Með betri fréttaljósmyndum ársins

Þessi tveir hafa barist á banaspjótum opinberlega í viðtölum og blaðagreinum.

Þarna mætast þeir. Reynir veifar hér vinstri hendinni að áttinni að Sigurði og hann heldur sinni stöðu. 

Gaman væri að vera fluga á vegg þarna.

 

Flott fréttaljósmynd.

kv

 

Sleggjan


mbl.is Aðalfundi DV frestað um viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæmi ekkert á óvart

Það kæmi ekkert á óvart að Sigmundur mun neyða alla Íslendinga á "íslenska kúrinn"

Svo er náttla bannað að flytja inn matvæli frá útlöndum því það skaðar lýðheilsu og "breytir hegðun heilla þjóðar"

Svo verður Costco bannað að koma. Enda mun það skaða heilsu Íslendinga einsog þingflokksformaður XB heldur fram.

hvells


mbl.is Landsmenn hugi að heilsunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

No shit

Ferðamannafjöldinn hefur tvöfaldast.

Og nú þarf að tæma rotþrær árlega í stað annaðhvert ár einsog áður.

1+1=2

 Öllum af óvörum ekki satt?

hvells


mbl.is Ferðamenn fylla rotþrærnar hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Augljós tenging

Hér er verið að undirbúa það að bænaturninn á fyrirhugaðri Mosku má ekki kalla frá sér nema við "stærri athafnir".

Til að gæta jafnræðis er núna verið að fara banna kirkjunum að hringja bjöllum nema við þessar óskilgreindu stærri athafnir.

 

 

 

kv

Sleggjan


mbl.is Hringt við stærri athafnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón svara barnalegu Hamas-stuðningsmönnunum

Jón fyrrverandi Rektor

http://www.pressan.is/pressupennar/LesaJonSigurdsson/eiga-ekki-og-mega-ekki

 

Átökin á Gazaströnd vekja athygli. Stofnuð eru samtök til að vinna gegn innflutningi varnings frá Ísrael. Fréttastofur flytja endalausar frásögur um fjöldadráp á Gaza, og endurtaka tölurnar dag eftir dag.

Í Ísrael eru reyndar deilur um málefni Gaza. Ríkisstjórn Netaniahu er umdeild meðal almennings í Ísrael. Og útþensla landnemabyggða er líka umdeild þar. En stjórnmálaaðstæður valda því að öfgamenn eru með í ríkisstjórn. Í Ísrael hafa verið mótmæli gegn hernaðarhryllingnum á Gaza og kröfur um aðrar aðferðir. Menn hafa skoðanafrelsi í Ísrael, ólíkt Gaza.

En engar deilur eru í Egyptalandi um að halda landamærum Gaza harðlæstum eða kröfur um að Egyptar komi íbúum þar til aðstoðar. Fáar vísbendingar eru um að stjórnvöld í Egyptalandi eða Jórdaníu berjist gegn Ísrael í málinu. Margt bendir til að Egyptum og Jórdönum þyki ágætt að Ísraelsmenn taki á Hamas-hreyfingunni.

Átökin á Gaza leiddu enn einu sinni í ljós afstöðu flestra Evrópumanna. Afstaða þeirra er gamalkunn: Júðar eiga ekkert með að verja sig -

Kristnir Evrópumenn segja: Það er skiljanlegt og afsakanlegt að Hamas sendi flugskeyti inn yfir íbúðabyggðir og verslunargötur í Ísrael, - að þeir setji vopnabúr sín inn í fjölbýlishús, - að liðsmenn Hamas þykist vera almennir borgarar en ekki hermenn, - að þeir hafi sprengjuvörpur sínar inni undir sjúkrahúsum, - og að þeir stefni opinskátt að þjóðarmorði í Ísrael. - En Júðar eiga ekkert með að svara þeim og verja sig -.

Evrópumenn segja líka: Gazabúar eru umkomulausir flóttamenn - sem er satt. Og þeir segja áfram: Júðar eru hins vegar peningamenn og þurfa enga samúð. Þó er vitað að meirihlutinn í Ísrael eru afkomendur flóttafólks sem kom þangað gangandi brottrekið úr Arabalöndunum við stofnun Ísraelsríkis, - og að mikill fjöldi innflytjenda til Ísraels á síðari árum er fólk sem kom öreiga frá fyrrverandi kommúnistalöndum.

Munur er á aðstöðu Ísraelsmanna og Araba. Það sést á því að Ísraelsmenn hjálpast að, og skyldmenni þeirra í öðrum löndum hjálpa þeim, - að Gyðingar keyptu sjálfir jarðeignir þarna dýrum dómum af tyrkneskum yfirvöldum, - að Ísraelsmenn réðust á eyðimörkina og breyttu henni í aldingarð, - að Ísraelsmenn rifu sig sjálfir upp úr eymd og hörmungum með dugnaði sínum, - að Ísrael er eina lýðræðis- og mannréttindaríkið í þessum heimshluta.

En stjórnvöld og auðmenn Araba, með allan sinn olíuauð, hafa ekki reynst Palestínumönnum hjálplegir heldur nota þá sem byssufóður. Og Hamas bætir gráu ofan í svart. Vegna þessa eiga Palestínumenn sannarlega skilið að njóta samúðar og stuðnings.

Ísraelsmenn hafa einu sinni enn fengið staðfestingu á afstöðu kristinna Evrópumanna. En Ísraelsmenn láta ekki lengur skipa sér að hafa ,,Judenrat". Ef Ísraelsmenn eru sammála innbyrðis um eitthvað þá er það þetta: Við höfum hlustað alltof lengi á þessa Evrópumenn, -  við höfum hlustað á þá öldum saman okkur sjálfum til óbóta, - nú hlustum við ekki lengur á þessa Evrópumenn, - við tölum við þá á því eina máli sem þeir skilja -.

 

 

kv

sl


Vantar hlutfallið

Af hverju eru VÍS menn ekki með tölur um þetta víst þeir voru þarna á staðnum.

Væri það of erfitt að punkta niður hversu stórt hlutfall stoppa við gangbraut? Var það meiri en helmingur? Eða var það kannski 5-10%? Hvað er sættanlegt og hvað er óásættanlegt?

Þreyttur á svona fréttum sem byggðar eru á tilfinningaklámi þegar auðveldlega er hægt að leggja fram einhver gögn og staðreyndir svo fólk átti sig á umfanginu.

kv

Sleggjan


mbl.is Ökumenn tillitslausir við gangbrautir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óábyrg meðferð á almannafé

Þú ræður ekkert tvo sérfræðinga ÁÐUR en þú flytur starfsemina.

Nær væri að flytja starfsemina og svo ráða inn starfólk.

Þetta er enn eitt dæmi um að möppudýrin í kerfinu kunna ekki að fara með skattfé almennings.

Þeir eru alveg sama þegar þetta eru ekki þeirra eigin peningar heldur peninga fólksins í landinu.

Svo mundi aldrei gerast í einkafyrirtæki.

hvells


mbl.is Flytja þrátt fyrir mótmæli nágranna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg rétt hjá Hönnu

Þetta er alveg rétt hjá Hönnu Birnu.

Umboðsmaður Alþingis er á vafasamri vegferð. Hann gerði ekkert í fjögur á þegar Seðlabankinn braut gróflega á Heiðari þegar hann sóttist eftir að kaupa Sjóvá.

En öll orka þessa manns fer í að pönkast í Hönnu Birnu. 

Umboðsmaður Alþingis verður að útskýra afhverju þessi munur er á málunum tveim.

hvells


mbl.is „Eigum við að treysta þessu liði?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var ekki Icesave búið mál?

Hvar eru snillingarnir sem segja að Icesave skuldin hvarf við þjóðaratkvæðagreiðsluna?

Svo gengur krafan kaupum og sölum.

 

Snillingar.

kv

Slegg


mbl.is Hollenska Icesave-krafan seld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Markaðurinn ræður sér sjálfur

Markaðurinn ræður sér sjálfur. Ef eftispurn er fyrir líkamsræktarstöð á þessum stað þá mun ein slík opnast. Kannski þessi Hildur vilji ekki bara slá til og opna eina slíka?

 

Þetta hefur verið reynt. Planet Pulse opnaði stöð í miðbænum (langt síðan reyndar) og sú stöð var ekki lengi að fara á höfuðið. Ef markaður væri fyrir líkamsræktarstöð þá einfaldlega væri búið að opna eina slíka. Skortur á bílastæðum er stór ástæða, þó við viljum trúa að miðbæjarrotturnar nenni að labba langar vegalengdir með þunga íþrottatösku þá er það ekki þannig.

Fyrir utan kannski þá sem búa mjög nálægt eða vinna á Laugaveginum en það fólk er ekki að fara halda uppi líkamsræktarstöð. Svo er gefið í skyn í greininni að World Class er eina stöðin sem stendur undir leigukostnaði í miðbænum. Á þá World class að taka að sér tap á þessari stöð í miðbænum og nota hinar stöðvarnar til að borga upp þann bagga? Ekki markaðslega né fjárhagslega skynsamlegt. Eigandinn búinn að skipta um kennitölu einu sinni,kannski ekki nauðsynlegt að gera það aftur.

Svo ég endi þetta rant á skemmtilegum nótum þá er Mjölnir með fyrirmyndar lyftingaraðstöðu rétt hjá Búllunni í miðbænum af öllum stöðum. Segi ég, íbúi á Njálsgötunni og eigandi árskorts í World Class

kv

Sleggjan


mbl.is Hnébeygjur í stað bjórdrykkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband