og nýja flokknum hans Guðmundar Steingríms? Hvernig hefur Besti flokkurinn staðið sig í Reykjavík?
Helgi (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 05:44
Hversu mikið sjálfstæði og fullveldi höfum við núna í EES-samstarfinu
70%?
80%?
100%?
sleggjan (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 09:32
Hvað hefur EES gert fyrir þjóðir, þegar upp er staðið? Hvað hefur og mun ESB gera fyrir þjóðir þegar upp er staðið?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 27.11.2011 kl. 11:46
Þó svo að SJS hafði talað um það að missa 3 þingmenn styrki flokkinn þá dreg ég það í efa að SDG haldi því sama fram. Það er allat missir þegar gott fólk sér sé ekki fært að starfa innan flokks sem það heftur stutt og kjörn til að gegna embættum innan flokksins.
Óðinn Þórisson, 27.11.2011 kl. 12:19
@sleggjan:
Hvernig væri að svara athugasemdum með öðru en spurningum? Þú svaraðir mér með innantómri spurningu annars staðar líka.
Ég ætla ekki að fara út í % varðandi frelsi okkar innan EES en við höfum misst stjórn ýmissa mála úr okkar höndum. Við getum t.d. ekkert gert ef 5000 Pólverjar ákveða að setjast hér að, við verðum að greiða þeim atvinnuleysisbætur þó þeir hafi aldrei unnið hér og aldrei greitt nein opinber gjöld. Hvað á að segja að þetta atriði séu mörg %?
@Óðinn Jónsson: Það þvældist víst eitthvað fyrir þessari ágætu konu að konur og karlar væru ekki til jafns í öllum störfum. Er þetta ekki hefðbundið femínista væl? Hún dúkkar sjálfsagt upp í einhverjum vinstri flokknum. SDG er að skerpa línurnar í flokk sínum og er það vel, það verður að vera alveg ljóst fyrir hvað flokkur stendur. Kýs t.d. einhver ESB andstæðingur flokk þar sem ESB sinnar eru fyrirferðarmiklir? Vg hafa sjálfsagt fengið talsvert af atkvæðum vegna ESB stefnu sinnar - atkvæði sem þeir munu missa næst :-)
Helgi (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 20:21
Það er ekki bara að "sjálfsagt" muni þetta gerast, heldur hef ég séð talsverðan fjölda manna segja eða skrifa (m.a. á Moggabloggi), að þeir hafi kosið VG, en geri það EKKI AFTUR.
Jón Valur Jensson, 28.11.2011 kl. 05:00
@ Helgi
Þú verður að sjá hver kvittar undir. Hvellur eða Sleggjan. Hvellur á að svara þér. Ég kom bara ferskur inn sem Sleggjan og hef ekkert verið að tjá mig nema hennti spurningu á Jón Val, spyr hann aftur:
@ Jon valur
Hversu mikið sjálfstæði og fullveldi höfum við núna í EES-samstarfinu
70%?
80%?
100%?
sleggjan (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 17:14
Við höldum í princípinu fullu fullveldi og sjálfstæði. Svp má bæta öðru við þessi orð, en mig langar að segja ykkur frétt sem tengist fyrirsögn þessa pistils hér:
Frá því fyrir, um og yfir helgina fór fram skoðanakönnun á vef Útvarps Sögu, þar sem spurt var: "Hvaða flokk kysir þú til Alþingis í dag?" Niðurstaðan kemur trúlega SF-mönnum á óvart: Annað [þ.e. annað en tilgreinda flokka]: 33,33%. V. græna: 12,26%. Sjálfstæðisflokk: 16,71%. Samfylkinguna: 3,86%. Hreyfinguna: 8,9%. Framsóknarflokk: 24,94%. Heildarfjöldi atkvæða: 1199.
Þarna virðist einn flokkur umfram aðra vera á leið með að verða að "örflokki"! Hlustendur nefndrar stöðvar vita reyndar svo margt misjafnt um téða Samfylkingu, að þeir eru sennilega mun lausari við alla trú á hana en meðaltal landsmanna. Samt er þetta alvarleg vísbending fyrir fyrir Jóhönnu- og Össurargengið!
Jón Valur Jensson, 28.11.2011 kl. 21:22
Og fylgismenn Framsóknar eru þarna rúmlega 6 sinnum fjölmennari en fylgjendur evrókrataflokksins!
Jón Valur Jensson, 28.11.2011 kl. 21:23
Það er greinilegt að XS er í vondum málum samkvæmt þessari skoðanakönnun.
Athyglisvert er að "annað" er stórt hlutfall. Vonir um ný sterk framboð.
En skoðun þín á sjálfstæði Íslands er : "Við höldum í princípinu fullu fullveldi og sjálfstæði". Það er alveg réttmæt skoðun
kv
Sleggjan og Hvellurinn, 29.11.2011 kl. 13:56
En við myndum EKKI halda því fullveldi og sjálfstæði innan Esb., strákar. Þar yrðu lög Esb. STRAX OG SJÁLFKRAFA lög hér, án nokkurrar viðkomu í Alþingi og án málskotsréttar forseta Íslands. Þar að auki fengju þau lög Esb. -- og allar reglugerðir þaðan -- forgang og forréttindi fram yfir öll íslenzk lög (stjórnarskrána meðtalda!), þ.e.a.s. ef eitthvað í Esb-reglum og lögum telst (að mati Esb.!) vera andstætt einhverjum lögum okkar! Já, það er að fórna fullveldi okkar að samþykkja slíkan opinn víxil á forgang allra Esb.-laga og reglna fram yfir íslenzk lög!
Jón Valur Jensson, 29.11.2011 kl. 17:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.