Laugardagur, 26. nóvember 2011
Neitun Ögmundar skerðir lífskjör Íslendinga.
Ögmundur sagði hreint út að hann vildi einfaldlega loka landið af.
Er skárra að útrásavíkingar séu að kaupa upp Ísland?
Þetta land var í einkaeigu en ekki í eigu þjóðarinnar.
Við yrðum af milljörum í gjaldeyristekjur og hundurði starfa.
VG hefur alltaf tala um "eitthvað annað" en stóriðja þegar kemur að erlendri fjárfestingu og þá yfileitt talað um ferðaþjónustu. En þegar kemur fjárfesting í þágu ferðaþjónustu er sagt NEI TAKK. Ömmi og hinir í VG vilja greinilega "ekkert annað"
hvells
![]() |
Huang Nubo er hættur við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ener ekki málið að meirihluti innbyggjara er sammála þessu? þ.e. að loka landið af og taka upp hérna gamla kerfið með tilheyrandi höftum og lokunum? Jú, mér sýnist það nefnilega.
Næsta skref hjá innbyggjurum hlýtur að vera að fara úr EES og snúa algjörlega til gamla hafta og einangrunnarsamfélagsins.
Og mér finnst að það eigi bara að leyfa fólki það þá. Innbyggjarar taka engum sönsum eða rökum. það eina sem skiptir máli er þjóðrembingsdrulla ásamt útlendingaparanoju og einhverri 19. aldar rómantím með tilheyrandi óraunsæisbulli. það verður bara að láta þjóðina ganga þá leið. Láta hana ganga plankann. þá hugsanlega, etv. og kannski mun hún læra eitthvað.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 26.11.2011 kl. 12:55
Er það ekki mistök meirihlua Alþingis að hafa umhverfi fjárfestinga svona ógagnsætt, háð undanþágum og mati eins ráðherra?
Þætti okkur það ekki kjánalegt umhverfi í viðskiptalöndum okkar?
Lúðvík Júlíusson, 26.11.2011 kl. 13:50
Sammála ykkur ómar og lúðvík.
það þarf skýra löggjöf.. ekki geðþóttar ákvarðnir um undanþágur.
ef almenningur vill loka sig af í torkofanna aftur þá mun ég kaupa one way ticked með norrænu sem fyrst.
en ég hef smá trú á landann ennþá. En sá trú fer dvínandi.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 26.11.2011 kl. 14:06
Það er einhver skrýtin útgáfa af þjóðernishyggju í gangi hérna á klakanum þessa dagana.
sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 26.11.2011 kl. 14:51
Hafi þessi Kínverji svona mikinn áhuga á að fjárfesta hér á landi þá lætur hann varla við deigan síga þegar umsókn hans um að vikið sé frá lögum sé hafnað. En miðað við viðbrögð hans veltir maður því fyrir sér hvað hann hafi virkilega ætlað sér með þessum kaupum. Hann getur ennþá byggt hótelið í Reykjavík. Hann þarf varla Grímsstaði á Fjöllum til þess. Nei það er maðkur í mysunni í þessu máli.
Guðmundur (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 02:04
"Hann getur ennþá byggt hótelið í Reykjavík. Hann þarf varla Grímsstaði á Fjöllum til þess."
Hvurslags rök eru þetta. Hann sér viðsktiptatækifæri í því að byggja Hótel á Grímsstöðum ekki í Reykjavík.
sleggjan (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 09:08
Það er ekkert sem hindrar hann í að gera þetta hótel á grímsstöðum ef hann vill, það hefur enginn synjað honum að byggja það
gunso (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 12:51
ég dreg raunar stórlega í efa að eitthvað hótel landsins eigi landið sem er undir því en sé ekki bara venjulegan lóðarleigusamning til margra áratuga eins og allt annað hér á landi
gunso (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 12:52
Landið er í einkaeigu og eiggendur vilja selja landið. Þeir vilja ekki leiga landið heldur selja.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 28.11.2011 kl. 09:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.