Föstudagur, 3. janúar 2014
Gandhi
Flott myndband þar sem er farið yfir feril hans Gandi á 40mín... merkur maður.
hvells
![]() |
Gandhi stefnir á leiðtogasætið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 3. janúar 2014
Villandi
Þetta er jákvæð frétt og allt það
En mjög villandi fyrirsögn. OR er ekkert að "spara" vexti. Þeir eru einfaldlega að greiða þá vexti sem komu fram í lánaskjalinu.
Bjarni segir "Þá er miðað við upphaflega áætlun um vaxtakostnað í Planinu,"... þó að niðurstaðan sé betri en áætlunin þá er það ekki sparnaður. Kannski var áætlunin einfaldlega viltaus?
Ef ég tek með mér fimmhundurð kall uppí tíu ellefu til þess að kaupa egg. Ég held að eggjabakki kostar 500kr en svo mæti ég á staðinn og hann kostar bara 350kr. Er ég þá að spara 150kr?
hvells
![]() |
OR sparar milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 2. janúar 2014
Samstaðan góða og sáttin
Hér á landi eru mjög mismunandi skoðanir á flestum málum.
Gott og blessað.
En til að ná sem mestri sátt hljóta allir að vera sammála um að það þarf að hafa sem flestar þjóðaratkvæðagreiðslur um stóru málin.
Byrjum á ESB þjóðaratkvæðinu sem XD lofaði. Þá næst sátt, allir skilja að meirihlutinn skal ráða, eðlilegt.
kv
sleggjan
![]() |
Ólafur hvetur til samstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 2. janúar 2014
Gott hjá þeim,en
Flott hjá þessum sveitafélögum.
Hvað eru þau að fá úr Jöfnunarsjóði Sveitafélaga? Erum við hin að borga þennan nýárspakka?
Stærðarhakvæmni er allavega ekki til staðar.
kv
Sleggjan
![]() |
Þrjú sveitarfélög lækka útsvar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 2. janúar 2014
Skagfirðingurinn
Nú er um að gera fyrir Gunnar braga að sannfæra Finnlendinga um að þeir eru alls ekki sjálfstæð þjóð heldur eru í ESB og eru með EVRU.
Hvernig getur Gunnar sannfært skagfirðingana sína um að hann er ekki að fara að heimsækja land með sinn eigin forsætis og utanríkisráðherra heldur einhverskonar hrepp í ESB.
hvells
![]() |
Gunnar Bragi heimsækir Finnland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 2. janúar 2014
Áfall fyrir NEI sinna
Þessar fréttir hljóta að vera gríðarlegt áfall fyrir NEI sinna.
Þeirra helstu rök undanfarin ár er ávalt að benda á evrusvæðið og öskra úlfur úlfur.
Nú er evrusvæðið að rétta úr kútnum.
Vissulega eru vandræði til staðar en því lengur sem ESB umsóknin er haldið í gíslingu hjá Gunnars Braga því betra verður ástandið á Evru svæðinu.
Við Já sinnar fylgjumst bara vel með góðum fréttum frá ESB á meðan umsóknin við hana eykst og eyskt.
Í raun eru það aðalega NEI sinnum að þakka að ennþá er vona að Ísland gagni í ESB vegna þess að ef kosið hefði verið um samninginnn árið 2009-2010 þegar vandræðin á evrusvæðinu voru mikil þá hefði samningurinn verið kolfellldur.
En núna er breytt staða.......................og NEI sinnar í áfalli.
hvells
![]() |
Atvinnulífið tekur við sér á evrusvæðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 2. janúar 2014
Rógburðurinn - Gylfi stendur uppúr sem sigurvegari
Gylfi hefur hárrétt fyrir sér. Hann á mikið hrós fyrri að nenna að svara svona vitleysingum sem endurspegla bara 4% aðildarfélaga innan ASÍ.
Gylfi verst þessum ásökum fimlega og hefur hann Gylfi vaxið gríðarlega í starfi og á hann mikið hrós fyrir góðum kjarasamningum sem nær allir eru fyllilega sátt við.
Við völdum stöðugleika og bætt lífskjör til framtíðar. En ekki Verðbólgúleiðina sem Vilhjálmur birgis og Aðalsteinn vilja fara.... með tileyrandi hækkun á húsnæðislánum, minnkum kaupmáttar og verri lífskjör.
"Það þarf ekki mikla þekkingu til að sjá að 7% almenn hækkun leiðir til þess að krónutöluhækkun þeirra sem eru með dagvinnulaun yfir 300 þús.kr. verður meiri en hækkun taxta og enn meiri meðal hæstu launa en ef viðkomandi hópar fá 2,8% hækkun. Því veit ég ekki hverju þú ert að mótmæla við ummæli mín? Varla ertu að afneita eigin kröfugerð?"
Gylfi er alveg spot on. Og ég veit að Aðalsteinn er í áfalli og veit ekki hvernig á að svara þessu... enda hefur hann Aðalsteinn enga þekkingu á hvorki efnahagsmálum né kjaramálum.
Til hamingju Gylfi og til hamingju ASI og til hamingju Ísland.
hvells
![]() |
Gengur gjörsamlega fram af mér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 2. janúar 2014
ESB
Ef Ísland væri í ESB og með Evru þá væri þetta vandamála ekki til staðar.
"gjaldeyrisstaða", "verðtryggð lán" "gengisfall".... öll þessi hugtök væru okkur Íslendingum algjörlega ókunn.
Þar að segja ef við værum í ESB og með EVRU.
En einangrunarsinnar vilja halda okkur í verri lífskjörum til framtíðar.
Já við ESB'
hvells
![]() |
Gjaldeyrisstaða þjóðarbúsins betri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 2. janúar 2014
Dýraeftirlit
Ef það er ennþá þörf fyrir þessari viðbót.
Hvað eru þá eftirtaldir aðilar að gera á daginn?:
http://www.akranes.is/frettir/nr/121287/
http://www.ry.is/efni/meind%C3%BDraey%C3%B0ing_og_d%C3%BDraeftirlit
http://mos.is/Skipulagogumhverfi/Dyrahaldogmeindyr/Dyraeftirlit/
hvells
![]() |
Spara þarf í dýraeftirliti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 2. janúar 2014
Bankarnir betri
Lánasjóður sveitafélaga berst áfram gegn þessu ólöglega lánaformi.
Bankarnir eru löngu búin að reikna út sín lán.... nokkrum sinnum meiriséa.
Bankarnir þjóna fólkinu í landinu.
Einsog þessi einfalda staðreynd sýnir.
hvells
![]() |
Óttast 114 milljóna kr. tjón |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |