Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Lifandi dæmi

Þetta er lifandi dæmi um að kjarasamningar eru komnir útí ruglið.

Fyrirtæki eiga að vera frjálst að semja milliliðalaust um kaup og kjör.

Einsog Íris sagði í upphafi. Hún var sátt með vinnu og að geta borgað sína reikninga. 

Það er ekki fyrr en hún fer að djöflast í einhverjum óraunhæfum og ósanngjörnum kjarasamningum sem einhverjir gaurar í fílabeinsturni þykjast vita betur en launamenn og viðkomandi fyrirtæki hvað þeim er fyrir bestu.

Þessi stéttafélög eru í bullinu og það þarf að leggja þetta apparat niður.

Menn eiga að hafa frelsi til að semja.

hvells


mbl.is „Mér fannst þetta skítleg framkoma“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni að gugna

Nú er Bjarni að gugna. Hann hefur ekki pólitiskt þrek að ráða Ragnar sem Seðlabankastjóra og vill bara ráða alla þrjá: Þorstein, Már og Ragnar.

Þetta er með ólíkindum. Þetta á að vera hægri maður en hann hefur blauta drauma um að ráða þrjá embættismenn í staðinn fyrir einn.

Þetta nær engri átt og ég vona að Bjarni hættir þessu rugli sem fyrst.

hvells


mbl.is Hallast að fjölgun seðlabankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir er búin að klúðra málunum

Hún hefur valdið því að okkar helstu náttúruperlur eru að drampast niður. Nýtt met var slegið í ferðamannafjölda og Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir hefur ekkert gert í þessu nema tala um náttúrupassa og veita nokkra aura í óljósar aðgerðir. En í hjáverkum hefur hún farið í dómsmál við menn sem eru að reyna að bjarga því sem bjarga verður.

hvells


mbl.is Segja útgjöld innan heimilda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ISIS

Heimildarmynd um þessi mannskæðu hryðjuverkasamtök sem hafa hernumið hluta af Sýrlandi og Írak.

 

hvells


Brynjar Níels um flóttamenn og fölsuð skilríki

http://www.dv.is/sandkorn/2014/8/11/brynjar-hissa/

"Heldur þú, Andri, að hælisleitendur sem koma og framvísa fölsuðum skírteinum, fljúgi beint hingað frá heimalandinu? Til þess lands sem þeir koma hingað frá hafa hælisleitendurnir annað hvort komið með eigin skilríki eða fölsuð skilríki. Hafi þau verið fölsuð er búið að taka þau af þeim áður en þeir koma til Íslands. Því þarf að falsa skilríkin í viðkomulandinu til að framvísa þeim hér á landi. Kannski viltu ekki, getur ekki eða það hentar þér ekki af pólitiskum ástæðum, að skilja þetta. Hins vegar má bæta við að ég geri engar athugasemdir við þá pólitísku afstöðu að Ísland eigi að vera opið öllum sem vilja hingað koma, löglega eða ólöglega. Menn mega hafa þá skoðun þótt ég telji slíka pólitík dauðadæmda. "

 

Athyglisvert ef Andri mun svara þessu sem ég býst ekki við. Andri er þessi týpíski mannúðarelskandi vinstrimaður en hatar samt gyðinga og vill útrýma þeim.

 

 

kv

Slegg


Gyðingahatrið verst á Íslandi

http://eyjan.pressan.is/frettir/2014/08/09/gydingahatur-i-evropu-ekki-verid-meira-sidan-a-timum-nasista/

Gyðingahatur aldrei verið meiri í Evrópu síðan á tímum nasista. Hér á Íslandi ekki heldur. Við Íslendingar tókum ekki við neinum flóttamönnum af gyðingauppruna í seinni stríði. Sentum þá í opinn dauðann. Það er bara svipuð hugsun í gangi í dag.

Það sorglegasta er að mestu gyðingahatararnir á Íslandi eru þessir týpísku friðelskandi vinstri menn. Menn sem mótmæla fyrir utan sendiráð þegar flóttamaður er sendur aftur til Noregs eða Grikklands. Eða þegar Ísrael ver sig. Sama fólk og kvartar undan mannréttindabrotum á samkynhneigðum á Íslandi varðandi blóðgjafir. Sama fólk og mótmælir framferði Rússa á samkynhneigðum.

Þetta fólk eru mestu gyðingahatararnir. Þeir vilja beinlínis senda þá í opinn dauða. Það hefur komið skýrt fram í athugasemdum, bloggfærslum og facebookstatusum. Átti samtal við Evu Hauks fyrir nokkrum misserum. Hún er þekkt fyrir sterkar skoðanir á flóttamönnum sem hingað koma. Húnn vill beinlínis reka alla gyðinga úr Ísrael. Afmá ríkið og gera milljónir gyðinga að flóttamönnum. Ég screenshottaði þessi ummæli frá henni til að hafa þetta til taks.

Svo vellur hatrið upp úr Teiti Atlasyni að mér býður við.

Ég lýsi fullum áhyggjum yfir gyðingahatrinu á Íslandi og bið alla um að gæta hófs í hatrinu á þeim!.

kv

Sleggjan


Mín lausn

Lausnin mín er tiltölulega einföld og getur sparað Eyglóu Harðadóttur mikinn tíma og skattborgara peninga.

Leggjum niður Íbúðarlánasjóð.

Bankarnir geta séð um íbúðarlán og hafa gert það betur en ÍLS eftir hrun.

Skattborgarar spara síðan milljarða sem hægt er að nota til að lækka skatta.

hvells


mbl.is Vara við afnámi verðtryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bláa lónið gerir rétt

"Verðhækk­an­ir hafi ekki áhrif á fjölda gesta. „Sá lær­dóm­ur sem við höf­um dregið af okk­ar verðstefnu er sá að við vor­um að und­ir­verðleggja okk­ar þjón­ustu. Gæði þeirr­ar upp­lif­un­ar sem við erum að veita okk­ar gest­um eru það mik­il að þessi verðlagn­ing er eðli­leg. Töl­urn­ar hljóta að tala sínu máli."

 

Geysir, Gullfoss og allir hinir staðirnir eiga að gera nákvæmlega það sama.

Rukka duglega inn á þessar verðmætu náttúruperlur og byggja upp myndarlega aðstöðu og auka upplfiunina. 

Þeir byrjuðu meirséa að rukka fyrir fólk sem vildi bara skoða.....  ekki er vitað til þess að Ögmundur arkaði þarna inn og neitaði að borga.

hvells


mbl.is Aldrei fleiri í Bláa lónið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cash for Clun­kers

Þetta er dæmi um "unintended consequences"

Stjórnmálamenn halda að þeir séu að gera gott með að vera með puttana og djöflast í atvinnulfífinu.

Eitthvað sem hljómar vel (reyndar illa í mínum eyrum) getur haft ófyrirséaðar afleiðingar einsog þetta "cash for clunkers" sýnir svart á hvítu.

Þetta var reynt í Þýskalandi líka með líklega svipuðum afleiðingum.

hvells


mbl.is Bílsmiðir töpuðu á hjálparpakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sönnun

Þetta er bara sönnun þess að hér á landi eru til örfáir hálvitar.

Ég hef verið kallaður dólgur, ógeðslegur, landráðamaður, aumingi og svo framvegis bara vegna pólítsikrar skoðana.

Hinsegin fólk er ekki eini hópurinn sem verða fyrir barðinu af hálvitum.

hvells


mbl.is Ótrúleg ummæli í athugasemdakerfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband