Fimmtudagur, 27. febrúar 2014
Galið.
Þetta er algjörlega galin "hugmynd" og það kemur mér ekki á óvart að þetta kemur frá Framsóknarflokknum. Ég sé hvaða þingmenn þetta eru. Allir misvitrir Framsóknarmenn. En það kemur mér á óvart að Frosti er þarna á meðal. Ég hef talið hann skynsaman á vissan hátt. Þó að hann er menntaður viðskiptafræðingur frá HÍ og kallar sig rekstrarhagfræðing.
Hann hefur allavega reynslu frá atvinnulífinu. Marel, Dohop og Nýherji.
Hver er hlutverk ríkisins? Er að að eyða 120 milljörðum í áburðarverksmiðju?
"heimsmarkaðsverð á áburði hafi hækkað umtalsvert, einkum vegna aukinna áburðarkaupa Kínverja og Indverja. Þá sé ljóst að áburðarverð mun að öllum líkindum haldast hátt í nánustu framtíð vegna aukinnar ræktunar matvæla"
Ef þetta er svona skothelt afhverju hætta þessi þingmenn ekki á alþingi og fara saman í áhætturekstur og græða milljarða?
Það er kannski auðvelt að vera með gott "viðskiptavit" með annara manna peninga?
hvells
![]() |
Vilja nýja áburðarverksmiðju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 27. febrúar 2014
Á flótta
Gunnar Bragi og vinir hans í Framsóknarflokkinum eru á flótta undan lýðræðinu.
Þeir eru hræddir við kjósendur og vilja þjóðarinnar.
Þeir eru hræddir við of góðan samning.
Þeir vilja svifta kosningaréttinum af þjóðinni.
hvells
![]() |
Lýðræðið að engu gert |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 27. febrúar 2014
NEI sinnar
Það er ljóst að NEI sinnar eru með allt niðrum sig í þessu máli.
Þeir eru í miklu áfalli vegna þess að þeir sjá það með berum augum að mikil vilji er á meðal landsmanna að klára samninginn og leggja hann fyrir dóm þjóðarinnar.
Það er hið lýðræðislega hlið í málinu.
hvells
![]() |
Þingfundi ítrekað frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 27. febrúar 2014
Enginn munur
" Enginn kynbundinn launamunur er á dagvinnulaunum."
Það segir okkur að það er enginn munur. Kynin fá jafn mikið borgað. En karlarnir vinna yfirvinnu og það skýrir þann meinta mun. En ekki er það markmiðið að láta karlana vinna launalausa yfirvinnu?
Svo er ljóst að ef konur mundi vinna yfirvinnu líka þá væru þau á sömu launum. Það er staðreynd.
hvells
![]() |
Dregið hefur úr kynbundnum launamun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 27. febrúar 2014
Dvínandi trúverðugleiki
Það er ljóst að meira að segja hörðustu NEI sinnar eru farnir að missa trú á Vigdísi.
Hún hefur einfaldlega misst trúverðugleikann jafnt og þétt. Fyrst var hægt að skrifa mistök hennar og vitleysu á reynsluleysi. Svo koma að "menn gera mistök" en nú eru "mistökin" orðin nánast daglegt brauð og NEI sinnar eru hættir að lítast á blikuna.
Ljóst er að hún mun gjaldfella Heimsksýn með sínu háttarlagi. Margir innan Heimsksýnar eru að hugsa sér til hreyfings.
hvells
![]() |
Hvetur fyrirtæki til að hætta að auglýsa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 27. febrúar 2014
"elskulega" krónan
Nú er verð MEIRA en fjórfallt dýrari en var árið 1988.
Þökk sé okkar elskulegu krónu sem NEI sinnar vilja verja með kjafti og klóm.
hvells
![]() |
Mikil hækkun vísitölu neysluverðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 27. febrúar 2014
NEI sinnar í ógöngum
Það er ljóst að NEI sinnar eru komnir með þetta ESB mál í algjörar ógöngur.
Þeir eru hræddir við vilja þjóðarinnar.
Þeir eru hræddir við lýðræðið.
hvells
![]() |
Svikin loforð rædd um miðja nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 26. febrúar 2014
Ekkert að marka þennan mann
Ragnar var formaður Heimsksýnar og þar með ekkert að marka þennan mann.
Hann er talsmaður afturhalds, þrönghyggju og verri lífskjara. Hann er ekki talsmaður VG eða vinstri hugsjóna.
Það er ekkert að marka það sem þessi drengur segir.
hvells
![]() |
Segir VG taka skref í rétta átt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 26. febrúar 2014
Gröf Gunnars Braga
Það er fot sagt að ef þú ert kominn niður í holu þá áttu að hætta að moka.
Það er mjög lítilmannlegt að biðjast ekki afsökunnar.
En það er enn verra að biðjast afsökunnar og halda svo uppteknum hætti í fjölmiðlum.
Gunnar er algjörlega búinn að gera út um sitt pólítíska líf... ef hann væri í einhverjum öðrum flokki en Framsóknarflokknum þá mundi hann vera settur til hliðar.
hvells
![]() |
Steingrímur skoðar réttarstöðu sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 26. febrúar 2014
Launafólk og almenningur vill fá að kjósa um samninginn
"yrði hún samþykkt, tekinn út eini raunhæfi kosturinn til að taka hér upp gjaldmiðil á næstu árum sem komið getur landinu úr viðjum gjaldeyrishafta og lagt grunninn að stöðugleika og nýsköpun í atvinnulífinu til hagsbótar fyrir launafólk og allan almenning."
Ríkisstjórn Sigmundar hefur enga lausn varðandi vanda krónunnar. Það er ekki hægt að afnema verðtryggingu, hann veit ekki hvernig á að koma stöðugleika á krónuna, hann veit ekki hvernig á að takast á við okurvexti og ekkert plan er hér til þess að afnema gjaldeyrishöftin.
Vinnumenn hér á landi sjá í gegnum þessa þjóðrembu og sérhagsmuni sem Sigmundur er að verja og launafólk vill kjósa um saminginnn.
Það gengur ekki til lengdar að Framsóknarflokkurinn ætlar að svifta lýðræðið af fólkinu.
hvells
![]() |
Vilja að tillagan verði afturkölluð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |