Þriðjudagur, 22. nóvember 2011
NEI sinnar kasta steini úr glerhúsi.
Það er mjög skondið að nei sinnar benda á evruna og segja að hún sé að falla. Þeir eru reyndar búin að spá dauða evrunnar í 3 ár en ekkert gerist.
Eina sem hefur gerst er að krónan hefur fallið um helming, hún er í höftum og heldur áfram að veikjast.
En enn benda Nei-sinar á evrunna og vonar að hún falli .... bara örlítið. En ekkert gerist.
hvells
![]() |
Gengi krónunnar að veikjast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Bendir eitthvað til annars en að hún sé að falla??????????
Jóhann Elíasson, 22.11.2011 kl. 14:09
Húm helst og hefur haldist mjög stöðug... þrátt fyrir spá ykkar um annað.
En Evran er víst "alveg að fara að falla" næstu hundrað árin kannski.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 22.11.2011 kl. 14:28
"Sælir eru fattlausir því þeir fatta ekki hvað þeir eru vitlausir"............
Jóhann Elíasson, 22.11.2011 kl. 15:17
Ertu að segja að evran hefur verið stöðugari .. t.d seinustu 3ár.
Vinsamlegast komdu með heimildir fyrir því útaf það hefur algjörlega farið framhjá mér.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 22.11.2011 kl. 15:26
Lestu bara það sem er skrifað ef þú getur það....................
Jóhann Elíasson, 22.11.2011 kl. 15:46
Þú þarft að bakka það upp með heimildum því þín orð eru alveg marklaus.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 22.11.2011 kl. 16:29
Það er út af fyrir sig rétt hjá ykkur að EVRAN hefur verið helfrosinn og lítið fallið gagnvart öðurm helstu gjaldmiðlum.
Hinns vegar er EVRAN og EVRU svæðið í gríðarlegum vandræðum, það vita allir sem um málin fjalla nema íslenskir ESB sinnar eins og þið.
Til dæmis þyrfti EVRAN að falla um allt frá ca 15 til 30% og í sumum tilvikum allt upp í 50% fyrir sum af ríkjum Sambandsins.
En þess í stað situr hún föst að kröfu Þjóðverja og ECB bankans.
Þetta þýðir enn vaxandi atvinnuleysi margra þessara EVRU ríkja eins og t.d. Spánar þar sem atvinnuleysið er nú að ná 22% á landsvísu og hátt í 50% hjá ungu fólki.
Skuldatryggingarálag margra þessara ríkja er orðinn óbærilegt og ekki lengur sjálfbært og mörgum sinnum hærri en Íslands, þar sem það hefur stöðugt farið lækkandi og er nú lægra en meðaltal allra Evru ríkjanna.
Efnahagurinn á EVRU svæðinu er víða í rjúkandi rústum og fólksfækkun og fátækt stóreyskst og órói almennings lýsir sér í óeirðum, verkföllum og gríðarlegri reiði í garð Stjórnvalda þar með talið ESB valdsins !
Markaðurinn er heldur ekkert að kaupa þessa björgunarpakka og fumkenndar aðgerðir ES/EVRU forystunnar. Því að enn fleiri ríki virðast vera að sogast inn í þennan vítahring efnahagshörmunga. JAfnvel talað um að Frakkland sé að komast á þennan lista.
Gríðarlegur fjármagsnsflótti er nú frá EVRU svæðinu.
Eitthvað hlýtur bráðlega að láta undan, það eru flestir sammála um það.
Der Spiegel eitt virrtasta viðskiptatímarit Þýskalands sagði nýlega í forystugrein að "EVRAN VÆRI HÆTTTULEGASTI GJALDMIÐILL HEIMS"
En þið hérna spekingarnir "Sleggjan og Co. vitið náttúrulega betur en allir erlendu sérfræðingarnir !
Ykkur sem ekkert þykjast sjá eða heyra eða tala um vanda Evrunnar má líkja við þekkta ljósmynd þar sem að 3 apakettir sitja fyrir á mynd. Köllum þessa apaketti bara Össur, Árna Pál og Jóhönnu.
Einn apinn sem kallaður er Össur heldur fyrir augun, af því að hann vill ekki sjá það sem skrifað er og blasir við öllum um vanda Evrunnar.
Annar apinn, sem við skulum kalla Árna Pál, heldur fyrir eyrun af því að hann vill ekki heyra þau ósköp sem sögð eru um Evruna.
Þriðja apinn, sem við skulum kalla Jóhönnu, heldur fyrir munninn af því að hún vill alls ekki segja frá því sem að hún bæði sér og heyrir um hörmungar EVRUNNAR, auk þess sem hún kann ekki útlensku !
Þið viljið greinilega sam sama ykkur með þessum öpum.
En öll rök íslenska ESB trúboðsins eru fyrir löngu fokinn út í veður og vind, enn reya þó sumir ykkar að halda dauðahaldi í eitt þeirra og það er þá helst skuldavafningurinn EVRA, en það hálmstrá ykkar verður brátt að engu.
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 16:32
Vandi einstaka evurríkja er ekki evrunni að kenna heldur þeim sjálfum.
Evran skapar ekki atvinnuleysi enda er evrulandið holland í fínum málum þeð sitt 3% atvinnleysi. Svo er líka fínt að þar er engin verðtrygging og lágir vextir... ég get ekki sagt það um Ísland.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 22.11.2011 kl. 18:04
Það að Evran henti einhverjum löndum akkúrat þessa stundina eru ekki rök fyrir því að við eigum að taka Evruna upp
Hvað hefuru t.d. á móti Kanadíska dollarnum fyrst við erum á annað borð að tala um stöðuga gjaldmiðla, lága vexti heima við og lítið atvinnuleysi? En Kínverska Yuanið, er eitthvað því til fyrirstöðu að taka það upp? Kínverjar tækju eflaust ekki einu sinni eftir því í hagkerfi sínu
gunso (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 23:31
það er minnsta gjaldeyrisáhætta að taka upp evruna vegna þess að 70% af öllum útflutningi fer til evru landa.
Svo er mikilvægt að hafa lánveitanda til þrautarvara sem skapast ekki við einhliða upptöku.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 23.11.2011 kl. 00:04
1) Seðlabanki Evrópu er ekki lánveitandi til þrautavara enn sem komið er. Sum evruríki vilja að hann taki að sér slíkt hlutverk en Þjóðverjar eru mótfallnir (hefur þú ekkert verið að fylgjast með fréttum?).
2) Það er ekki rétt að 70% af útflutningi okkar sé í evrum. Áli er hinsvegar umskipað í Rotterdam sem gefur villandi mynd í tölum hagstofunnar (lestu þetta).
3) Vandi evrunnar er ekki gengisfall heldur hættan á lausafjárþurrð í einstökum ríkjum (sem síðan gerir þessum sömu ríkjum erfiðara um vik að fá lánsfé sem síðan eykur enn hættuna á lausafjárþurrð - hefur ekki verið hægt að komast út úr þessum vítahring þar sem Þjóðverjar vilja ekki samþykkja að Seðlabanki Evrópu verði lánveitandi til þrautavara). Þetta ógnar beinlínis tilveru evrunnar og það er ljóst að sá rammi sem nú er um myntbandalagið er ekki til langframa.
Þetta er ástæða þess að upptaka evru er ekki alvöru framtíðarstefna í peningamálum. Það er ekki framtíðarstefna að ætla að taka þátt í einhverju sem maður veit ekki hvað er ef það verður yfirleitt til.
ES. Það er hægt að halda gengi hvaða gjaldmiðils sem er sterku ef menn eru til í að valda nægilegum óskunda í raunhagkerfinu. Þjóðverjar eru að því er virðist tilbúnir að valda ótakmörkuðum skaða á hagkerfum jaðarríkja evrunnar frekar en að samþykkja gengisfall og verðbólgu. Þetta kemur líklega í hausinn á þeim á endanum, ef þeir þráast við, því þeir eru að eyðileggja eigin útflutningsmarkaði.
Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 04:37
Okkar helstu viðskiptalönd eru í Evrópu og það er ekki hægt að ákveða að taka út allan álfutning í evrum talið og svo bætt í dollarann sambandið við fiskinn og þá er fengið ákveðna niðurstöðu.
Þetta minnir mann á goal seek í Excel... maðurinn er að reyna að koma einhverju ákveðnu á framfæri og hann lagar til staðreyndir til að fá réttu niðurstöðuna.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 23.11.2011 kl. 08:47
Hans Haraldsson fer hér með rétt mál.
Þetta er mjög útbreidd lygi meðal íslenska ESB trúboðsins það er að mestur okkar útfluutningur sé í EVRUM. Alls konar tölur nefndar í því sambandi eða allt frá 50 til 70%. sem er haugalygi.
Hann er aðeins 27% en 37% í US dollar og restin eða 36% í öðrum gjaldmiðlum.
Innflutningur frá EVRU löndum er aðeins rétt í kringum 30%.
Þetta kemur allt ágætlega fram hjá Hans hér að framan og gott að skoða þar þær krækjur sem hann vitnar til.
Comment SleggjuHvellsins þar fyrir neðan er líka eins og þeir hafi orðið undir valtara, með öllu óskiljanlegt rugl án nokkurra röksemda, sem enginn skilur og varla þeir sjálfir !
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 10:03
"Vöruviðskipti eftir markaðssvæðum og löndum
Evrópska efnahagssvæðið var stærsta markaðssvæði Íslendinga hvað varðar vöruviðskipti árið 2010 en þangað fór 81,8% af vöruútflutningi árið 2010"
https://hagstofa.is/lisalib/getfile.aspx?ItemID=12358
Ég vill benda fólki á sem ætla að koma með einhver skæting á síðunni að vitna allavega í heimildir áður en byrjað er að saka menn um "haugalýgi", "rugl" og fleiri í þeim dúr.
Svona málfutningur dæma sig sjálf.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 23.11.2011 kl. 10:58
Burn
sleggjan (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 11:52
Sýnið nú þá virðingu að lesa athugasemdirnar strákakjánar. Þessar tölur hagstofunnar eru einfaldlega villandi og rangar í raun ef nánar eð skoðað. Þessi útflutningur er fjarri því keyptur af ESB þjóðum einum. Ef það væri rétt, þá væei helmingur okkar viðskipta við Holland. Þeir keypru allt álið og megnið af fiskinum. Þessu er hinsvegar umskipað í skip og flug um allan heim þaðan. Megnið af gjaldeyristekjum okkar af útflutningi er í USD og aðeins 30% af okkar innflutningi kemur frá ESB.
Reynið svo að sklja milli EES og ESB og Evrulanda í þessu samhengi líka. Hvað þá álfunnar Evrópu.
Þessar ályktanir ykkar eru rangar. Punktur. Þið kunnið ekki að lesa í tölur og heimildir, það er margsannað, enda nennið þið því ekki.
Jón Steinar Ragnarsson, 23.11.2011 kl. 13:45
Auðvitað gerum við greinarmun á EES, ESB og Evrulanda.
"77,6% vöruútflutnings fór til Evrópusambandsins, ESB, og 52,0% vöruinnflutnings kom þaðan"
https://hagstofa.is/lisalib/getfile.aspx?ItemID=12358
Þú Jón Steinar ert ekki með neinar heimildir til að bakka upp þín 30% innfluting. Enda ertu bullukollur með meiru.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 23.11.2011 kl. 14:34
Það er erfitt að rökræða við ykkur. Afhverju skoðið þið ekki krækjuna á commenti Hans Haraldssonar, eins og ég benti á hér að ofan.
Þar sem vísað er í grein eftir Heiðar Má Guðjónsson hagfræðing þar sem jafnframt kemur fram ágætt skífurit sem sýnir raunverulegan útflutning þjóðarinnar í helstu gjaldmiðlum heimsins þegar bnúið er að taka tillit til Rotterdams sem umskipunarhafnar vörunnar, en ekki, notanda eða endanlegs kaupanda þessa útflutnings. Það á ekki bara við um ál heldur einnig stóran hluta sjávarvöruútflutnings okkar til Japans og annarra Asíulanda og einnig til Afríku s.s. skreiðarsölu til Nígeríu.
Hef ekki rannsakað það en hef grun um að innflutningurinn sé sama marki brenndur þar sem hann fer oftast um Rotterdam höfn fyrst og er jafnvel oft síðan framseldur af milliliðum og heildsölum þaðan til Íslands meðan upprunalandið er Kína eða Indland.
ESB og EVRU svæðið er síminnkandi efnahagsveldi og eru eitthvert lægsta hagvaxtarsvæði heimsins í dag og búið að vera til margra ára.
ESB og EVRU svæðið munu sífellt skipta minna og minna máli varðandi viðskipti okkar og heimsviðskiptin í heild.
En þegar flestar orrustur ykkar ESB sinna eru tapaðar þá skal djöflast á einhverjum hálmstráum sem standast svo enga skoðun, eða skipta nánast engu máli, þegar á reynir.
Mikið óskaplega hljótið þið að vera orðnir örvæntingarfullir og kvekktir yfir lánleysi ESB/EVRU svæðisins og fylgisleysi ESB- trúboðsins á Íslandi.
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 15:20
ég er búinn að lesa þessa grein Gunnlaugur.. og svaraði því skilmerkilega í færslu nr 12.
En sama hvort það verður kanada dollar, usa dollar eða yen þá er einhliða upptaka annars gjaldmiðils verulega varhugarverð.
Hvort eigum við að skipa okkur í hóp með okkar nágranna og lýðræðisþjóðum eða eigum við að skipa okkur í hóp með Panama, Ekvador, El Salvador og Svartfjallaland??
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 23.11.2011 kl. 15:53
það eru kostir og gallar við báða möguleikana.
Ekki ert eitt rétt svar.
kv
Sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 23.11.2011 kl. 18:57
Maður er að berjast við bavíanana alla daga og svo kemur sleggjan og setlar keisið.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 23.11.2011 kl. 20:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.