Miðvikudagur, 14. september 2011
Bara svo þið vitið
Þá er ESB með mjög góða byggðarstefnu á meðan Ísland er ekki með neina. Ef það glittir í byggðarstefnu á Íslandi er hún veikburða og óskipulögð og aðalega tegd við einstaka ráðamenn og kjördæmapot þeirra.
Þetta er mjög skynsamlegt af Eldingu. Það eru gríðarleg tækifæri sem leinast í samningum við ESB.. sérstaklega á landsbyggðinni. Fleiri og fleiri sem hafa kynnt sér málið vita þetta. Hinir fáfróðu berja enþá hausinn í steininn því miður.
hvells
![]() |
Vilja ganga í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ha ha ha.. þessi tillaga er svo mikil snilld.
"Við vonumst til að evrópusambandið hafi betri skilning..."
Með öðrum orðum þá hefur hann ekki hugmynd um það.
"með inngöngu í ESB geti smábátaeigendur fengið styrki frá sambandinu"
..þetta er háleitt markmið, að fara á styrki því eitthvað rekst illa.
Meðan Ísland ver sínar auðlindir gegn ágangi, bæði innlendum og erlendum þá vilja þessir menn ganga tortímingarstefnu ESB á hönd í sjávarútvegsmálum. Kasta sjálfbærni, uppbyggingu og yfirráðum íslendinga til áratuga fyrir róða og afsala fullveldi landsins í leiðinni ...í þeirri von um að kannski fái þeir styrki. Alveg sannarlega glæsilegt, þessu geta menn verið stoltir af markmiðum sínum.
Hvers vegna ætli sumum sjávarútvegsfyrirtækjum gangi vel en öðrum illa, hafa menn velt því fyrir sér? Nei nei, þetta er bara ríkisstjórninni og Hafró að kenna, ESB hlýtur að redda þessu. Sjávarútvegsráðherra, eins mikið á móti ESB og hann er, virðist ekki átta sig á því að hann rekur menn í fangið á ESB með því að eyðileggja sjávarútveginn með strandveiðum og árabátavæðingu.
ha ha ha.. þessi tillaga er svo galin á svo marga vegu. Ég held að önnur smábátafélög ættu að bjalla í hann Sigurð og ræða aðeins við hann.
Njáll (IP-tala skráð) 14.9.2011 kl. 17:24
Ég er nú ekki sáttur við það ef það á að innleiða styrki í sjávarútveginn á Íslandi. Það kemur ekki til greina!!
Annars er mikilvægt að ríkisstjórnin skipuleggi byggðamál á Íslandi. Ef hún gerir það, þá er hægt að skilgreina betur hvaða styrki er hægt að fá til að styrkja byggðirnar.
Þegar Austur-Þýskaland var "innlimað" í Vestur-Þýskaland, þá var austrið skilgreint sem byggð sem gæti fengið styrki og það var nýtt vel. Heima hjá mér eru út um allt lítil skilti þar sem stendur að verkefnið hafi verið styrkt af ESB.
Sáttur við það.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 14.9.2011 kl. 17:46
Einsog flestir sem hafa kynnt sér málefni ESB þá kemur fram að hlutfallslegur stöðugleiki tryggir okkur veiðrirétt innan við 200mílna lögsögu. Að því leyti þá breytist ekkert.
En því miður þá hafa margir ekki hugmynd um hvað þeir eru að tala.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 14.9.2011 kl. 17:56
Bara svo ég viti ...
Hvað er það sem er helst gott fyrir okkur í byggðastefnu Sambandsins? Og nákvæmlega hvar leynast hin gríðarlegu tækifæri?
Ég veit að það er 344 manna nefnd sem fjallar um byggðamál og að við sjálf myndum borga brúsann, svo ég er bara að spyrja um kostina.
Haraldur Hansson, 14.9.2011 kl. 18:43
Besti styrkurinn sem landsbyggðin getur fengið er að ráða sínum málum sjálf, ekki einhver leiksýning þar sem landsbyggðin fær sína eigin peninga aftur frá miðstýringunni í Reykjavík dúlbúna sem ölmusu.
Gulli (IP-tala skráð) 14.9.2011 kl. 20:45
Haraldur
Mæli með þessum link
http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP2261
Um kosti og galla byggjarstefnunnar og landbúnarðarstefnu ESB. (sem tvinnast saman)
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 14.9.2011 kl. 21:57
Gulli, ég er sammála því. Borgum skatta og látum ráðherra ráða því hvert peningarnir fara!! Það er það eina rétta.
Er það ekki svo að peningarnir verða eftir í borginni?
En hvað með það, landsbyggðin er mjólkurbú höfuðborgarsvæðisins og á að vera það áfram. Annars getum við ekki lifað þar;)
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 14.9.2011 kl. 22:12
...góða byggðarstefnu á meðan Ísland er ekki með neina.
Lögum þá einfaldlega byggðastefnuna.
Bestu breytingarnar koma innanfrá en ekki að utan.
Þetta er ekki flókið.
Guðmundur Ásgeirsson, 15.9.2011 kl. 02:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.