Föstudagur, 12. september 2014
Flott mál en þurfum að hætta við leiðréttinguna
Þetta er góður árangur.
ASÍ má njóta sannmælis, þau báðu um sanngjarna og hófsama hækkun launa. En kennarar, hjúkkur og aðrir dólgar náðu næstum að skemma þessa samstöðu með ofurkröfum og verðbólguhvetjandi.
Ríkisstjórnin fær auðvitað hrós líka því þetta gerist á hennar vakt.
Hinsvegar er ríkisstjórnin að plana að millifæra 70Milljarða á suma landsmenn í formi "leiðréttinga". Sú sóun á almannafé verður að stoppa. Gravalvarlegt.
kv
Sleggjan
Undir verðbólgumarkmiði í 8 mánuði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 12. september 2014
Allt í stakasta lagi, frábærar tölur
Ekki nema 60 heimili. Frábært.
69 þúsund sóttu um leiðréttingu aðeins 60 í veseni. Þ.e. 0,01%!
Við verðum að viðurkenna að ekki er hægt að bjarga öllum með tölu. 0,01% er mjög gott hlutfall.
Ímyndið ykkur að atvinnuleysið væri 0,01% ?
Ímyndið ykkur að 0,01% væri undir fátæktarmörkum?
Ímyndið ykkur að 0,01% væru öryrkjar eða í félagslegu húsnæði?
Nákvæmlega. Bara gott mál.
Þökkum HH fyrir að benda á að allt sé í stakasta lagi.
kv
Sleggjan
60 heimili í hættu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 12. september 2014
Markaðspistill Sleggjunnar
Joey and the Juice opnaði stórt útibú nýlega í Laugum.
Sleggjan spáir þessu veitingahúsi ekki langlífi. Kannski eitthvað frameftir þessu ári en á næstu ári lokar þetta útibú.
Munið orð Sleggjunnar, engin feilsport hingað til í spádómum.
Held að einungis viðskiptavinir World Class séu ekki að fara halda þessu uppi. Flestir með sína próteinsjeika og beint út. Svo hinn almenni viðskiptavinur fer á hina staðina frekar en Laugar. Bílastæðavandi er líka svakalegur og við vitum að Íslendingar vilja leggja bílnum sínum. Svo er þetta ekki í túristaleið.
kv
Sleggjan
Föstudagur, 12. september 2014
Engin haldbær rök
"Þar segir, að Landsbankinn eigi að hafa burði til að starfrækja bankaútibú í rúmlega 1.600 manna samfélagi og bjóða bæði íbúum og fyrirtækjum þjónustu í nærsamfélaginu. Þannig stæði banki í ríkiseigu undir samfélagslegum skyldum og ábyrgð."
Það er einsog framhaldsskólakrakki í samfélagsfræði 103 hafi skrifað þetta.
Er það "samfélagsleg skylda" bankans að vera með útibú í Sandgerði?
Bankinn er í eigu ríkisins og er það réttmætt að stunda óhagkvæman rekstur sem leiðir til verri lífskjara landsmanna í framtíðinni?..... skiljanlegt að bæjarstjórnin vill halda þessum stöðugildum enda fá þeir útsvar frá skattgreiðendum... en þeir eru þá að hugsa um sérhagsmuni en ekki heildarhagsmuni almennings.
hvells
Skora á Landsbankann að hætta við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 12. september 2014
Ekkert að þessu
Hvað er að því að lána 90%?
13mkr íbúð í RVK. Ef þú vilt eignast hana þá þarftu að eiga 1,3mkr í eigið fé og færð lánað fyrir rest.
Afborgun er 60þús á mánuði.
En þessi íbúð er í útleigu á 120þúsund á mánuði ef þú vilt vera á leigumarkaði.
Það er augljóst betra að kaupa og þessi viðskipti er bara á milli tveggja aðila. Bankans og viðstkipavinar og það kemur í raun engum örðum við hvernig lánin eru háttuð.
Þó að stjórnmálamenn gera allt til þess að trufla hin frjálsa markað.
hvells
Níutíu prósent lánin PR brella? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 12. september 2014
Heildarverð lækkar
Það er villandi að einblýna bara a matarútgjöld.
Heildarverð mun lækka og þar með lán heimilana.
Efra þrepið mun fara frá 25,5% í 24% og langflestar vörur eru í því þrepi.
Ásamt mun ríkisstjórnin afnema vörugjöld.
Verð hér á landi mun lækka til hagsbótar fyrir fólkið í landinu.
hvells
Matarútgjöldin aukast um 42 þúsund á ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 12. september 2014
Viðskiptaráð hefur enn og aftur rétt fyrir sér
"Allar þessar breytingar eru til þess fallnar að auka skilvirkni virðisaukaskattskerfisins og styrkja grundvöll verðmætasköpunar hérlendis. Þá hafa stjórnvöld útfært breytingarnar þannig að þær komi best út fyrir tekjulægstu heimilin í landinu. Launþegahreyfingar líkt og VR og ASÍ ættu því að fagna boðuðum breytingum"
Það er frekar sérstakt að VR og ASI séu að berjast gegn velferð í landinu. Vissulega eru margir líðskrumarar í ASI og vilja taka Vilhjálm Birgisson pólinn í hæðina og vilja stúta efnahag landsins til þess að fá kreddur sínar uppfylltar.
En afstaða VR er mér mikil vonbrigði. Nýji formaður Ólafía Björk Rafnsdóttir er á vafasamri vegferð innan samtakana. Eitt er ljóst. Hún er ekki að berjast fyrir hag féalgsmanna heldur litast öll störf hennar af pólítískri kænsku...enda var hún kosningastjór Ólaf Ragnar, fv. ráðherra Alþýðubandalagsins.
Ég ætla að hvetja Viðskiptaráð áfram að stinga á kýlin og benda á staðreyndavillur.
hvella
Sakar VR og ASÍ um rangfærslur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |