Pétur Blöndal með réttu spurningarnar

Hann segir í Facebookfærslu:

"Hagstofan gerir ráð fyrir að við munum flytja út vörur og þjónustu (framleiða gjaldeyri) fyrir um 1.000 milljarða í ár (2012). Til þess að framleiða þennan þarf að flytja inn bauxít, olíur, net og skip, bílaleigubíla (ferðamenn). Hvað er mikil nettó framleiðsla á gjaldeyri?

Þann 31. október sl. spurði ég Seðlabankann:

Hefur Seðlabankinn reiknað út hvað íslenskt atvinnulíf getur framleitt mikinn gjaldeyri næstu 25 ár til að
a. greiða að aðföngum til að framleiða þann gjaldeyri (bauxít, olíu, skip og net). Arð.
b. greiða af erlendum skuldum (þ.m. talið skuldum vegna gjaldeyrisvarasjóðs)?
c. nauðsynjar til almennings (olíu, lyf, matvæli, heimilistæki, bíla osfr.)
d. skipta út krónueign útlendinga."

 Mjög góðar spurningar. Og þá sérstaklega með Bauxít (álverin). Hvað er að fara nettó til Íslands.Eru til tölur um það.

 

Duglegur þingmaður.

 

kv

Sleggjan


Björgvin út af þingi

Þá skulum við bara passa okkur á að kjósa ekki Samfylkinguna. Fá þennan hrunráðherra af þingi.

 

Arfleið hans er að hafa ekki vitað neitt og alltaf verið út af þekju.

Arfleið hans er að segja beint út að þegar stjórnvöld keyptu upp Sjóð 9 að þau gerðu það í þeim tilgangi að hagnast á þeim (!)

Arfleið hans er að hann einbeitti sér af því að búa til árleg verðlaun sem hétu "neytendaverðlaun ársins" og DR Gunni fékk þau. Voru svo ekki afhent aftur.

 

1. sætið er öruggt.

Vonum að 2. komist ekki inn.

 

 kv

Sleggjan


mbl.is Oddný í efsta sæti í Suðurkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vil útskýringu á myndanotkun

Hef verið að gagnrýna íslenska umfjöllun um þessi átök.

Langflestir fjölmiðlar skoða bara eina hliðina á málunum. Svo eru hlutir sem eru stórfurðulegir og út í bláinn.

 

Mynd með frétt heldur stúlka á skilti sem stendur: Gaza settlers leave our land.

Annaðhvort er þetta 7 ára gömul mynd eða að mbl ákvað að birta mynd fólki með tilgangslausar yfirlýsingar.

Ísrael yfirgaf Gaza svæðið árið 2005!

 Fjölmargir landnemar neituðu að yfirgefa svæðið en herinn tók þá í burtu með valdi.

kv

Sleggjan


mbl.is Fyrirskipaði aðstoð til Palestínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðið myndirnar

Skoðið myndirnar með mótmælunum.

Þar sjáið þið að þar er engin kona sjáanleg. Enda skulu þær vera heima að elda og hugsa um börnin.

 

Sóley Tómasdóttir og Hildur L alveg sama um það. Þögn sama og samþykki.

 

kv

Sleggjan


mbl.is Kölluðu eftir afsögn konungsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sleggjan er ekki að fíla þetta

Án þess að ég reyni að ásaka alla, þá er það bara mjög algengt að vinna er í boði hjá fullt af fyrirtækjum. En fólk segir nei og heldur áfram á bótum. Ég sem hélt að það væri ekki í boði að segja nei. Nei þýðir bótamissir.

Vann hjá fyrirtæki frá 2002 til 2007. Fékk aldrei desemberuppbót. Skil ekki af hverju atvinnulausir fái það úr vasa skattgreiðenda.

Þetta kostar rúmlega 300 milljónir, vill nota þann pening frekar í tækjakaup á Landspítalanum. Þeir sem tjá sig hér mega svara því hvort þau mundu velja. 300 í tækjakaup eða 300 í desemberuppbót.

 

Það á að vera hvetjandi að fara af bótum. 

 

kv

Sleggjan


mbl.is Fá greidda desemberuppbót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rangfærslur, taktík Hamas liða í raun!

Þrátt fyrir að hafa heitið vopnahléi héldu Ísraelsmenn árásum sínum áfram á Gaza á meðan ráherrann var þar í heimsókn.

Hvenær sagði Ísrael að þeir ætluðu að vera með vopnahlé meðan Hamas liðar skjóta yfir 100 eldflaugum á dag á allar helstu borgir Ísraels? - Íslenskir fjölmiðlar heimildir?

 

Að minnsta kosti 20 Palestínumenn, þar af fimm börn, og þrír Ísraelar hafa látist í árásum á báða bóga frá því Ísraelsher hóf loftárásir á Gaza á miðvikudag.

Hamas á Gaza byrjuðu með skotárásir og Ísrael er að bregðast við.

 

Hann segir að Egyptar muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma á vopnahléi milli Palestínu og Ísraels.

Síðasta yfirlýsing Hamas á Gaza(Palestínumenn) var að þeir vilja ekki vopnahlé eftir að háttsettur Hamas liði var drepinn.

 

 

Til viðbótar má benda á að Hamas liðar skjóta hundruð eldflaugna með það eina að markmiði að drepa sem flesta og valda sem mestum skaða.

 

Ísraelar velja skotmörk sín gaumgæfilega. Það er vandamál hvað Hamasliðar fela sig innan um óbreytta borgara. Hamasliðar freista þess að Ísraelar drepi sem flesta óbreytta borgara, og þá helst hjálparstarfsmenn og starfsmenn alþjóðasamtaka. Þessvegna fela þeir sig i þéttbýlum svæðum og nálægt stofnunum Sameinuðu þjóðanna (sjá mynd) sem dæmi.

Hamas liðar vilja þetta, þá fá þau "samúð" frá þeim sem nenna ekki að kanna málin betur. Íslenskir fjölmiðlar sem dæmi. Og Íslendingar yfir höfuð.

kv

Sleggjan


mbl.is Ástandið skelfilegt á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þökkum frábærar viðtökur í vikunni

Erum með 4. vinsælasta bloggið á Íslandi í dag (moggablogg).

Þökkum góðar viðtökur. Skemmtilegar umræður hafa oft skapast í kjölfarið.

Hér er listinn í heild:

 

SætiHöfundurSlóðVikuinnlitVikuflett.Gestir/dagIP-t./dag

Íslenskir fjölmiðlar í ruglinu

Ekki er minnst einu orði á að Hamas startaði þessu.

 

Ekki minnst einu orði á að Hamas hafa skotið miklu fleiri eldflaugum að Ísrael. Í gær voru það um 200stk, í dag má væntanlega bæta við 100.

 

En hinsvegar kemur fram í fréttinni:

"Ísraelar hafa haldið út sleitulausum loftárásum á Gaza í dag og hafa að minnsta kosti 19 Palestínumenn látist í þeim, þar á meðal tvö börn og kennari í skóla Sameinuðu þjóðanna. "

 

Íslenskum fjölmiðlum er ekki viðbjargandi.

kv

Sleggjan


mbl.is Cameron áhyggjufullur vegna átaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamas liðar þroskaðir

Hamas liðar byrjuðu að gera árásinar.

Þegar háttsettur hryðjuverkamaður var drepinn hjá þeim þá urðu þeir brjálaðir. Alveg sama um logic. Skiptir engu máli lengur hver er aggressive og hver ekki.

 

Svo endar forsprakki Hamas á því að segja:

"Talsmenn Hamas samtakanna segja vopnahlé við Ísrael ekki koma til greina núna"

 

Flottir.

 

 

Já, Össur Skarphéðinsson er búinn að leggja blessun sína yfir Hamas með yfirlýsingu um sjálfstæði Palestínu. Vel gert gert.

kv

Sleggjan


mbl.is Harðnandi átök Ísraels og Palestínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólkið v.s ríkið

Hér er verið að ríkisvæða móttöku innflytjenda.
Við íslendingar eigum að bjóða innfytjendum velkomin til Íslands með bros á vör. Við eigum að fagna fjölbreyttni.

En hér er verið að ríksvæða móttökuna á innflytjendum. Það er verið að skipta út fólki fyrir embættismenn.

þetta eru sorgleg skref. þetta eru afturför

hvells


mbl.is Frumvarp um innflytjendur samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband