Föstudagur, 25. nóvember 2011
púlla Magma á þetta?
Hann getur léttilega púllað Magma á þetta.
Stofnað skúffufélag í Svíþjóð og málið dautt.
hvells
![]() |
Beiðni Huangs synjað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Er ekki kominn tími til að hann einhverjar gullfallegar lagasetningar sem koma í veg fyrir slíkt? Maður spyr sig...
Hildur Sif (IP-tala skráð) 25.11.2011 kl. 13:46
Eftir fréttinni að dæma þá eru þær til.
Um heimild til að öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum á Íslandi er nánar fjallað í lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna nr. 19/1966 með síðari breytingum. Í samræmi við 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. laganna er félagi þar sem enginn félaga ber fulla ábyrgð á skuldum félagsins eða stofnun óheimilt að eignast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum hér á landi nema félagið eða stofnunin eigi heimilisfang og varnarþing á Íslandi og allir stjórnendur séu íslenskir ríkisborgarar eða með lögheimili á Íslandi samfellt í a.m.k. fimm ár. Í hlutafélögum skulu 4/5 hlutar hlutafjár vera eign íslenskra ríkisborgara og íslenskir ríkisborgarar fara með meirihluta atkvæða á hluthafafundum. Í þessu felst nánar að sé þess óskað að hlutafélag fái að eignast fasteign hér á landi, og það fellur ekki undir undantekningarákvæði 1. tölul. eða 2. tölul. 4. mgr. 1. gr. laga nr. 19/1966, þarf það að uppfylla eftirtalin fjögur skilyrði laganna til að svo geti orðið:
1. Félagið skal eiga heimilisfang og varnarþing á Íslandi.
2. Allir stjórnendur félagsins skulu vera íslenskir ríkisborgarar eða með lögheimili á Íslandi í a.m.k. fimm ár.
3. 4/5 hlutar hlutafjár félagsins skulu vera í eigu íslenskra ríkisborgara.
4. Íslenskir ríkisborgarar skulu fara með meirihluta atkvæða á hluthafafundum.
Samkvæmt 2. tölul. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 19/1966 getur innanríkisráðherra, svo sem fyrr greinir, veitt leyfi til að víkja frá skilyrðum 1. mgr. 1. gr. laganna ef annars þykir ástæða til. Er hér um að ræða undanþáguákvæði sem ber samkvæmt almennum lögskýringarreglum að túlka þröngt. Telur ráðuneytið mikilvægt að við beitingu þess sé litið til markmiðs laga nr. 19/1966 og forvera þeirra, samnefndra laga nr. 63/1919, en af lögskýringargögnum verður ráðið að talið hafi verið að takmarkanir útlendinga til þess að öðlast réttindi yfir fasteignum á Íslandi væru nauðsynlegar til þess að standa vörð um sjálfstæði eða fullveldi landsins og möguleika Íslendinga til að njóta sjálfir arðs af auðlindum sínum
Veit reyndar ekki hvar þetta var þegar þeir seldu Magma. En svona er þetta sem betur fer.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.11.2011 kl. 14:18
Eins og Ásthildur bendir á gilda aðrar reglur um fasteignir, og þar með jarðir, en fyrirtæki. Ég held nefnilega að Magma hafi sloppið í gegn á þeim forsendum.
Kolbrún Hilmars, 25.11.2011 kl. 17:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.