Laugardagur, 26. nóvember 2011
Kreppuklám.
Í umræðunni og þá sérstaklega þeirri umræðu sem Hagsmunasamtök heimilana halda upp er það þannig að allir á Íslandi eru fátækir og mikið skuldsettir. Það þarf að afskrifa hjá almenningi lánin sem þau tóku. Enginn má borga sínar skuldir. En hvað gerir fólk við peningana sem þeir fá.
Athyglsiverður punktur er þessi:
" Töluverð aukning hefur orðið í einkaneyslu á síðustu misserum. Þá aukningu má aftur á móti skýra með hliðsjón af tímabundnum úrræðum: eingreiðslum til launþega vegna kjarasamninga, vaxtaendurgreiðslum Landsbankans og úttektum á séreignarsparnaði."
Fólk notar ekki peningana sína í mat eða borga niður lán. Þeir fara í Lindex og versla föt eða kaupa sér ipad "jólagjöfina í ár". Kreppan er ekki meira en það. Þó að ýmsir vilja halda fram annað.
hvells
![]() |
Hagvöxtur á veikum stoðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
eru matarkaup ekki einkaneysla?
gunso (IP-tala skráð) 26.11.2011 kl. 12:38
Matarkaup sveiflast ekki. Helst stöðugt.
Ef þú átt auka pening þá kaupir þú ekki meiri mat heldur eitthvað sniðugt tæki eða flottari bíl.
Ef matur mundi fylgja krónutölu þá væri Bill Gates einn feitasti maður í heimi.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 26.11.2011 kl. 14:32
Ég þekki engan persónulega sem fór mjög illa út úr hruninu.
Kannski lifi ég bara í svona skemmtilegri búbblu.
sll
Sleggjan og Hvellurinn, 26.11.2011 kl. 14:54
En ef fólk hefur kannski verið mjög tæpt á mat og leitað sér hjálpar hjálparstofnana en getur nú verslað matinn? eða að fólk hefur nú efni á heilsusamlegri mat og sparað þar með í heilbrigðiskerfinu til lengdar?
gunso (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 12:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.