Jákvæð þróun.

Þetta er mjög ánægjulega frétt. Krikjan hefur alltof mikið að segja varðandi fermingu á Íslandi. Flest börn vita ekkert meininguna á bakvið hana og segja bara já við prestinn vegna þess að þeir vilja nýjasta IPad sem bíður heima hjá þeim eftir fermingu.

Borgaraleg ferming er jákvæð þróun og krakkar sem fermast á þennan hátt eiga hrós skilið að taka sjálfstæðar ákvarðanir.

Það á að breyta þessu þannig að börn eiga að fá að velja. Hvort þau vilja hefðbundnar fermingar eða borgaralegar. En núverandi kerfi er það þannig að þú ert skráður í hefðbundar fermingar og þú þarft að segja þér úr þeim farvegi og velja borgaralega fermingu.

Sama með þjóðkirkjuna. Það væri eðilegast að fólk skráist EKKI sjálfkrafa í hana heldur fæðist alveg óháður trúarstofnunum. En svo ef þér líst vel á kristna trú og vilt vera kristinn þá áttu einfaldlega að skrá þig í trúfélagið.

hvells


mbl.is Borgaralegar fermingar vinsælar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hugsandi krakkar og foreldrar taka ekki þátt í skipulögðum trúarbrögðum.

DoctorE (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 14:02

2 Smámynd: Freyr Bergsteinsson

Ég er sammála um að þetta sé jákvæð þróun. Nú eru rúm 20 ár síðan ég fermdist en ég er alltaf að naga í handabakið á mér fyrir að hafa gert það. Mér fannst ég vera fara gegn minni eigin sannfæringu, en ég gerði það vegna þess að allir aðrir gerðu það - ég vissi ekki einu sinni að aðrir möguleikar voru í boði. Allir krakkarnir sem ég fermdust með fannst þetta lýðskrum, en hey - það biðu nýjar græjur heima, hver getur sagt nei við því.

 Það var jafnvel enn verra hjá konu minni, en þar kom prestur inn í kennslutíma og spurði allan bekkinn hverjir ætluðu að koma til sín í fermingu. Allir réttu upp hönd, þannig að hún þorði ekkert að vera öðruvísi fyrirframan hina í bekknum og rétti líka upp hönd, án þess að hafa neinn sérstakan áhuga á því.

Freyr Bergsteinsson, 22.11.2011 kl. 17:35

3 identicon

Það er rangt að alhæfa að flest börn viti ekki hver meiningin sé. Flest vita það. Varla til betra veganesti út í lífið en að vera kristinn. Sama hvað fáeinir trúleysingjar eða efasemdarmenn segja. Það er þeirra skoðun en ekki meirihluta þeirra er fermast. Kristin trú og biblían væru löngu horfin úr samfélaginu þetta væri ekkert. Það vita þeir best sem hafa kynnst. Kristin trú er í gríðarlegum vexti í heiminum sbr. Kína.

Sveinn (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 17:44

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Kristin trú er fínt... allir verð að dunda sig við eitthvað.

En það er mín skoðun að þú átt ekki að fæðast inn í þjóðkirkjuna. Þú átt að fæðast sem borgari þessa lands án þess að vera í trúfélagi. En ef þér líst vel á Bíblíuna og telur hún vera sanna og allt það. Þá má viðkomandi skrá sig í trúfélag og byrja að biðja.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 22.11.2011 kl. 18:06

5 identicon

Hvernig væri nú að kynna sér staðreyndir? Þú fæðist sem borgari þessa lands án þess að vera í trúfélagi

Foreldrar þínir skráðu þig í þjóðkirkjuna þegar þú varst skírður, þá sögðust þau ætla að ala þig upp samkvæmt kristinni trú

gunso (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 23:26

6 identicon

Gunso, hvernig værir að ÞÚ kynnir þér staðreyndir. Lestu lög um skráð trúfélög frá 1999:

 http://www.althingi.is/altext/stjt/1999.108.html

Í 8. gr. stendur: "Barn skal frá fæðingu talið heyra til sama skráða trúfélagi og móðir þess."

Kolbeinn (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 09:41

7 identicon

Sveinn: Áttarðu þig á einræðishyggjunni sem býr að baki þessum orðum þínum?

Þú telur þig vita hvað sé best fyrir alla aðra og vilt þar af leiðandi að allir fylgi þínum fordæmi hvort svo sem þeir vilja það eður ei!

Stalín væri stoltur af þér góurinn!

Og annað, ein stór ástæða fyrir því af hverju kristin trú er ekki löngu horfin fyrst hún er svona augljós vitleysa er til að mynda sú að í hundruðir ára var það dauðasök að jafnvel tala upphátt um efasemdir sem þú gætir hafa haft um kristna trú, þú varst einfaldlega brenndur lifandi!

Með tíð og tíma verður þessi óskapnaður, sem þessi trú er, svo rótgróin að henni verður bara varla bifað, hence ástandið í heiminum í dag!

Jón Ferdínand (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 14:18

8 identicon

Jón. Hvaða önnur hugmyndafræði kennir að þú eigir að elska óvin þinn og biðja fyrir þeim sem hata yður? Ekki blanda saman mannvonsku þeirra er segja sig kristna en eru það ekki með verkum sýnum?

Sveinn (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 16:14

9 identicon

Já virðist vera rétt hjá þér Kolbeinn, breytir því ekki að maður fæðist ekki endilega inn í þjóðkirkjuna á Íslandi

gunso (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 16:46

10 identicon

Enda veit ég ekki um neinn sem hefur haldið því fram að maður fæðist "endilega" inn í þjóðkirkjuna, heldur bara ef móðirin er skráð í hana.

Kolbeinn (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 17:11

11 identicon

... sem sagt sumir fæðast sjálfkrafa í hana og aðrir ekki. Aðrir fæðast e.t.v. sjálfkrafa í önnur trúfélög. Spurningin er þá af hverju maður ætti að fæðast sjálfkrafa í nokkurt trúfélag.

Kolbeinn (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 17:14

12 identicon

Hvað heldurðu að hefði gerst ef við hefðum notað þessa rómuðu taktík þína og Jesú í seinni heimsstyrjöldinni til dæmis?

Hvað hefði gerst ef við hefðum bara elskað nasistana? Ekki vera svona barnalegur!

Og ertu semsagt að segja að það sé ekkert ákvæði í Biblíunni, hinu ''heilaga'' orði Guðs sem kveður á um að drepa þá sem afneita trúnni? Ég endurtek, ekki vera svona barnalegur!

Vissulega segir Jesú elskaðu óvini þína en í Gamla testamentinu og jafnvel á þónokkrum stöðum í hinu Nýja er Guð að skipa fólki að drepa óvini sína...hmmm þetta er undarlegt! Ekki voga þér síðan að segja að Jesú trompi Guð því segir Jesú ekki líka:

Ætlið ekki að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema heldur uppfylla. Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða undir lok mun ekki einn smástafur eða stafkrókur falla úr lögmálinu uns allt er komið fram. Hver sem því brýtur eitt af þessum minnstu boðum og kennir öðrum það mun kallast minnstur í himnaríki en sá sem heldur þau og kennir mun mikill kallast í himnaríki. (Mt 5.17-19)

Hér er annar gullmoli:

Þriðja Mósebók 24:16 Hver sem smánar nafn Drottins skal tekinn af lífi, allur söfnuðurinn skal grýta hann. Hvort sem það er aðkomumaður eða innborinn, sem smánar nafnið, skal hann deyja.

Nú ég ætla ég að leggja þraut að fótum þér, ég segi að Guð sé kúkalabbi. Nú verður þú að grýta mig til dauða til þess að komast í náðina hjá honum Jesú vini þínum

Eins og alltaf eru kristlingarnir í algerlega óverjanlegri stöðu þannig að þeir þurfa að grípa til lyga og útúrsnúninga!

Kjáninn ég að ætlast til meira af þér.

Jón Ferdínand (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband