Þriðjudagur, 27. september 2011
Berjumst fyrir ESB.
Flestir sem fara að mótmæla á laugardaginn eru að krefjast "aðgerða fyrir heimilin í landinu " einsog orðað er í tilkynningunni.
Aðal ástæðan fyrir slæmum kjörum almennings er gengisfall, verðtryggingin, háir vextir og verðbólgan.
Þegar við fáum evru þá fáum við lægri vexti, stöðugt gengi, enga verðtryggingu og lága verðbólgu.
Það væri réttast fyrir hagsmunasamtök heimilanna að berjast fyrir inngöngu í ESB. Því ef við hefðum verið í ESB þá væru íslensk heimili ekki stödd í þessum vanda.
hvells
![]() |
Hvetja fólk til að mæta við þingsetningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Vá hvað þú getur bullað :D
Anna Grétarsdóttir (IP-tala skráð) 27.9.2011 kl. 11:50
Einmitt hlítur að vera grín
Magnús Ágústsson, 27.9.2011 kl. 12:06
Takk fyrir málefnaleg innlegg.
En verðtrygging og gengisfallið eru að gera útaf við heimilin í landinu.
Það hefur engin hrakið þá staðreynd.
En takk fyrir innlitið
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 27.9.2011 kl. 12:57
Alveg einsog grísk heimili eiga ekki við neinn vanda að stríða, eða þá írsk?
Þetta eru nú meiri fullyrðingarnar sem þú ert með hérna og enginn fótur fyrir þeim. Hagstjórn á Íslandi hefur ekkert með gjaldmiðilinn að gera. Hann er bara eitt tæki af mörgum. Það væri t.d. meira atvinnuleysi hér ef við værum í ESB því að verðmætasköpun og útflutningur standa ekki undir neyslu landans. Þá má nú færa góð rök með krónunni á meðan hagkerfi heimsins sigla í gegnum svona olgusjó. Ein rök eru að gengisfellingin dreifir útfluttum verðmætum jafnar á milli landsmanna heldur en ef hér væri notuð Evra, því að fleiri fá vinnu en ella.
Kristinn (IP-tala skráð) 27.9.2011 kl. 13:03
Atvinnuleysið væri jafnvel minna ef við værum með evru.
Stöðugleiki og lægri vextir verður til þess að íslensk sprotafyrirtæki stækka innanlands ekki erlendis.
Guðmundur gerði þessu góð skil http://gudmundur.eyjan.is/2011/09/fogur-er-hliin.html
þar segir hann :
Á sama tíma hefur rafiðnaðarmönnum fjölgað úr 2.000 í tæplega 6.000 öll fjölgunin hefur verið í tækni og þjónustustörfum. Í dag hefur rafiðnaðarmönnum í Íslandi fækkað um 1.000 frá Hruni. Íslensk tæknifyrirtæki er flest farinn að gera allt upp í Evrum og mörg hafa flutt stöðvar sínar erlendis. Þau hafa sagt að ef Ísland gengi í ESB gætu þeir flutt heim um 3.000 störf á stuttum tíma.
Sleggjan og Hvellurinn, 27.9.2011 kl. 14:16
En verðtrygging og gengisfallið eru að gera útaf við heimilin í landinu.
Það hefur engin hrakið þá staðreynd.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 27.9.2011 kl. 14:16
Þetta er útúrsnúningur. Gengisfallið er tilkomið vegna þess að hér voru ekki flutt út nægileg verðmæti fyrir neyslu okkar. Gengisfallið er að mýkja höggið sem heimilin fá á sig. Höggið væri ekki minna ef hér væri Evra. Höggið væri fyrst og fremst öðruvísi. Sum heimili myndu standa betur. Sum heimili færu strax í þrot.
Ég trúi ekki Guðmundi.
Kristinn (IP-tala skráð) 27.9.2011 kl. 14:46
"Gengisfallið er að mýkja höggið sem heimilin fá á sig"
Reyndu að útskýra þessa setningu útá Austuvelli næsta laugardag. Útskýrðu þetta fyrir fjölskyldunni sem er komin í skuldarfen og á ekki fyrir mat handa börnunum sínum.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 27.9.2011 kl. 15:33
"Í ár verður vaxtastig á húsnæðislánum hér á landi sennilega um 14% (með verðbólgu), á meðan írsk heimili eru aðeins að greiða um 3,5%.
Á sama tíma eru laun flestra stétta mun lægri en almennt gerist á Írlandi."
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 27.9.2011 kl. 15:33
@Hvell
http://www.youtube.com/watch?v=Qh2sWSVRrmo
Kominn í þennan pakka eða hahahaha.
sleggjan (IP-tala skráð) 28.9.2011 kl. 07:24
Evrópumál eru einfaldlega ekki á dagskrá Hagsmunasamtaka Heimilanna. Ekki frekar en aðild að NATO er á dagskrá slysavarnafélagsins Landsbjargar. Samtökin beita sér fyrir sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna en ekki málum sem væru til þess fallin að sundra samstöðu þeirra. Augljóslega eru ekki allir félagsmenn sammála um Evrópumál, og það er líka allt í fína frá Kína.
Þetta hefur verið rætt á stjórnarfundi og þar var samþykkt einróma að gæta hlutleysis og taka ekki afstöðu að svo stöddu til málefna er varða Evrópusamruna, þar með talið þeirra er varða myntsamstarf.
Hagsmunasamtök Heimilanna beita sér fyrst og fremst fyrir sameiginlegum hagsmunamálum heimila. Augljóslega eru ekki allir sem eiga heimili með sömu skoðanir í Evrópumálum, enda þarf það ekkert að fara saman. Það eru nú þegar til samtök um Evrópumál og stjórnmálaflokkar sem hafa stefnu í Evrópumálum, bæði með og á móti aðild. Þar er hinn rétti vettvangur fyrir slíka umræðu. Ekkert bannar þér að vera samtímis félagi í Hagsmunasamtökum Heimilanna og Samtökum Fullveldissinna og Golfklúbbnum Keili, ef þig skyldi langa það.
En ef þú myndir spyrja mig persónulega, myndi ég svara því að mín persónulega skoðun er sú að það er jafn galið að afsala gjaldveldinu eins og að vera áfram með tvo gjaldmiðla, krónu og verðtryggða krónu. Tvöfalt gengi er brot á stofnsáttmála Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem Ísland á aðild að. Hvort sem við myndum síðar taka upp evru eða ekki þá er engu að síður óhjákvæmilegt að leggja fyrst niður verðtryggðu krónuna. Og ganga svo í Heimssýn og Samtök Fullveldissinna ef við viljum halda í hina eða kanna fleiri möguleika.
Ef þú vilt fá lægri verðbólgu og betri kjör er lausnin einföld óháð gjaldmiðli. Þar sem verðbólga er afleiðing af aukningu peningamagns, þá er einfaldasta leiðin til að koma böndum á hana að fara hreinlega niður í Seðlabanka og skrúfa fyrir sírennslið, eins og góður pípulagningamaður myndi gera. Það gæti hinsvegar orðið erfiðara að skrúfa fyrir hjá Trichet og félögum í Frankfürt, sem eru núna á fullu með brunaslönguna að dæla evrupeningum sem olíu á gríska bálið.
Bestu kveðjur.
Guðmundur Ásgeirsson, 28.9.2011 kl. 18:27
Enn er til fólk sem trúir því að innganga í ESB snúist um vexti af íbúðarlánum.
Legg til að Hvellurinn kynni sér stefnuræðu Barrosos frá því í morgun. Hann stýrir einhverju allt öðru ESB en Össur og uppgjafarsinnarnir telja okkur trú um að bíði okkar.
Haraldur Hansson, 28.9.2011 kl. 22:39
"Í ár verður vaxtastig á húsnæðislánum hér á landi sennilega um 14% (með verðbólgu), á meðan írsk heimili eru aðeins að greiða um 3,5%."
Hér er því haldið fram að írsk heimili fái betri lánskjör en ríkissjóður Írlands, Grikklands, Portúgals, Spánar... Frábært, því þessi ríki eru öll að glíma við háar afborganir. Hér er auðvitað fundin lausn á skuldavanda álfunnar!
hvells hringdu strax í Barroso vin þinn og segðu honum frá uppgötvun þinni.
Lægstu vextir sem eru í boði á nýjum húsnæðislánum hér á landi eru 6,45% (með verðbólgu). Það kallast óverðtryggt lán og hefur ekki verið markaðssett sem valkostur í fjármögnun íbúðakaupa fyrr en eftir að Hagsmunasamtök Heimilanna hófu baráttu sína fyrir afnámi verðtryggingar.
Ég veit ekki hvaðan upplýsingar um 14% lántökuvexti eru fengnar, en ef slík kjör bjóðast þætti mér skrýtið ef þau eru vinsæl. Nema kannski hjá sama fólkinu og vildi kvitta undir IceSave reikninginn. En sem betur fer hafa nú flestir lært að þekkja ósanngjarna lánasamninga og hafna þeim.
Og þekkja lygar þegar þær eru á borð bornar.
Guðmundur Ásgeirsson, 29.9.2011 kl. 02:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.