Föstudagur, 9. mars 2012
Blekkingar.
Nýjastu rökin fyrir því að Icesave átti að segja NEI er að Iceland var ekki að seljast og líklega hefði það verið klúður. En Iceland er selt og verðið fór framar vonum. Alveg einsog og JÁ sinnar höfðu haldið fram allan tíman.
Rök NEI sinna falla eitt og eitt eftir því sem tíminn líður.
Þeir vaða í reyk.
Ég er ennþá að bíða eftir því að Indefence, Heimsksýn, kjosum.is og aðrir biðji þjóðina afsökunnar fyrir að ljúga að sér.
Ég bíð.
hvellurinn.
Malcolm Walker keypti Iceland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þvert á móti eru það svona menn eins og þú sem eiga að biðjast afsökunar. Jafnvel þessi ónýta ríkisstjórn er farin að taka til varna gegn ESA og benda á þá staðreynd að málatilbúningur stofnunarinnar er bull, þar sem Ísland uppfyllti alla tíð tilskipun EES um innistæðutryggingar.
Theódór Norðkvist, 10.3.2012 kl. 02:32
A.m.k. er enskur lögfræðingur sem sér um að reka málið að fullyrða að málatilbúningur ESA sé rangur. Ætli skötuhjúin í stjórnarráðinu reki hann ekki bara, svo við töpum örugglega málinu.
Theódór Norðkvist, 10.3.2012 kl. 02:33
Kannski rétt að láta hlekk á eina frétt um málið fylgja með. Af þessari bloggfærslu að dæma sýnist mér hvellurinn vera hættur að fylgjast með fréttum, a.m.k. af Icesave.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/03/09/krofugerd_esa_svarad_vegna_icesave_malsins/
Theódór Norðkvist, 10.3.2012 kl. 02:36
Lestu færsluna.
Ég er ekki að tala um málstilbúnaðinn.
Ég er að segja að NEI sinnar voru alltaf að halda því fram að Iceland keðjan væri einskis virði.
hvellurinn
Sleggjan og Hvellurinn, 10.3.2012 kl. 08:59
Síðbúið svar:
Ég taldi að þú vildir afsökunarbeiðni frá nefndum samtökum á allri þeirra góðu baráttu, ekki bara fullyrðingum þeirra um Iceland keðjuna. Minnir að þú (eða sleggjan?) hafir verið að röfla þetta afsökunarbeiðnirugl einhvern tímann áður og þá vegna allrar baráttunnar gegn því að samþykkja Icesave-samninginn (man ekki hvorn þeirra, þeir eru orðnir svo margir.)
Ég minnist þess ekki að samtökin sem þú nefnir hafi verið með einhverjar sérstakar yfirlýsingar um andvirði Iceland keðjunnar, þó getur það verið.
Held samt að aðalatriðið í þeirra málflutning hafi verið að svona sölu og markaðssetningu á fyrirtæki á frjálsum markaði, fylgir alltaf fjárhagsleg áhætta.
Þá áhættu er ekki rétt að binda við ríkisábyrgð á alveg ótengdu fyrirbæri, hinni meintu Icesaveskuld. Þetta er og hefur alltaf verið aðalatriðið málsins.
Theódór Norðkvist, 10.3.2012 kl. 22:52
Já það er rétt hjá þér.
Ég hef krafist aföskunarbeðni frá þessum köppum áður.
Þeir héldu stöðugt fram að enginn mundi þora í mál við okkur útaf Icesave.
Töngluðust á því fyrir kosningar og rökuðu inn atkvæði.
En nú hefur ESA kært Ísland. Þvert á það sem NEI sinnar hafa sagt.
hvellurinn
Sleggjan og Hvellurinn, 11.3.2012 kl. 21:50
Væri til í link á þar sem sagt er að Iceland keðjan var einskis virði =)
Frá byrjun var augljóst að þetta var verðmætasta eignin
kv
sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 12.3.2012 kl. 18:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.