Laugardagur, 19. nóvember 2011
Er þetta hinn hreini íslenski landbúnaður?
Maður á kannski að byrja að venja sig á að kaupa frosna kjúklinginn sem fæst í Bónus. Hann kemur frá Danmörku og er mjög góður. Maður er allavega laus við salmonellusmit með því að bragða sér á danska kjúklingnum.
hvells
![]() |
Grunur um salmonellu í kjúklingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta er annað bloggið ykkar um efnið. Takið eftir að það stendur "grunur" þarna.
En þið eruð væntanlega að vísa til þess að við ættum að drífa okkur í ESB til að minnka líkur á slíkum grun. Salmonella er annars víðtækt vandamál í ESB og er ekki bundin við kjúklinga. Síðast drápust fleiri manns og hundruðir veiktust af salmonellu í grænmeti í ESB. Nokkuð sem ég man ekki eftir að afi komið upp hér.
Er þetta allt sem þið eigið eftir í baráttunni?
Endilega haldið áfram að unga út þessari snilld.
Jón Steinar Ragnarsson, 19.11.2011 kl. 11:37
Og by the way...Danskir kjúklingar eru seldir hér á landi. Ef þið hræðist þá Íslensku, þá er bara að kaupa þá.
Jón Steinar Ragnarsson, 19.11.2011 kl. 11:39
Það kemur fram í blogginu að ég Hvellurinn ætlar að kaupa danskar kjúklingabringur héðan í frá til að forðast salmonellu.
"síðast drápust fleiri mans í ESB"... já er það sambærilegt??
það búa 500milljónir í ESB en bara 300þús á íslandi.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 19.11.2011 kl. 12:12
Ég bjó 14 ár í Dk., salmonella var viðvarandi vandamál í kjúklingum, eggjum og ýmsu öðru.
Iðulega kólígerlar í vatninu....ojbara :(
Anna Grétarsdóttir, 19.11.2011 kl. 14:09
ég bjó í danmörku í ár og var aldrei var við neitt svoleiðis.
landbúnaðarvörur voru mun betri í danmörku. að mínu mati.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 19.11.2011 kl. 15:52
Salmonelluvesen er alltaf slæm frétt. Sama hvar í heiminum.
sleggjan (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 08:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.