Segjum okkur úr EES.

Er ekki best að við segjum okkur úr EES og göngum aldrei inn í ESB svo stjórnmálamenn geta gert það sem þeri vilja hér á Íslandi á kostnað almennings?

hvells


mbl.is Rannsaka ríkisaðstoð til fjárfestingabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Það er svo mikið af öfgafullum skoðunum í gangi þessa dagana, að maður veit aldrei fyllilega hvort menn séu að grínast eða ekki. Mín niðurstaða er sú að blogg sé ekki góður vettvangur fyrir kaldhæðni, ótrúlega margir misskilja grínið.

Sveinn R. Pálsson, 23.11.2011 kl. 12:53

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Nei þetta er ekki staður að grínast á en vil samt að við segjum okkur úr EES og Shengen. Við eigum heldur aldrei að samþykkja ESB samning af neinu tagi. Verum frjáls.

Valdimar Samúelsson, 23.11.2011 kl. 12:57

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Segjum okkur úr EFTA, NATO og Sameinuðu þjóðunum... þá verðum við endanlega frjáls.

Alveg útópisk framtíðarsýn.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 23.11.2011 kl. 14:09

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Allt sem stjórnmálamenn gera er á kostnað almennings, sama hvort þeir gera rétt eða rangt, svo spurningin er óskiljanleg.

Við eigum að segja okkur úr alþjóðastofnunum í eftirfarandi röð:

  1. Schengen
  2. IMF
  3. BIS
  4. WTO
  5. WHO
  6. NATO
  7. OECD
  8. EES

Og svo eru eflaust fleiri sem ég man ekki eftir í svipinn, sem eru að kosta okkur meira en væntan ávinning af aðildinni.

En lykilatriði er samt, að almenningur kjósi um það fyrst. Þegar meirihluti almennings hefur sagt NEI í atkvæðagreiðslu er það ákveðin bremsa á að misráðnir pólitíkusar reyni að koma sér snemma á eftirlaun með því að fara gegn meirihlutanum. Og jafnvel þó þeir reyni það sýnir reynslan að þá koma þeir í það minnsta heim með mun betri samninga í hvert sinn sem þeir reyna.

Loks á að setja lög sem útiloka félagsmenn í leynifélögum frá því að taka sæti á Alþingi eða gegna störfum þar sem almenningur greiðir kostnaðinn. Ef slík lög hefðu verið í gildi hefðu ýmsir menn aldrei komist til valda, sem eftir á að hyggja hefði líklega verið betra ef hefðu ekki gert það. Þetta myndi líka útiloka aðild að ESB á meðan þeir stjórna þar sem nú gera.

Guðmundur Ásgeirsson, 23.11.2011 kl. 14:29

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Hvellur minn þetta er ESB helferðarhyskið þitt sem setti peningana í þessi gjaldþrota dæmi til að bjarga vinum og vandamönnum á þinn kostnað.  Ef þú heldur að tjónið hefði orðið minna með þetta hyski undir ESB contróli þá veðurðu villi og svima, og það ekki í fyrsta sinn.

Magnús Sigurðsson, 23.11.2011 kl. 15:37

6 identicon

Nú vill meirihluti Norðmanna seja sig úr EES samstarfinu og semja upp á nýtt í tvíhliða viðræðum við ESB, eins og Svisslendingar hafa gert. Að Norðmenn hugi að ESB aðild er orðið alveg útilokað þegar aðeins 12% Norðmanna styðja ESB viðræður.

Eftir að íslenska þjóðin verður búinn að jarða þessa ESB umsókn með svo miklum mun og bæði "hvellum" og "þrumum".

Þá ættum við að fara að huga að samstarfi við Norðmenn um breytingar eða uppsögn á EES samningnum og leggja í tvíhliða viðræður við ESB apparatið sem tryggðu báðum þessum þjóðum betur fullveldi okkar og sjálfsstæði, en engu að síður með góðum viðskiptaböndum.

Sannleikurinn er sá ef þetta er skoðað að ESB getur illa verið án bæði Norðmanna og Íslendinga til að fá skaffað til sín nægan fisk og nægjanlega olíu og gas.

Þannig að við saman með Norðmönnum værum í mjög sterkri afstöðu til að ná mjög góðum tvíhliða samningum, sem tækju af marga helstu ágalla EES samningsins.

Ég er viss um að þið munið styðja þetta Hvells menn þegar að því kemur.

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 17:06

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Bjartur í Sumarhúsum. Alveg sjálfstæður.

Held samt að það er mikilmennskubrjálæði að halda að Ísland skiptir höfuðmáli í ESB. Ekkert gas né olía hefur finnst. Mögulega olía á drekasvæðinu en hún verður óverulega.

Öll okkar orka getur séð 0,2% af ESB fyrir rafmagni. Ef við virkjum allar sprænur m.a gullfoss þá getum við séð 0,5% af ESB fyrir rafmagni.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 23.11.2011 kl. 18:11

8 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Af hverju ætti ESB að fá eitthvað af olíugróðanum sem finnst á íslenskri lögsögu?

Sleggjan og Hvellurinn, 23.11.2011 kl. 18:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband