Mánudagur, 3. október 2011
Ánægður með Guðmund.
Þetta var mikilvæg ræða hjá Guðmundi. Á meðan eyruð þjóðarinnar er við Alþingi þá var þetta eiginlega auglýsing fyrir Guðmund og hans nýja flokk. Fyrir hvað stendur flokkurinn hans nýji?
Ég var sammála öllu nema í atvinnumálum.
Hann er á móti alverum en veit ekki að það eru gríðarlegar miklar tæknigreinar, nýsköpun og frumkvöðlastarf hjá fyrirætkjum sem eru að þjónustu álverin. Kannski mun eitthvað af þessum fyrirtækjum vera flaggskip Íslands. Gleymum ekki að Marel byrjaði með að þjónusta sjávarútvegin.
Hann er á móti álverum en kemur ekki með aðra lausn nema "fjölbreytta græna atvinnustefnu" sem er bara klisja. Við viljum skýra lausn Guðmundur.
En Guðmundur er með góða stefnu í ESB, flottur í stjórnarskrámálinu og bættum vinnubrögðum.
Ég gæti hugsað mig um að kjósa hann og hans flokk þrátt fyrir stefnuleysi í atvinnumálum..... en ég er ekki viss.
hvells
![]() |
Ættum kannski að berja tunnur saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er ekki til pólitískt efni í þessum tækisfærissinna Guðmundi Steingrímssyni.Þvílíkur rugludallur sem hann hefir verið ætíð á þingi,það er pottþétt að Jóhanna Sigurðardóttir flugfreyja með meiru er ánægð með þennan pilt,hún á eftir að vefja honum um fingur sér eða er sennilegast byrjuð á því.
Númi (IP-tala skráð) 3.10.2011 kl. 23:53
Gott að þú ert ekki viss.
Sigurður Haraldsson, 4.10.2011 kl. 01:54
Númi
Þú vilt kannski útskýra þetta betur og færa rök fyrir það sem þú segir.
Sleggjan og Hvellurinn, 4.10.2011 kl. 08:31
Jóhanna á eftir að stýra ESB-sinnanum honum Guðmundi Steingrímssyni,og vinkla hann til sín. Ruglflokkur Guðmundar verður sem útibú Samfylkingarinnar Jóhanna tildæmis fjarstýrir flokksbróður mínum honum Steingrími J.
Númi (IP-tala skráð) 4.10.2011 kl. 09:20
Jóhann er ekki að stýra honum. Ef hún væri að því þá mundi Guðmundur fara til XS sem hann gerði ekki.
Og ég veit ekki betur en að AGS hefur séð um að stýra flokksbróðir þínum seinustu mánuði og ár. Ekki Jóhanna.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 4.10.2011 kl. 10:08
guðmundur var í World Class í ræktinni í dag bara flottur. Á meðan karpað var um fjárlögin 2012 á þingi í 1.umræðu. Óþarfi að vera viðstaddur það rugl.
sleggjan (IP-tala skráð) 4.10.2011 kl. 19:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.