Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Föstudagur, 22. ágúst 2014
Lokum sjoppunni
Þessi svokallaða stofnun hefur verið til skaðræðis frá stofnun.
Hún hefur kostað almenning og skattborgara tugi milljarða.
Hvert samþykkt mál hefur kostað 4 milljónir í úrvinnslu. Það hefði verið betra að eyða þessum tugi milljörðum að borga niður skuldir fólks í staðinn fyrir að mata möppudýrin.
Það er jákvætt að það sé verið að loka stofnuninni í Keflvavík og ég vona að stofan í RVK loki fyrir árslok.
hvells
![]() |
12 sagt upp hjá Umboðsmanni skuldara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 21. ágúst 2014
Spörum milljarða
Látum stjórnmála og embættismennina nota UBER í staðinn
hvells
![]() |
Milljarður í leigða bíla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 21. ágúst 2014
Hegðun heillar þjóðar getur brenglast
Miðvikudagur, 20. ágúst 2014
Þökkum viðtökurnar-Aldrei vinsælli
Sleggjan og Hvellurinn hafa aldrei verið vinsælli.
Þessi bloggsíða stækkar með hverju árinu og er orðinn áhrifamikill miðill á umræðuna í samfélaginu.
Það lýsir sér kannski helst að áhrifamenn hafa sent okkur vefpósta og hvatt okkur til að taka einhver mál fyrir eða reyna hafa áhrif á afstöðu okkar í einstökum málum.
Það sem þeir vissu ekki en vita núna er að ritstjórnin hérna á síðunni er 100% sjálfstæð og tekur ekki við skipunum frá neinum.
Hér er listi vikunnar hjá Blogggáttinni þar sem öll blogg landsins eru birt. Bara þungavigktabloggin efst.
Hægt er að smella á myndina til að stækka hana.
Sitjum í 14 sæti.
Bloggið okkar er vinsælla en t.d bloggið hjá Birni Bjarnasyni. Vinsælli en Marínó hjá Hagsmunasamtökum Heimilanna. Vinsælli er DR-Gunni.
Þökkum aftur fyrir okkur.
Kveðja
Sleggjan og Hvellurinn
Skoðum þetta með stærri letri:
Vinsælustu bloggararnir
- Jónas Kristjánsson
- Egill Helgason
- Björn Valur Gíslason
- Teitur Atlason
- Stefán Ólafsson
- Ómar Ragnarsson
- Agnar Kristján Þorst...
- Einar Steingrímsson
- Páll Vilhjálmsson
- Harpa Hreinsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Páll Ásgeir Ásgeirsson
- Jens Guð
- Bjarni Freyr Borgarsson
- Matthías Ásgeirsson
- Trausti Jónsson
- Björn Bjarnason
- G. Pétur Matthíasson
- Smári McCarthy
- Ingimar Karl Helgason
- Snorri Óskarsson
- Gunnar Waage
- Marinó G. Njálsson
- Dr. Gunni
- Óli Gneisti Sóleyjarson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2014
Ættu að hefna sín á Hamas
Þessir "mótmælendur" ættu að hefna sín á Hamas samtökunum. Hamas byrjaði með eldflaugaárasirnar. Það er ekkert flóknara.
Myndin við fréttinar er frekar lýsandi. Þar eru bara karlmenn því í múslimsku samfélagi eru konurnar kúgaðar og skulu vera heima hjá sér við eldavélina með börnin.
Femínistar á Vesturlöndum samþykkja þetta eins furðulega og það sé. Femínistar missa trúverðugleikann sinn á hverjum degi.
kv
Sleggjan
![]() |
Kröfðust hefnda gegn Ísrael |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 20. ágúst 2014
Landsbyggðin
Heldur hann Ísleifur að það séu hlutfallslega fleirri JT aðdáðendur í RVK heldur en á landsbyggðinni?
Þessir 4þúsund manns eru líklega langflestir á landsbyggðinni sem hafa ekki gert sér ferð alla leið til RVK til að ná í JT miða.
Það breytir engu að það séu þrír afhentingastaðir..... allir í RVK.
Það þarf allavega að vera einn afhentingastaður á Akureyri og einn á Egilsstöðum.
Vona að hann Ísleifur bætir úr því sem fyrst.
hvells
![]() |
4000 miðar ósóttir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2014
Vindbelgir
Karl og Eygló eru vindbelgir.
Bjarni hefur margoft upplýst að á móti einfödlun á VSK-kerfinu mun koma mótvægisaðgerðir.
Það findna við þetta lýðskrum er að þau bæði nefna það að þau eru hlynnt einföldun VSK kerfisins.
Þau eru að viðurkenna að vera vindbelgir.
Sorglegt..... kemur ekkert á óvart miðað við að þeir eru í XB
hvells
![]() |
Má ekki bitna á þeim lægst launuðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 20. ágúst 2014
Ríkisvæðing uppeldis
Þessi mikla fjölgun er mikið áhyggjuefni fyrir alvöru borgara þessa lands. Sóley Tómasdóttir hoppar hæð sína enda vill hún með öllu ríkisvæða uppeldi barnanna okkar.
Þetta er að sjálfsögðu mjög varhugverð þróun.
Og bitnar aðalega á börnunum okkar til viðbótar við fjárausið og hærri skatta eða niðurskurð annarstaðar.
Ég væri til að sjá aukna atvinnu hjá dagmömmum og svo lenging fæðingarorlofs hjá báðum foreldrum í eitt ár á mann.
hvells
![]() |
83% barna á leikskólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Miðvikudagur, 20. ágúst 2014
Fleiri skref
Már er að gera rétt með þessum inngripum. Fyrir nokkrum árum var það regla að gengið styrkist yfir sumartímann þegar ferðmenn koma og veikist síðan þegar haustið fer að skella á. Sem er að sjálfsögðu alveg galið að hafa svona sveiflur.
Már er að gera rétt að grípa inní og hann hefði betur gripið hressilegra inní vegna þess að gengið er ennþá of sterkt og hér er viðskiptahalli á vöruskiptum og einkaneysla er orðin of mikil.
hvells
![]() |
Keypt gjaldeyri fyrir 61 milljarð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 20. ágúst 2014
Sammála Gunnari
Deilihagkerfið er komið til að vera.
Hér er fjármagn fasti. Það geta allir verið sammála um það. Það er ekki til endalaust fjármagn.
Þessvegna er mikilvægt að nýta fjármagnið sem best og deilihagkerfið er lausnin
"Með þeim hætti næst fram betri nýting á auðlindum, mannafli og framleiðslutækjum"
Rétt er það.
Her mun aukast framleiðni og svo framvegis.
Eina ógnin eru sérhagsmunarhópar og sú ógn að stjórnmálamenn munu standa með þeim gegn almenningi. Ég bendi t.d á leigubílstjóra. Það var flutt mjög einhliða frétt um einhverja skutl-facebook síðu um daginn og talandi um að þessir skutlarar væru bara ótýndir glæpamenn á óskoðuðum bílum.... og misvitrir stjórnmálamenn (aðalega úr Framsóknarflokkinum) munu hoppa á þennan vagn og byrja á lagasetningum sem drepa deilihagkerfið.
Niðurstaðan verður því verri lífskjör fyrir alla.
hvells
![]() |
Deilihagkerfið alls engin ógn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |