Fínt að casha inn.

What up what up.

Þannig er mál með vexti að ég keypt eitt stk íbúð árið 2005 með láni frá Íbúðarlánasjóð. Svo fór ég til útlanda og leigði íbúðina út á mun hærri verð en afborganir. Leigan var svo há og afborganir svo lágar að ég gat lifað góðu lífi erlendis.

Svo kom ég heim árið 2007 og mitt eigið fé var búið að margfaldast í góðærinu.

Ég seldi íbúðina rétt eftir hun og cashaði inn gróðann og keypti mér nýjan bíl af einhverjum vesaling sem var að fara á hausinn á góðu prísi.

Nú er ég í góðri og vel launaðri vinnu. Ég vill ekki vera að braga en launin eru nær milljóninni á mánuði heldur en ekki.

Svo er talað um að færa vísitöluna aftur í tímann einsog hún var fyrir hrun. Það þýðir bara eitt fyrir mig.... meiri money money money.

Ég var að reikna út hvað ég mundi græða ef vísitalan færist til 1.jan 2008 og niðurstaðan er nokkrar feitar kúlur fyrir mig.

Ég vona að þetta gengur eftir. Ég er að spá í að fara í heimsreisu fyrir þennan pening. Hann verður reyndar tekinn frá skattborgurum og gamla fólkinu en mér er alveg sama. Ég gleymi því um leið og ég er að sötra kokteil á Kúbu.

Nú er sjálfstæðisflokkurinn byrjaður að tala um þessa afskrift af lánum. XD sér um sína :)


mbl.is Boða frumvarp um minna vægi verðtryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú splæsir um helgina :D

sleggjan (IP-tala skráð) 25.11.2011 kl. 10:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband